Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2009, Qupperneq 22
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 3. tbl. 85. árg. 200918
líður illa í vinnunni gengur ekki vel að bæta sér það upp í
frítímanum. Leiðindi í vinnunni hafa tilhneigingu til að draga
úr framkvæmdavilja utan vinnu. Á hinn bóginn eru mikil
líkindi til að þeir sem njóta sín í vinnunni verji frítímanum til
uppbyggilegra athafna.
Atvinnuleysi er þekktur áhættuþáttur andlegrar og líkamlegrar
vanheilsu. Menn segjast missa sjálfsvirðinguna, finnst þeir ekki
fullgildir þjóðfélagsþegnar og þjást af vonleysi og kvíða. En vert
er að skoða þessi áhrif atvinnuleysis í ljósi fortíðar og framtíðar.
Yfirstéttum fyrri alda þótti ekki virðingin glatast þótt menn
stunduðu ekki daglaunavinnu. Í umræðunni um atvinnuleysi
væri því vert að aðskilja vinnuna sem tæki til að afla sér tekna
og lífsviðurværis og aðferð til að hafa eitthvað fyrir stafni.
Þungaðar konur og konur með barn á brjósti
Margs þarf atvinnurekandinn að gæta þegar konur á
barnseignaaldri eru í starfshópnum. Reglugerð nr. 931/2000 fjallar
um ráðstafnir til þess að auka öryggi og heilbrigði á vinnustöðum
fyrir konur sem eru þungaðar, hafa nýlega alið barn eða hafa
barn á brjósti. Sérstakar leiðbeiningar um það, hvað helst þurfi
að hafa í huga við þessar aðstæður, má fá hjá Vinnueftirlitinu.
Vegna þess að atvinnurekandi getur ekki vitað hvort starfskona
er þunguð eða ekki, og hún veit það kannski ekki strax sjálf, ber
ætíð að gæta fyllstu varkárni þannig að vinnuaðstæður séu sem
heilsusamlegastar fyrir alla. Að jafnaði er hættan mest á fyrstu
þrem mánuðum meðgöngu. Störf geta haft í för með sér hættu
vegna mengunar, vinnuaðferða eða vinnuskilyrða. Ef nauðsynlegt
er skal breyta tímabundið vinnuskilyrðum eða vinnutímanum,
fela starfsmanninum önnur verkefni eða veita starfsmanninum
tímabundið leyfi frá störfum ef allt annað þrýtur. Ekki má skylda
ófríska konu til að vinna að næturlagi á meðgöngu og ekki í allt
að sex mánuði eftir barnsburð.
Kona þarf að tilkynna atvinnurekanda um þungun sína eða
barnsburð til að geta notið þeirra réttinda sem tilgreind eru í
reglugerðinni.
Geislun
Geislun má skipta í tvennt. Annars vegar er um að ræða
jónandi geislun, hins vegar ekki jónandi geislun. Neikvæð
áhrif jónandi geislunar eru vel þekkt: krabbamein, erfðagallar,
áhrif á fóstur og geislaveiki. Hjúkrunarfræðingar, sem vinna á
röntgendeildum eða annast sjúklinga sem eru meðhöndlaðir
með geislum, þurfa að sjá til þess að reglum varðandi geislun
sé fylgt.
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Önnumst alla þætti útfararinnar
Þegar andlát ber að höndum
Arnór L. Pálsson
framkvæmdastjóri
Ísleifur Jónsson
útfararstjóri
Frímann Andrésson
útfararþjónusta
Svafar Magnússon
útfararþjónusta
Hugrún Jónsdóttir
útfararþjónusta
Guðmundur Baldvinsson
útfararþjónusta
Þorsteinn Elísson
útfararþjónusta
Ellert Ingason
útfararþjónusta
Aðhaldsfatnaður
Stuðnings- og íþróttabrjóstahaldarar,
aðhaldsbolir og leggings
www.fastus.is ı sími 580 3900 ı Síðumúla 16
Einstakt efni
Mikið aðhald með
ákveðnum teygjanleika
Afar mjúkt og tryggir
þægindi allan daginn
Mjög endingargott
Góðir öndunareiginleikar,
húðin helst þurr
Bakteríueyðandi,
tryggir ferskleika og hreinlæti
Engir saumar sem erta
º
º
º
º
º
º
º
5.900.-
9.900.- 7.900.-
Sendum í póStkröfu
um allt land