Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2009, Síða 33
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 3. tbl. 85. árg. 2009 29
hjúkrunarfræðingurinn gjafsókn og slíkt
er alls ekki sjálfsagt að sögn Ernu. Í öllu
falli hefði hjúkrunarfræðingurinn getað
fengið ráðgjöf, sér að kostnaðarlausu,
og mat á hvort dómstólaleiðin væri fær.
„Ég hef nýlega skoðað svipað mál þar
sem hjúkrunarfræðingur fékk verk í hné
þegar hann var að aðstoða sjúkling,“
segir Erna. Það mál reyndist ekki vera
vinnuslys heldur var álitið að viðkomandi
væri með sjúkdóm í hné sem ágerðist
vegna álags. „Lög og reglur á Íslandi
leggja mikla ábyrgð á starfsmanninn að
meta aðstæður og sýna fyrirhyggju,“
segir Erna.
Að hennar sögn er nú verið að breyta
reglunum í Danmörku þannig að ef
eitthvað gerist í vinnunni er það alltaf
vinnuslys. Á Íslandi getur verið erfitt að
fá bætur en það er einnig erfitt að gefa
almennar leiðbeiningar um hvenær er
um vinnuslys að ræða. Erna segir að
dómstólar meti hvert tilfelli fyrir sig.
Í þessu tilfelli taldi dómstóllinn að
hjúkrunarfræðingurinn hefði nægilega
reynslu og þekkingu til þess að meta
aðstæður á deildinni. Í dómnum segir
að það „verður ekki annað ráðið en
að stefnandi hafi metið það svo í
umrætt sinn að hún hafi verið fullfær
um að aðstoða sjúklinginn án nokkurrar
aðstoðar.“ Hvaða ályktanir geta þá
hjúkrunarfræðingar dregið af þessum
dómi? Cecilie Björgvinsdóttir segir að
þessi dómur sýni glögglega ábyrgð
einstaklingsins á sjálfum sér í sínu
vinnuumhverfi. Hann geri þá kröfu að
einstaklingurinn nýti sér þau hjálpartæki
sem eru tiltæk sem og aðstoð
vinnufélaganna. Hjúkrunarfræðingar
megi ekki „redda málunum“ heldur
þurfi að gefa sér tíma til þess að
kalla til aðstoð og sækja hjálpartæki.
„Við gerum þá kröfu að fá greitt fyrir
þekkingu og færni í launaumslagið
okkar, það virkar í báðar áttir og gerir
því líka kröfur á okkur á móti, það er
að við þekkjum okkar takmörk,“ segir
Cecilie.
Ljóst er að hjúkrunarfræðingar þurfa
að sýna fyrirhyggju og sækja sér
aðstoð við slíkar aðstæður sem hér
er lýst. Slysin gerast á augabragði en
afleiðingarnar geta orðið langvinnar.
Vinnuveitendur bera almenna ábyrgð
á vinnuumhverfinu en erfitt getur
reynst að sýna fram á ábyrgð þeirra í
einstökum tilvikum.
Þitt eigið kaffihús