Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2009, Blaðsíða 27

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2009, Blaðsíða 27
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 3. tbl. 85. árg. 2009 23 Rúm fjörutíu ár eru síðan Ingibjörg hóf störf sem hjúkrunarfræðingur. Hún hefur komið víða við á þeim tíma. Frá 1999 fram til 2006 starfaði hún við heimahjúkrun á Höfn í Hornafirði þar sem þessi þjónusta er í dag rekin á vegum sveitarfélagsins líkt og á Akureyri. Til starfa við heimahjúkrun í Reykjavík kom Ingibjörg í ágúst á síðasta ári, ekki löngu áður en starfsemin var flutt frá ríki til borgar. Í austurborginni Í starfi sínu sinnir Ingibjörg heimahjúkrun í austurborginni, það er í og við Laugardal. Hver hópur, sem starfar hjá Heimahjúkrun Reykjavíkur, sinnir ákveðum hverfum í borginni og hefur í sinni umsjón gjarnan síst í því að vinna með skjólstæðingum, aðstandendum, stofnunum og öðrum fagaðilum. Af því leiðir að mikið er um fundasetur enda þarf oft að finna ný úrræði fyrir skjólstæðinga. Starfið felst einnig mikið í tölvuskráningu og pappírsvinnu ýmiss konar enda þarf að skrá alla heilsufarssögu sjúklinga og þá meðferð sem þeim er veitt í gagnabankanum Sögu. Í mörgum tilvikum er fólk ágætlega sjálfbjarga, til dæmis með lyfja- og sprautugjafir en því finnst hins vegar gott að fá innlit frá okkur öðru hverju sem virkar þá meðal annars sem félagslegur stuðningur,“ segir Ingibjörg sem telur að þetta starf muni eflast í framtíðinni. Með samþættingu starfs heimahjúkrunar og félagslegrar heimaþjónustu opnist miklir möguleikar sem áhugavert verði að taka þátt í að útfæra. Stóra málið sé hins vegar að slík breyting séu notendum þjónustunnar til þæginda. 60 til 80 manns sem er vitjað frá þriggja mánaða fresti og jafnvel nokkrum sinnum á dag, allt eftir þörf hvers og eins. „Eldra fólk er stór hluti íbúa á því svæði sem ég sinni og af sjálfu sér leiðir að það þarf mikið á heimahjúkrun að halda. Fjölmennasti hópurinn er fólk á ellilífeyrisaldri. En þjónustan er alls ekki einskorðuð við elsta fólkið, því að oft sinnum við yngra fólki sem þarf stuðning eftir veikindi eða slys,“ segir Ingibjörg. Sem dæmi um þá þjónustu sem starfsfólk heimahjúkrunar veitir – hjúkrunarfræðingar eða sjúkraliðar – nefnir Ingibjörg til dæmis skiptingar á sáraumbúðum, insúlínsgjafir, sondugjafir, uppsetningu á þvaglegg, lyfjamál og almennt heilsufarseftirlit. Er þá fátt eitt nefnt. Notendum til þæginda „Starf hjúkrunarfræðinganna felst þó ekki HEIMAHJÚKRUN ER GEFANDI Úti á akrinum. „Takist vel til um alla samvinnu getur slíkt flýtt fyrir bata,“ segir Ingibjörg Ingólfsdóttir, hjúkrunarfræðingur hjá Heimaþjónustu Reykjavíkurborgar. „Heimahjúkrun er að flestu leyti mjög gefandi. Með því að koma inn á heimili sem aufúsugestur kynnist maður fólki í miklu návígi og fer nær því en gerist til dæmis inni á stofnunum. Fyrir vikið myndast oft ágætt samband við skjólstæðinga og takist vel til um alla samvinnu getur slíkt flýtt fyrir bata,“ segir Ingibjörg Ingólfsdóttir, hjúkrunarfræðingur hjá Heimaþjónustu Reykja víkur borgar. Fréttapunktur Níunda alþjóðlega ráðstefnan um fjölskylduhjúkrun var haldin í Reykjavík dagana 2.–5. júní. Íslenskir hjúkrunarfræðingar fjölmenntu á ráðstefnunni enda er mikill áhugi fyrir fjölskylduhjúkrun um þessar mundir. Meðal fyrirlesara voru fremstu sérfræðingar heims í fjölskylduhjúkrun, eins og til dæmis Janice Bell og Laureen Wright. Nánar verður fjallað um ráðstefnuna í næstu tölublöðum Tímarits hjúkrunarfræðinga. Fyrsta ráðstefnan var haldin í Calgary 1988 en næsta ráðstefna verður haldin í Kyoto í Japan 2011.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.