Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2014, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2014, Blaðsíða 33
Áramótablað 30. desember 2014 Fréttir 33 117 létust í flugslysi 24. júlí Vél Air Algeria-flugfélagsins í Alsír, sem var á leið frá Burkina Faso til Algeirsborgar, brotlenti í norður- hluta Malí með þeim afleiðingum að 118 manns létust. Um helmingur þeirra sem um borð voru voru fransk- ir ríkisborgarar. Talið er að slæmt veð- ur sé ein helsta orsök slyssins. Banvænn jarðskjálfti 3. ágúst Jarðskjálfti að stærð 6,1 reið yfir í Ludian-sýslu í Yunnan í Kína. Að minnsta kosti 617 fórust í skjálftanum og á þriðja þúsund slös- uðust. Þá gjöreyðilögðust um tólf þúsund heimili á meðan skemmdir urðu á 30 þúsund heimilum til við- bótar. Hershöfðingi myrtur 5. ágúst Banda- rískur hershöfð- ingi, Harold Greene, var skot- inn til bana af af- gönskum hermanni skammt frá Kabúl í Afganistan. Greene varð þar með fyrsti banda- ríski hershöfðinginn til að vera myrtur síðan á tímum Víetnam- stríðsins. Loftárásir á Íslamska ríkið 7. ágúst Liðsmenn Íslamska rík- isins hertóku stærstu stíflu Íraks í borginni Mosul. Um svipað leyti til- kynnti Barack Obama Bandaríkja- forseti að til stæði að ráðast á liðs- menn samtakanna með loftárásum. Þetta þýddi að bandaríski herinn sneri aftur til Íraks í fyrsta skipti frá 2011. Michael Brown skotinn til bana 9. ágúst Mikil reiði braust út í út- hverfi St. Louis í Bandaríkjunum, Ferguson, þegar 18 ára óvopn- aður unglingur, Michael Brown, var skotinn til bana af lögreglu. Blóðug mótmæli brutust út og var táragasi meðal annars beitt gegn mótmæl- endum. Að lokum fór svo að lög- regluþjónninn var ekki ákærður vegna málsins. Sú niðurstaða fékkst í lok nóvember. Íslamska ríkið herti tökin 1.–23. september Í byrjun sept- embermánaðar er talið að um 130 þúsund manns hafi flúið frá Sýr- landi til Tyrklands undan ofsóknum liðsmanna Íslamska ríkisins. Áður hafði um milljón manns flúið frá Sýrlandi yfir landamærin til Tyrk- lands. Baráttan gegn Íslamska rík- inu hélt áfram í september og þann 10. september heimilaði Barack Obama árásir gegn liðsmönnum samtakanna á sýrlenskri grund. Þann 13. september var David Haines, 44 ára breskur hjálparstarfs- maður, tekinn af lífi af samtökun- um með svipuðum hætti og Foley og Sotloff. Þann 23. september hófu Bandaríkjamenn loftárásir á liðs- menn samtakanna í Sýrlandi með aðstoð nokkurra þjóða, þar á með- al Jórdaníu, Sádi-Arabíu og Sam- einuðu arabísku furstadæmunum. Vopnahlé í Úkraínu 5. september Stríðandi fylkingar í Úkraínu féllust á að leggja niður vopn í byrjun septembermánað- ar. Átökin, sem kostað höfðu þús- undir lífið, voru á enda – í bili að minnsta kosti. Meðal skilyrða fyrir vopnahléinu voru meðal annars skipti á föngum beggja fylkinga, úkraínskra stjórnvalda og upp- reisnarmanna í austurhluta Úkraínu. Farþegaþota skotin niður Malaysia Airlines komst aftur í heimsfréttirnar á árinu – og það ekki af góðu. Farþegaþota félagsins, með flugnúmerið MH17, var skotin niður þegar henni var flogið yfir austurhluta Úkraínu, skammt frá landamærum Rússlands. 298 manns voru um borð, flestir Hol- lendingar, og komst enginn lífs af. Átök höfðu verið á þessu svæði og beindust spjótin fljótlega að rússneskum aðskilnaðarsinnum sem þó neituðu aðild að málinu. Talið er mögulegt að aðskilnaðarsinnar hafi talið að um úkraínska herflugvél hafi verið að ræða. Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á ódæðinu en rannsókn er þó enn í gangi. Mótmæli í Hong Kong Íbúar í Hong Kong létu til sín taka þegar kínversk yfirvöld tilkynntu að íbúar fengju að velja sér héraðsstjóra í kosningum sem fram eiga að fara árið 2017. Ástæða reiðinnar var sú að ekki geta allir boðið sig fram því aðeins þeir sem hljóta samþykki kínverska þingsins geta boðið sig fram samkvæmt ákvörðun Kínverja. Alda mótmæla reið yfir í kjölfarið. James Foley myrtur Liðsmenn Íslamska ríkisins tóku bandaríska blaðamanninn James Foley af lífi. Aftökuna tóku þeir upp á myndband og birtu á veraldar- vefnum. Foley, sem starfaði fyrir GlobalPost, hafði verið saknað frá árinu 2011 er hann hvarf sporlaust við vinnu sína í Sýrlandi. Annar blaðamaður, Steven Sotloff, var tekinn af lífi af samtökunum um hálfum mánuði síðar. 31. ágúst 19. ágúst Ebóla breiddist út Ebóla, skæður veirusjúkdómur, náði vopnum sínum árið 2014 og undir lok júlímánaðar var orðið ljóst að sjúkdómurinn gæti ógnað heilsu allra jarðarbúa. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin greindi frá því þann 31. júlí að 672 hefðu látist úr sjúkdómum í Vestur-Afríku og vel á annað þúsund hefðu veikst. Um var að ræða versta faraldur ebólunnar til þessa. Bandarísk yfirvöld ráðlögðu þegnum sínum að ferðast ekki til Gíneu, Síerra Leóne og Líberíu vegna þess hve sjúkdómurinn var útbreiddur þar. Ebólan hélt áfram að láta á sér kræla og varð, þegar upp var staðið, skæðasti ebóla-faraldur sögunnar. Enn hefur ekki tekist að koma böndum á útbreiðslu sjúkdómsins þó mikilvægir sigrar hafi unnist að undanförnu. 31. júlí
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.