Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2009, Síða 30
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 3. tbl. 85. árg. 200926
Með Vigdísi Magnúsdóttur, heiðursfélaga í Félagi íslenskra
hjúkrunarfræðinga, er genginn mikill leiðtogi í hjúkrun. Leiðtogi
sem var treyst til að gegna æðstu stjórnunarstöðum á stærstu
heilbrigðisstofnun landsins, leiðtogi sem stóð fyllilega undir því
trausti.
Vigdís var farsæll leiðtogi og stjórnandi í hjúkrun. Eftir sérnám
í spítalastjórnun var hún ráðin hjúkrunarforstjóri Landspítala
en því starfi gegndi hún frá 1973 til 1995 en þá tók Vigdís
við stöðu forstjóra Landspítalans sem hún gegndi um þriggja
ára skeið. Vigdís var mildur stjórnandi. Hún lagði áherslu á
jafnvægi milli vinnu og fjölskyldulífs og vildi að sínu fólki liði vel
í vinnunni. Hún gerði engu að síður kröfur, þó mest til sjálfrar
sín. Kraftur og eldmóður einkenndi störf hennar. Hún hafði
yndi af hjúkrunarstarfinu og lýsti því sjálf svo í viðtali í Tímariti
hjúkrunarfræðinga að það væri „mikil guðsgjöf að fara alltaf í
vinnuna, vera með væntingar og finnast gaman“.
Þau ár, sem Vigdís starfaði sem hjúkrunar forstjóri, lagði hún
áherslu á að annast sjálf sem flestar ráðningar hjúkrunar-
fræðinga. Hún vildi kynnast hverjum og einum hjúkrunarfræðingi
og það var sannarlega aðdáunarvert að hún þekkti alla
hjúkrunarfræðinga, sem störfuðu undir hennar stjórn, með
nafni. Hún vildi líka að allir fengju að njóta sín. Vigdís lagði ætíð
áherslu á heiðarleika og hreinskilni í samskiptum og það ávann
henni virðingu og vináttu margra. Hópur hjúkrunarfræðinga
sýndi vináttu sína meðal annars í verki þegar þeir fylgdu Vigdísi
í meðferðir erlendis vegna veikinda hennar.
Í störfum sínum hafði Vigdís velferð sjúklinganna ætíð í
brennidepli. Hennar leiðarljós var að þekking og færni
hjúkrunarfræðinganna nýttist sjúklingunum sem best. Viðhorf
og framganga Vigdísar hafa verið, og verða um ókomin
ár, fyrirmynd annarra hjúkrunarfræðinga. Störf Vigdísar fyrir
hjúkrun, hjúkrunarfræðinga og ekki síst skjólstæðinga hjúkrunar
eru ómetanleg. Fyrir þau vilja hjúkrunarfræðingar þakka.
Blessuð sé minning Vigdísar Magnúsdóttur hjúkrunarfræðings.
Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga
Vigdís Magnúsdóttir
Kveðja frá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga
Vigdís Magnúsdóttir, fyrrverandi for stjóri Landspítala og heiðursfélagi í Félagi
íslenskra hjúkrunarfræðinga, lést á heimili sínu í Hafnarfirði laugardaginn 25. apríl sl.
Hún fæddist 19. febrúar 1931.
MINNING