Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2014, Blaðsíða 44
Áramótablað 30. desember 201444 Umræða
She Came In Through
the Bathroom Window
Allnokkur sérkennileg
ummæli féllu í tengslum
við Lekamálið á árinu.
Framsóknarmenn voru
áberandi sem og emb-
ættismenn.
Fórnarlambið
Hanna Birna„Þetta er talsvert
ljótur pólitískur
leikur.
n Hanna Birna Kristjánsdóttir, þá
innanríkisráðherra, var þess fullviss
að Lekamálið væri pólitísk aðför
að henni. Þegar að því kom að hún
sagði af sér sagðist hún þó ekki gera
það af pólitískum ástæðum, heldur
persónulegum.
Hjartalæknirinn„Við ætlum að
bjarga þessum
manni.
n Skurð-
læknirinn
Tómas
Guð-
bjarts-
son vakti
mikla
athygli
eftir mynd-
band þar sem
hann með snar-
ræði bjargaði manni sem hafði ver-
ið stunginn í hjartastað.
„Gentleman“„Fyrir réttum 30
árum kynntist ég
þessum heiðursmanni.
Heiðursmaður lesist á
ensku: gentleman!
n Vilhjálmur Bjarna-
son, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, kom
Einari Sveinssyni,
náfrænda Bjarna
Ben, til varnar í grein
í Morgunblaðinu í
desember, vegna við-
skipta með greiðslu-
kortafyrirtækið Borgun.
Að hjálpast að„Ég hjálpa konunni
minni og konan
mín hjálpar mér.
n Svani Guðmundssyni, fram-
kvæmdastjóra Smáíbúða ehf. og
eiginmanni Guðfinnu Jóhönnu
Guðmundsdóttur, borgarfulltrúa
Framsóknarflokksins, fannst ekkert
að því að konan hans hjálpaði hon-
um við að koma gámahúsunum á
framfæri í borginni. „Bíddu, hver
er hagsmunaáreksturinn?“ spurði
hann í samtali við DV.
Engar moskur„Á meðan við erum
með þjóðkirkju
eigum við ekki að út-
hluta lóðum undir hús
eins og moskur eða kirkj-
ur fyrir grísku rétttrúnað-
arkirkjuna.
n Sveinbjörg Birna Sveinbjörns-
dóttir, borgarfulltrúi Framsóknar-
flokksins, gerði múslima og moskur
að kosningamáli í vor.
Skilaðu lyklunum!„Er til of mikils
mælst að Bjarni
skili lyklunum nú?
n Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrver-
andi forsætisráðherra, rifjaði upp
ummæli Bjarna Benediktssonar,
sem hann lét falla þegar ríkisstjórn
hennar mældist lágt í skoðana-
könnun. Þá sagði hann: „Skilaðu
lyklunum, Jóhanna.“
Aðþrengdur lögreglustjóri„She Came In
Through the
Bathroom Window.
n Stefán Eiríksson, fyrr-
verandi lögreglustjóri
á höfuðborgarsvæð-
inu, deildi þessu lagi
Bítlanna þegar hann
hætti í embætti eft-
ir afskipti Hönnu
Birnu Kristjáns-
dóttur innanríkis-
ráðherra af rannsókn
Lekamálsins. Ljóst þótti
að hann vísaði til ráðherr-
ans með lagavali sínu.
Upplýsingafulltrúinn„Þarf ég að
svara þér á
einhverju öðru
tungumáli?
n Jóhannes Tóm-
asson, upplýsinga-
fulltrúi innanríkis-
ráðuneytisins, vildi
ekki ræða efnisatriði
Lekamálsins þegar DV
leitaði eftir því.
Óttasleginn
Guðni„Ég óttað-
ist um líf
þessara kvenna sem
voru hér í framboði. Ég
hef ekki séð ljótari um-
sagnir og svívirðingar
í netheimum nokkurn
tímann.
n Guðni Ágústsson sagðist eftir
kosningar hafa óttast um líf Svein-
bjargar B. Sveinbjörnsdóttur og
Guðfinnu Jóhönnu Guðmunds-
dóttur, borgarfulltrúa Fram-
sóknarflokks í Reykjavík, vegna
moskumálsins.
Stakk upp í Vigdísi„Þegiðu háttvirtur
þingmaður
Vigdís Hauksdóttir.
n Steingrímur J. Sigfús-
son, þingmaður Vinstri
grænna, fékk nóg af
frammíköllum framsóknar-
mannsins í þingsal.
Bólgur formannsins„Vegna frétta
kvöldsins er sjálf-
sagt að greina frá því að
eini þrýstingurinn sem ég
finn fyrir er í hnénu.
n Bjarni Benediktsson fjármála-
ráðherra gerði grín að meintum
innanflokksþrýstingi um ríkisstjórn-
arslit í sumar.
Draumaland
bankastjórans„Við værum stödd í
2007 að eilífu.
n Sigurjón Þ. Árnason, fyrrver-
andi bankastjóri Landsbankans, um
þær upplýsingar sem Ari Salmivo-
uri taldi sig hafa um að seðlabanki
Finnlands væri að fara að koma Ís-
landi til bjargar.
Fermingarstelpurnar„Dóttir mín er
fermingarstelpa
og hún spilar
körfubolta
og ég full-
yrði að
hún hef-
ur aldrei
grenjað eins
og þú á körfu-
boltavellinum.
n Grímur Atlason kom fermingar-
stelpum til varnar eftir ummæli
körfuknattleiksmannsins Ólafs
Ólafssonar, sem sagði að leikmenn
liðs síns hefðu spilað eins og „litlar
körfuboltastelpur á túr“.
Ummæli ársins 2014