Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2009, Side 36
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 3. tbl. 85. árg. 200932
Kostir fleiri en gallar
Therapy-lyfjaskráningarkerfið var innleitt
á deild 12-G skurðlækningadeild á
Landspítala fyrir um það bil ári og
hefur notkun þess gengið að mestu
snurðulaust fyrir sig. Á deildinni hafa
lengi verið notaðir lyfjavagnar þaðan
sem lyfin er tekin til og gefin við stofu
sjúklings. Það hefur því verið kostur
að þurfa ekki lengur að fara með allar
sjúkraskrárnar af stað heldur einungis
eina fartölvu. Við getum byrjað á því að
kanna líðan sjúklings og gefið honum
svo lyf samkvæmt því, bæði föstu lyfin
og lyf eftir þörfum. Við erum bæði með
lyfin sem við þurfum og aðstöðuna til að
skrá jafnóðum.
Heilsugátt er kerfi sem tekið verður í
notkun fljótlega á Landspítala – háskóla-
Á öndverðum meiði
RAFRÆN LYFJASKRÁNING Á LANDSPÍTALA
Á Landspítala hafa margar deildir tekið í notkun rafrænt lyfjaskráningarkerfi
sem kallað er Therapy. Kerfið hefur nú verið í rekstri í nokkur ár. Almennt virtist
reynsla hjúkrunarfræðinga góð á legudeildum en ekki eru allir sáttir. Nokkrir
hjúkrunarfræðingar gefa hér sitt álit á kerfinu.
sjúkrahúsi. Í því kerfi verður aðgangur
að öllum upplýsingum og skráningu
um sjúklinginn. Kerfið gefur þannig
möguleika á að athuga blóðprufusvör
og aðra skráningu um sjúkling um
leið og lyfin eru gefin. Þegar skráning
hefst í Heilsugátt verður nauðsynlegt
að skrá lyfjagjafir rafrænt. Mistök við
lyfjaskráningu eiga að minnka, þ.e. ekki
er lengur hætta á rangri lyfjagjöf ef skrift
er ólæsileg. Svona tölvukerfi á síðan að
auðvelda allt eftirlit með lyfjagjöfum og
lyfjanotkun.
Kerfið býður upp á tímasparnað við
skráningu. Til dæmis þarf ekki lengur
að skrifa upp lyfjablöð og ekki er lengur
hætta á mistökum við endurritun. Þegar
breyta skal lyfjafyrirmælum eða setja inn
ný lyf þarf læknir ekki lengur að vera á
staðnum og í því felst hagræðing.
Þegar við byrjuðum að nota Therapy
voru lyfjafyrirmæli ekki alltaf fullnægjandi
en það hefur lagast og auðvitað tekur
tíma að sníða vankanta af svona nýjum
kerfum. Sem dæmi þá höfum við ekki
enn fundið leið til að skrá vökvagjafir í æð
á skilvirkan hátt í kerfinu. Við erum enn að
nota vinnublöð. Hjúkrunarfræðingar hafa
ekki lengur kost á að gefa lyfjafyrirmæli
um þau lyf sem hefð og leyfi var fyrir
að gera, t.d. hægðalyf (sorbitol) og
vítamín. Við getum þó skráð stakar
lyfjagjafir sem áður. Gott væri að geta
skráð athugasemdir við fyrirmæli, t.d.
ef hjúkrunarfræðingur á kvöldvakt vill
koma skilaboðum um lyfjabreytingar til
morgunvaktar.
Forsenda þess að hægt sé að nota svona
kerfi er að hver og einn hjúkrunarfræðingur
hafi aðgang að tölvu og að þær virki vel
og vinni hratt. Það kemur fyrir að þær
vinni mjög hægt og það getur verið
streituvaldur, sérstaklega þegar mikið
álag er á deildum. Svo er alltaf fyrir hendi
ákveðinn ótti um að tölvukerfið hrynji.
Það gildir með tölvurnar eins og öll önnur
tæki að það þarf að umgangast þau með
gætni og fara vel með þær, gæta þess
að þær séu í hleðslu nógu lengi o.s.frv.
Þjónusta við kerfið þarf að vera góð og
gott og skilvirkt flæði upplýsinga milli
þeirra sem nota kerfið og þeirra sem geta
gert breytingar á því.
Birna Jónsdóttir og Björk Inga Arnórsdóttir
eru hjúkrunarfræðingar á skurðlækningadeild
12G á Landspítala.
Birna og Björk að undirbúa lyfjagjöf á 12G.