Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2009, Síða 17

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2009, Síða 17
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 3. tbl. 85. árg. 2009 13 Christer Magnusson, christer@hjukrun.is Frímerkið hér að ofan var gefið út 19. júní 1970 af því að árinu áður var 50 ára afmæli Hjúkrunarfélags Íslands. María Pétursdóttir, formaður hjúkrunarfélagsins, átti hugmyndina og vann ötullega að því að láta gefa frímerkið út. Myndina teiknaði Haukur Halldórsson teiknari. Á vormánuðum 1970 var frímerkið enn ekki tilbúið, en upphaflega var gert ráð fyrir útgáfu 1969. Í júlí 1970 stóð til að halda norrænt hjúkrunarþing í Reykjavík og varð það til þess að vinnslu var hraðað og frímerkið var gefið út. Var þá sérstakur sýningarstimpill gerður og frímerkið notað í póstsendingum tengdum þinginu eins og kemur fram á myndinni af umslagi sem er póststimplað 7. júlí 1970. Póstur og sími var með tvo starfsmenn á sérstöku pósthúsi við þingið og sér stimpill var notaður á hverjum degi þá fjóra daga sem þingið stóð. Hjúkrunarfræðingurinn, sem hlúir að, oft liggjandi, sjúklingi og sér í lagi strýkur um höfuð hans, er algengt myndefni á frímerkjum. Það má til dæmis sjá á góðgerðarfrímerki til stuðnings Rauða krossi Íslands og á öðru merki til stuðnings Reykjalundi hér til hliðar. Bæði þessi frímerki eru frá 1949 en það ár var aðalbygging Reykjalundar tekin í notkun og happdrætti SÍBS stofnað. Á þessum frímerkjum má greina hjúkrunarfræðinginn, eða reyndar hjúkrunarkonuna, á því að hún ber slör eða kappa. Það er merki um að viðkomandi er fullgildur fagmaður og aðgreinir hann frá ómenntuðum starfskonum. HJÚKRUNARFRÆÐINGAR Á FRÍMERKJUM Í ár eru 90 ár síðan íslenskir hjúkrunarfræðingar stofnuðu fyrst samtök. Í tilefni af 50 ára afmælinu var gefið út frímerki til heiðurs Hjúkrunarfélagi Íslands eins og samtök hjúkrunarfræðinga hétu þá. En hver er saga þessa frímerkis og hver er birtingarmynd hjúkrunarfræðinga á frímerkjum? Ritstjóri Tímarits hjúkrunarfræðinga kannaði málið.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.