Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2014, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2014, Blaðsíða 4
4 Fréttir Áramótablað 30. desember 2014 Glæsileg búð full af áramótavörum Opið til kl. 17:00 á gamlársdag Fa x a F e n i 11, R e y k jav í k - S. 534- 0534 - w w w.pa R t y b u d i n. i S Auglýsir eftir lífeyrissjóði Helgi Vilhjálmsson, oftast kennd­ ur við Góu, auglýsir eftir lífeyris­ sjóði sem hefur áhuga á að nýta sér heimild sem sett var í lög árið 2011 og fjárfesta í húsnæði sem hentar öldruðum. Helgi hefur í fjölda ára gagnrýnt lífeyrissjóða­ kerfi Íslands og markmið þess í þágu þeirra sem eiga lífeyrissjóð­ ina. „Það vantar töluvert upp á að aldraðir njóti húsnæðis sem uppfyllir þarfir þeirra hvað varðar einkalíf. Það hefur sýnt sig að fjár­ festingar í fasteignum sem slíkum eru meðal öruggustu fjárfestinga sem völ er á. Sá lífeyrissjóður sem ræðst í slíkt verkefni ætti því að ná nokkrum markmiðum í einu; arð­ bærri fjárfestingu, uppfylla þörf hjá sjóðsfélögum og taka stórt skref í átt að betra lífi fyrir alla landsmenn,“ segir Helgi. Keppast við að hirða sorp Sorphirða Reykjavíkurborgar hef­ ur keppst við að hirða sorp í þeim hverfum sem ekki náðist að klára fyrir jól. Starfsfólk sorphirðunnar vinnur við erfiðar aðstæður því færð er víða þung vegna hálku og klakaruðninga. Fólk er beðið um að sjá til þess að aðgengi að sorpílátum sé sem allra best þannig að sorphirða gangi eins vel og mögulegt er. „Það er mjög mikil vægt að fólk hjálpi okkur við hreinsunina með því að hreinsa vel frá tunnunum þannig að hægt sé að tæma þær hratt og vel,“ seg­ ir Eygerður Margrétardóttir hjá sorphirðunni. „Það flýtir fyrir í svona ástandi.“ I nnanríkisráðuneytið hefur beðið fórnarlömb lekamálsins afsök­ unar á því trúnaðarbroti sem þau urðu fyrir af hálfu ráðuneytis­ ins þegar Gísli Freyr Valdórsson, þáverandi aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, lak viðkvæm­ um persónuupplýsingum um þau á valda fjölmiðla. Afsökunarbeiðn­ in barst um miðjan desember og var undirrituð af Hönnu Birnu sjálfri og Ragnhildi Hjaltadóttur ráðuneytis­ stjóra. Þetta staðfesta þau Katrín Odds­ dóttir, lögmaður Evelyn Glory Joseph, Stefán Karl Kristjánsson, lög­ maður Tonys Omos, og Helga Vala Helgadóttir, lögmaður ónafngreindr­ ar íslenskrar konu, í samtali við DV. Athygli vekur að afsökunarbeiðn­ in er dagsett sama dag og Hanna Birna sagði af sér ráðherraembætti eða þann 21. nóvember. Hún barst lögmönnunum þó ekki fyrr enn um miðjan desembermánuð eða eftir að Ólöf Nordal hafði tekið við sem inn­ anríkisráðherra. Síðbúin afsökunarbeiðni Sem fyrr segir sagði Hanna Birna af sér sem innanríkisráðherra þann 21. nóvember síðastliðinn, nákvæmlega ári eftir að DV fjallaði fyrst um leka persónuupplýsinga úr innanríkis­ ráðuneytinu. Ráðherra og aðstoðar­ menn þrættu lengi fyrir að gögnun­ um hefði verið lekið úr ráðuneytinu en Hanna Birna varði Gísla Frey til dæmis eftir að hann var ákærður og sagði engar sannanir liggja fyrir um að hann hefði framið glæpinn. Þann 11. nóvember síðastliðinn játaði Gísli Freyr svo að hafa lek­ ið skjalinu en þá höfðu komið fram frekari sönnunargögn sem sýndu eindregið fram á sekt hans. Lögmenn þeirra sem nafngreindir voru í minn­ isblaði innanríkisráðuneytisins hafa margoft gagnrýnt það að ráðuneytið hafi aldrei séð ástæðu til að biðja hlutaðeigandi afsökunar. Með afsök­ unarbeiðninni sem barst rúmu ári eftir að málið kom upp er loks kom­ in fram formleg viðurkenning á því frá ráðuneytinu að brotið hafi verið á umræddum einstaklingum. Brotið harmað Líkt og komið hefur fram undir­ rituðu þær Hanna Birna og Ragn­ hildur Hjaltadóttir ráðuneytis­ stjóri afsökunarbeiðnina en hún hljómar svo: „Dómur hefur geng­ ið í sakamáli fyrrverandi aðstoðar­ manns innanríkisráðherra sem viðurkennt hefur að hafa í nóvem­ ber 2013 afhent tveimur fjölmiðlum skjal úr ráðuneytinu sem innihélt meðal annars persónuupplýsingar um þig. Þessi afhending aðstoðar­ mannsins á skjalinu var alvarlegt lögbrot. Í ráðuneytinu er það harm­ að að persónuupplýsingar um þig hafi með þessu trúnaðarbroti að­ stoðarmannsins komist í hend­ ur óviðkomandi aðila. Innanríkis­ ráðuneytið biður þig afsökunar á þessum trúnaðarbresti.“ Innanríkisráðuneytið hefur enn ekki beðið Evelyn Glory Joseph af­ sökunar á þeim dylgjum sem birt­ ar voru um hana á vef ráðuneyt­ isins síðastliðið sumar en þar var hún sögð vera „eftirlýstur hælisleit­ andi“ án þess að ásakanirnar væru útskýrðar frekar. Katrín Oddsdóttir, lögmaður Evelyn, sagði í samtali við fréttastofu RÚV að ráðuneytið gæti verið skaðabótaskylt vegna þessara ærumeiðandi aðdróttana í hennar garð. Í kjölfarið voru ummælin um Evelyn fjarlægð án þess þó að hún væri beðin afsökunar á þeim. Á götunni DV greindi fyrr í mánuðinum frá því að Tony héldi til á lestarstöð í Mílanó á Ítalíu þar sem hann betlar sér til matar. „Ég veit ekki hvað ég hef gert til þess að eiga þessa framkomu stjórn­ valda skilið,“ sagði Tony í símavið­ tali við DV þann 12. desember síð­ astliðinn. „Hvers vegna hata þau mig svona mikið?“ spurði hann enn fremur. Evelyn býr nú í Reykjanes­ bæ ásamt tíu mánaða syni þeirra Tony en í viðtali sem Kvennablaðið birti við hana á aðfangadag jóla kom fram að það lægi sérstaklega þungt á henni að Tony skyldi missa af fyrstu jólum sonar þeirra. „Ég veit að hann er dapur aleinn þarna úti í kuldanum og án fjöl­ skyldunnar. Hann ætti að vera hérna heima með okkur, fjölskyldunni sinni. Þetta eru fyrstu jólin hans Osa­ yantin og hann ætti að upplifa þau með bæði mömmu sinni og pabba,“ sagði Evelyn og tók fram að besta jólagjöfin hefði komið með pósti frá Tony, en hann keypti litla gjöf handa syni sínum til þess að gleðja hann um jólin. Stefán Karl Kristjánsson, lög­ maður Tonys, staðfestir í samtali við DV að nýlegum úrskurði Héraðs­ dóms Reykjavíkur í máli Tonys gegn Útlendingastofnun og íslenska ríkinu verði áfrýjað til Hæstaréttar. n Hanna Birna bað Tony afsökunar n Fórnarlömbum lekamálsins barst afsökunarbeiðni eftir að Ólöf Nordal tók við Jón Bjarki Magnússon jonbjarki@dv.is „Innanríkisráðu- neytið biður þig afsökunar á þessum trúnaðarbresti „Dómur hefur geng- ið í sakamáli fyrr- verandi aðstoðarmanns innanríkisráðherra sem viðurkennt hefur að hafa í nóvember 2013 afhent tveimur fjölmiðlum skjal úr ráðuneytinu sem innihélt meðal annars persónu- upplýsingar um þig. Undirritaði afsökunarbeiðni Hanna Birna undirritaði afsökunarbeiðni sem fórn- arlömbum lekamálsins barst um miðjan desember eða eftir að Ólöf Nordal hafði tekið við ráðherraembætti. Mynd SigtryggUr Ari Fengu afsökunarbeiðni Hanna Birna og aðstoðarmenn hennar þrættu lengi vel fyrir að persónuupplýsingum hefði verið lekið úr innan- ríkisráðuneytinu til fjölmiðla. Tony og Evelyn fengu nýlega afsökunarbeiðni frá ráðuneytinu vegna trúnaðarbrotsins. Mynd SigtryggUr Ari Óvissa með ráðherraefni Þingmaður Reykvíkinga líklega ráðherra Ö ll kjördæmin utan Reykjavíkur eiga ráðherra úr okkar röðum. Það er mín skoðun að næsti ráð­ herra eigi að koma úr Reykja­ víkurkjördæmunum,“ segir Sigrún Magnúsdóttir, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, í samtali við DV. Síðdegis í gær hafði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, ekki óskað eftir því að boðað yrði til þingflokksfundar til að ræða skipun ráðherra á vegum flokksins í embætti umhverfis­ og auð­ lindaráðherra. Sigurður Ingi Jóhanns­ son hefur frá myndun núverandi rík­ isstjórnar gegnt því embætti samhliða störfum sínum sem landbúnaðar­ og sjávarútvegsráðherra. Ráðherrar ríkisstjórnarinnar eru níu, fimm sjálfstæðismenn og fjórir framsóknarmenn, en frá upphafi hef­ ur verið gert ráð fyrir tíu ráðherrum, fimm frá hvorum stjórnarflokkanna. Þar með yrðu þeir tveimur fleiri en í síðustu ríkistjórn sem beitti sér fyrir sameiningu og fækkun ráðneyta úr tólf í átta á kjörtímabilinu. Sigrún bendir einnig á að komi nýr ráðherra úr þingflokki Framsóknar­ flokksins verði sá sami að segja sig úr fastanefndum Alþingis og aðrir þing­ menn taki þá við. Það geti því verið jafn skynsamlegt að skipa nýjan ráð­ herra þegar þing kemur saman 20. janúar næstkomandi. Þingmenn Framsóknarflokksins í Reykjavík eru fjórir. Í suðurkjördæm­ inu eru það Frosti Sigurjónsson og Sigrún Magnúsdóttir. Í norðurkjör­ dæminu Vigdís Hauksdóttir og Karl Garðarsson. Líklegt verður að telja að fyrir valinu verði einn þessara fjögurra þingmanna. Verði einnig gætt að kynjakvóta í ráðherrahópnum hljóta Vigdís og Sig­ rún að vera efstar á blaði. Þess má geta að jafnvel þótt kona verði fyrir valinu hallar á konur innan ríkisstjórnarinn­ ar. Þær ná engu að síður 40 prósenta kynjakvótareglunni og yrðu fjórar af tíu ráðherrum. Geta má þess að jafnt var með kynjum í síðustu ríkisstjórn. n ráðherra úr reykjavík Sigrún Magnús- dóttir þingflokksformaður telur að komið sé að Reykjavík við val á ráðherra úr röðum framsóknarmanna. Mynd SigtryggUr Ari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.