Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2009, Blaðsíða 23
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 3. tbl. 85. árg. 2009 19
Geislavarnir ríkisins eru alhliða þjónustu-
og rannsóknastofnun á sviði geislavarna.
Þar eru veittar upplýsingar um allt sem
lýtur að vörn gegn hættulegum geislum.
Lokaorð
Í þessari grein hefur verið drepið á það
helsta sem huga þarf að í vinnuumhverfi
hjúkrunarfræðinga. Vinnueftirlit ríkisins er
fjölþætt stofnun þar sem, auk vinnu-
staðaeftirlits, eru stundaðar rannsóknir
og víðtæk fræðsla. Ef spurningar vakna
hjá starfsmönnum, hvar sem er á landinu,
er alltaf hægurinn hjá að leita svara hjá
starfsmönnum Vinnueftirlitsins sem beina
spurningunum í réttan farveg ef þeir vita
ekki svarið sjálfir.
Þakkir
Greinarhöfundur þakkar Ásu Atladóttur,
verkefnastjóra á sóttvarnasviði land-
læknisembættisins, og samstarfsfólki sínu
hjá Vinnueftirlitinu góðar og gagnlegar
ábendingar við ritun þessarar greinar.
Heimildir:
Bambra, C.L., Whitehead, M.M., Sowden, A.J.,
Akers J., og Petticrew M.P. (2008). Shifting
schedules. The health effects of reorganizing
shift work. American Journal of Preventive
Medicine, 34 (5), 427–434.
Fransman, W., Roeleveld, N., Peelen, S., de Kort,
W., Kromhout, H., og Heederik, D. (2007).
Nurses with dermal exposure to antineoplastic
drugs. Reproductive outcomes. Epidemiology,
18 (1), 112–119.
Rafnsdottir, G. L., Gunnarsdottir, H. K., og
Tomasson, K. (2004). Work organization, well-
being and health in geriatric care. Work 22,
49–55.
Sveinsdottir, H., og Gunnarsdottir, H. K. (2008).
Predictors of self-assessed physical and
mental health of Icelandic nurses: Results
from a national survey. International Journal of
Nursing studies, 45, 1479–1489.
Gunnarsdottir, H. K., Sveinsdottir, H., Bernburg,
J. G., Fridriksdottir, H., og Tomasson, K.
(2006). Lifestyle, harassment at work and self-
assessed health of female flight attendants,
nurses and teachers. Work, 27, 165–172.
Hólmfríður K. Gunnarsdóttir, Kristinn Tómasson,
og Guðbjörg Linda Rafnsdóttir (2004).
Vinnuálag og líðan mismunandi starfshópa
kvenna í öldrunarþjónustu. Læknablaðið, 90,
217–222.
Mörg samtök sjúklinga halda úti vefsíðum
til að kynna starfsemi sína og eru Samtök
sykursjúkra ein þeirra. Á vef þeirra, diabetes.is,
má finna mikið af fræðsluefni og upplýsingum
um sykursýki og um félagsstarf sykursjúkra.
Vefsíðunni er ætlað að vera til fróðleiks fyrir félagsmenn og almenning
og sem samskiptatæki fyrir félagsmenn. Mikið er um fróðleiksmola
og fræðslugreinar og fréttasíðan er virk. Á vefinn eru einnig settar
frásagnir frá fundum og samkomum ásamt glærum frá fyrirlestrum og
ljósmyndum frá göngum og öðrum samkomum. Sigríður Jóhannsdóttir,
formaður samtakanna og ritstjóri vefsins, segir að samtökin vilja nota
vefinn meira sem samskiptatæki félagsmanna. Nóg sé af upplýsingum
um sykursýki annars staðar. Á diabetes.is mætti vera meira af
reynslusögum og efni frá sjónarhóli sykursjúkra.
Athyglisvert er að á vefsíðunni er að finna betri upplýsingar um
göngudeild sykursjúkra á Landspítala en á vef sjúkrahússins.
Samtök sykursjúkra voru stofnuð 25. nóvember 1971. Allir þeir sem eru
sykursjúkir, aðstandendur og áhugafólk um sykursýki geta orðið félagar
en þeir eru nú um 1.150. Tilgangur samtakanna er að halda uppi fræðslu
um sykursýki, vinna að því að komið verði á fót sérhæfðri lækningastöð
fyrir sykursjúka og bæta félagslega aðstöðu sykursjúkra.
www.diabetes.is
Áhugaverðar vefsíður