Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2014, Page 2
2 Fréttir Áramótablað 30. desember 2014
Útgáfa DV
næstu daga
Útgáfu DV yfir áramótin verður
þannig háttað að næsta tölublað,
vikublað, kemur út þriðjudaginn
6. janúar. Ekkert helgarblað
kemur því út á fimmtudag, 2.
janúar. Á DV.is verður hins vegar
áfram öflug fréttaþjónusta.
DV óskar lesendum og öðrum
velunnurum DV gleðilegs árs,
með þökk fyrir samfylgdina á ár
inu sem er að líða.
Forsendur bókar Björg-
ólfs Thors trúnaðarmál
n Bókin í aðra prentun í Bretlandi n Fyrirspurnir um þýðingar á önnur tungumál
B
jörgólfur Thor hóf vinnu
við ritun bókarinnar með
Andrew Cave og leitaði í
framhaldinu til nokkurra
útgefenda um útgáfu. Fljót
lega náðust samningar við Profile
Books um útgáfu hennar, en bókin
var þá enn í frumvinnslu. Efni þeirra
samninga er trúnaðarmál, en þeir
eru vart mjög frábrugðnir mörg
um öðrum samningum af svipuð
um toga,“ segir Ragnhildur Sverris
dóttir, talskona Björgólfs Thors
Björgólfssonar athafnamanns, að
spurð um tilurð bókarinnar Billions
to bust and back: How I Made, Lost
and Rebuilt a Fortune sem fjallar
um feril hans í fjárfestingum.
Erfitt að segja til
Bókin kom út í Bretlandi þann 9.
desember síðastliðinn en hafði ver
ið kynnt hér á Íslandi fyrir þann
tíma og var eintökum bókarinn
ar dreift til fjölmiðla af almanna
tengslafyrirtækinu KOM. Bókin er á
ensku og hefur hlotið ágætis dóma
á Íslandi þrátt fyrir að vera sannar
lega útgáfa og uppgjör Björgólfs
Thors á eigin ferli.
Þannig sagði ritdómari vefmið
ilsins Kjarnans, Þórður Snær Júlí
usson, að í bókinni væri dregin upp
stíliseruð mynd af Björgólfi Thor.
„Sjálfsævisaga hans er um margt
stórfróðleg. Hún er afar vel skrifuð
af Andrew Cave og mjög skemmti
leg aflestrar. Ég fékk reyndar aldrei
á tilfinninguna að ég væri í frásögn
sem Björgólfur Thor væri að segja,
heldur einhver stílfærðari og púss
aðri útgáfa af þeim manni sem
hann vill að aðrir haldi að hann sé.“
Ýmsir hafa hins vegar velt því
fyrir sér á hvaða forsendum bókin
er gefin út; hvort um sé að ræða út
gáfu sem fjárfestirinn kostar frá A til
Ö eða hvort forlagið sem gefur hana
út hafi séð möguleika í verkinu og
því ákveðið að gefa það út. Ekki er
hægt að svara þeirri spurningu út
frá því sem Ragnhildur segir.
Fyrsta upplagið er búið
Bókin virðist hins vegar hafa farið
ágætlega í lesendur í Bretlandi ef
marka má viðtökurnar við henni
sem Ragnhildur greinir frá og er
hún til sölu ansi víða. Að sögn
hennar hefur verið ráðist í aðra
prentun á bókinni en fyrsta upp
lagið var 5 þúsund. „Fyrsta upp
lag bókarinnar var 5 þúsund ein
tök. Í síðustu viku var ráðist í aðra
prentun, vegna góðrar eftirspurn
ar þegar kynning á henni var hafin
í Bretlandi. Sú kynning fór 1–2 vik
um síðar af stað en hér á Íslandi,
enda opinber útgáfudagur í UK
9. desember. Bókin var reyndar
komin í einhverjar verslanir fyrir
þann tíma, t.d. í margar verslanir
WHSmith á Heathrow, Gatwick og
á lestarstöðvum í London. Bókin
hefur einnig verið seld í verslunum
Waterstones,“ sagði Ragnhildur í
skriflegu svari í tölvupósti við fyrir
spurn DV um bókina þann 22. des
ember síðastliðinn.
Fyrirspurnir um þýðingar
Ragnhildur segir að verslanir á Ís
landi hafi sjálfar pantað bókina
hingað til lands – Björgólfur Thor
er ekki milliliður í dreifingunni –
og að bókin hafi einnig selst ágæt
lega hér á landi. „Verslanir á Íslandi
hafa sjálfar pantað og flutt bókina
inn, mér er kunnugt um Pennann
Eymundsson og Nettó. Mér sýnist
hún hafa gengið vel, hefur a.m.k.
verið mest selda „erlenda“ bókin
hjá Eymundsson undanfarið.“
Hún segir jafnframt vita til þess
að erlend forlög – ekki í enskumæl
andi löndum – hafi spurst fyrir um
bókina til þýðingar hjá breska for
laginu en íslensk þýðing verður gef
in út í byrjun næsta árs. „Ég hafði af
því spurnir í síðustu viku að fyrir
spurnir hefðu borist til forlagsins
um þýðingar á önnur tungumál,
þau mál skýrast líklega betur í byrj
un næsta árs. Stefnt er að íslenskri
útgáfu snemma næsta árs.“ n
„Efni þeirra samn-
inga er trúnaðar-
mál, en þeir eru vart mjög
frábrugðnir mörgum
öðrum samningum af
svipuðum toga.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
Ágætar viðtökur
Viðtökur bókar
Björgólfs Thors um
fjárfestingar sínar
hafa verið ágætar í
Bretlandi og er búið að
panta aðra prentun.
Bar við
klaufaskap
„Hann hafði samband við okkur
í morgun og baðst afsökunar á
þessu. Hann talaði um að það
hefði verði klaufalegt að fara
svona til hliðar,“ segir Þórsteinn
Ragnarsson, forstjóri kirkjugarða
Reykjavíkurprófastsdæma, en
seinni maðurinn sem ók yfir leiði
í Gufuneskirkjugarðinum og olli
nokkrum skemmdum, gaf sig
fram við lögreglu í kjölfar frétta
flutnings af málinu.
Þórsteinn segir að maðurinn
hafi fyrst gefið sig fram við lög
reglu en svo hringt í sig í morgun
og beðist afsökunar á athæfi
sínu. Eins og fram hefur komið
var tveimur bílum ekið yfir leiði í
kirkjugarðinum á Þorláksmessu
og aðfangadag. Annar ökumað
urinn hefur þegar gefið sig fram,
en mynd náðist af bíl hans og fór
hún víða á Facebook og mörgum
blöskraði athæfið.
Aðspurður hvort aðstæður
hefðu réttlætt aksturslag
mannanna með einhverjum
hætti, svarar Þórsteinn því til að
vegirnir hefðu verið vel ruddir
og færið gott. „Þetta var bara
ákveðið dómgreindarleysi.“
Hann segir að báðir aðilar
viðurkenni að þeir séu bóta
skyldir en það taki nokkurn tíma
að átta sig á því hversu miklar
skemmdirnar eru.
É
g man það ekki alveg í augna
bilkinu. En það bara taxtinn frá
ríkinu. Skólinn hefur heldur
ekki leyfi til að hagnast á leigu á
húsnæði,“ segir Hallur Birkir Reynis
son, skólameistari í Framhaldsskól
anum á Laugum, aðspurður hversu
háa leigu Valgerður Gunnarsdóttir,
þingkona Sjálfstæðisflokksins, sem
er í fimm ára leyfi frá störfum sem
skólameistari á Laugum, greiðir í
leigu á húsi á skólalóðinni sem ætlað
er fyrir starfsmenn skólans.
DV greindi frá því í síðustu viku að
Valgerður leigi húsið áfram á sömu
kjörum og þegar hún var skólameist
ari á Laugum. Hallur Birkir segir að
leiga Valgerðar á húsinu hafi ekki
sætt gagnrýni innan skólans eða í
byggðarlaginu. „Það var í sjálfu sér
voðalega lítil umræða um það eða
gagnrýni. Þetta var bara ákvörðun
sem var tekin og það hefur ekki verið
sett fram nein gagnrýni á þetta.“ Val
gerður er í fimm ára leyfi frá störfum
sem skólameistari og nýtir sér því
fimm ára regluna svokölluðu sem
gildir fyrir starfsmenn hins opinbera
sem setjast á þing.
Á heimasíðu Alþingis kemur fram
að þingmenn utan Reykjavíkurkjör
dæmanna og Suðvesturkjördæmis
fái fasta upphæð í hverjum mánuði
til að standa undir húsnæðis og
dvalarkostnaði í Reykjavík. Búi þing
maður í Reykjavík fái hann sams
konar greiðslu til að standa undir
kostnaði við að halda heimili í kjör
dæmi sínu. Valgerður er skráð til
heimilis í símaskránni bæði í hús
inu á Laugum og í Reykjavík og held
ur hún því heimili á báðum stöðum.
Leigan á húsnæðinu á Laugum er
hins vegar hagstæð þar sem um er að
ræða gæði í eigu ríkisins sem eyrna
merkt eru starfsfólki Framhaldsskól
ans á Laugum. n
ingi@dv.is
Leigir á sama verði
Laugaskóli má ekki hagnast á framleigu
1 matsk. safieða 1 hylki.
F æ s t í a p ó t e k u m , h e i l s u b ú ð u m , F j a r ð a r k a u p o g K r ó n u n n i .
Jafnvægi og vellíðan
lifestream™
nature’s richest superfoods
Samkvæmt reglum Þingmenn sem
starfa hjá hinu opinbera geta nýtt sér fimm
ára regluna svokölluðu og gerir Valgerður
Gunnarsdóttir það í starfi sínu sem skóla-
meistari á Laugum. Mynd BragI Þór JóSEFSSon