Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2014, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2014, Blaðsíða 31
Áramótablað 30. desember 2014 Fréttir 31 Átök, öfgasamtök, mannrán og slys rússneska íbúa hér- aðsins fyrir úkraínsk- um þjóðernissinnum. Tveimur dögum síðar, 3. mars, var greint frá því að Rússar hefðu fulla stjórn á skagan- um sem féll illa í kramið hjá bandamönnum Úkraínu og andstæðingum Rússa, þar á með- al Bandaríkjamönnum. Á blaða- mannafundi 4. mars sagði Pútín að Rússar áskildu sér rétt til að grípa til vopna ef ráðist yrði að rússneskum borgurum á svæðinu. John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, ferðaðist til Úkraínu í mánuðin- um til að sýna stjórnvöldum þar stuðning. Boðaði hann að viðskipta- þvingunum yrði beitt gegn Rúss- um. Það hafði lítið að segja því í atkvæðagreiðslu sem haldin var í héraðinu 16. mars samþykktu 97% íbúa að Krímskagi skyldi aðskil- inn Úkraínu. Í kjölfarið fór þingið á Krímskaga fram á það við Rússa að skaginn lyti stjórn þeirra. Þann 24. mars drógu Úkraínumenn hersveit- ir sínar frá Krímskaga og þremur dögum síðar, 27. mars, samþykkti allsherjarráð Sameinuðu þjóð- anna ályktun þess efnis að aðgerðir Rússa á Krímskaga væru ólöglegar, þar á meðal kosningarnar sem fram fóru nokkrum dögum fyrr. Und- ir lok marsmánaðar veitti Alþjóða- gjaldeyrissjóðurinn Úkraínumönn- um neyðarlán upp á 18 milljarða Bandaríkjadala. 29 létust í hnífaárás 1. mars Tuttugu og níu manns voru myrtir þegar hópur manna réðst á umkomulausa vegfarendur á lestarstöð í borginni Kungming í suðvesturhluta Kína. 130 særðust í árásinni sem framin var af aðskiln- aðarsinnum frá Xinjiang-héraði í norðvesturhluta Kína. Í september voru fjórir árásarmannanna dæmd- ir til dauða og sá fimmti var dæmd- ur í lífstíðarfangelsi. Hinir létust þegar lögregla skaut þá til bana á vettvangi árásarinnar. Flugvélin hvarf sporlaust 8. mars Flugvél malasíska flug- félagsins Mala- ysian Airlines, MH 370, hvarf sporlaust með 239 manns innanborðs. Þetta er eitt dularfyllsta atvik flug- sögunnar. Samband rofnaði við vél- ina milli Malasíu og Víetnam og var ýmsum kenningum varpað fram um hvarf vélarinnar sem hvorki tangur né tetur hefur fundist af þrátt fyrir umfangsmikla leit. Þann 24. mars tilkynnti forsætisráðherra Malasíu, Najib Razak, að vélin hefði farið í sjóinn í Indlandshafi en hún var á leið til Peking í Kína. Mörgum spurningum er enn ósvarað varð- andi hvarf MH 370, meðal annars hvers vegna vélin fór í sjóinn í Ind- landshafi og, umfram allt, hvers vegna hún hvarf. 529 dæmdir til dauða 24. mars Dómstóll í Matay í Egyptalandi dæmdi hvorki fleiri né færri en 529 íslamista til dauða vegna þátttöku þeirra í blóðugum mótmælum í ágústmánuði 2013. Réttarhöldin stóðu yfir í aðeins tvær klukkustundir og voru 400 hinna ákærðu ekki viðstaddir réttarhöldin. Mannréttindasamtök um allan heim fordæmdu dauðadómana. Um mánuði síðar var 492 dómum breytt í lífstíðarfangelsi. Þar með er ekki öll sagan sögð því hundruð manna, að- allega stuðningsmenn Bræðralags múslima, voru dæmd til dauða síðar á árinu. Pistorius gráti næst 7. apríl Suðurafríski spretthlauparinn Oscar Pistorius kom fyrir dóm í Pretóríu en hann varð unnustu sinni, hollensku fyrirsætunni Reevu Steenkamp, að bana í febrúar 2013. Pistorius var gráti næst þegar hann lýsti atburðarásinni þetta örlagaríka kvöld. Hann hélt því fram að hann hafi talið að um umbrotsþjóf væri að ræða. Pistorius var sakfelldur fyr- ir manndráp af gáleysi í september síðastliðnum og í október var hann dæmdur í fimm ára fangelsi. Stærstu kosn- ingar sögunnar 7. apríl Indverjar gengu til þing- kosninga í aprílmánuði. Þó að þær hafi byrjað 7. apríl stóðu þær yfir í rúman mánuð. Kostnaðurinn við þær er talinn hafa numið 5 millj- örðum Bandaríkjadala en talið er að aðeins bandarísku forsetakosn- ingarnar 2012 hafi verið dýrari. 814 milljónir manna voru á kjör- skrá sem þýðir að um var að ræða stærstu kosningar sögunnar. Skólastúlkum rænt í Nígeríu 14. apríl 280 stúlkum var rænt úr skóla í norðausturhluta Níger- íu og beindust spjótin strax að íslamistahreyf- ingunni Boko Haram. Talið er að markmið sam- takanna hafi verið að selja stúlkurn- ar í vændi. Yfirvöld í Nígeríu voru gagnrýnd harðlega fyrir vanmátt sinn í að tryggja öryggi stúlknanna og annarra íbúa svæða sem samtök- in hafa herjað á. Hörmulegt ferjuslys 16. apríl Ferja með 459 manns innanborðs, aðallega mennta- skólanemendur, sökk und- an suðurströnd Suður-Kóreu. Af þeim létust 304. Þetta var eitt versta ferjuslys í sögu Suð- ur-Kóreu og beindist rannsókn slyssins meðal annars að skipstjór- anum, Lee Jun-seok, sem forðaði sér frá borði þegar neyðin var sem mest. Þá var hann ábyrgur fyrir farmi ferjunnar, sem hvolfdi henni þegar hún tók beygju. Í nóvember var Lee dæmdur í 36 ára fangelsi vegna slyssins. Áfram átök í Úkraínu 1.–15. maí Þó að Rússar hafi inn- limað Krímskaga í marsmánuði hélt ólgan milli Úkraínu og Rúss- lands áfram. Úkraínsk yfirvöld létu til skarar skríða gegn rússneskum þjóðernissinnum í borginni Slovi- ansk í austurhluta Úkraínu þann 2. maí. Rússar svöruðu með því að skjóta niður tvær úkraínskar þyrlur. Átökin bárust víðar, meðal annars til borgarinnar Odessa við Svarta- haf þar sem á annan tug manna lét lífið í átökum úkraínska hersins og rússneskra aðskilnaðarsinna. Hóp- ur Rússa vildi endurtaka leikinn frá því á Krímskaga og fá sjálfstæði frá Úkraínu í austurhluta landsins. Vladimír Pútín ákvað í kjölfarið að draga 40 þúsund manna herlið sitt til baka frá landamærum Úkraínu og hvatti um leið aðgerðarsinna til að láta af áætlunum sínum um sjálfstæði. Aðskilnaðar- sinnar í austurhluta Úkraínu létu sér ekki segjast og héldu eins konar sýndarkosningar sem áttu að sýna vilja íbúa til að segja skilið við Úkraínu. Vladimír Pútín Rússlandsforseti ákvað að að- hafast ekki meira. Banvæn aurskriða 2. maí Um 2.100 manns létust í gríðarstórri aurskriðu sem féll í af- ganska þorpinu Abi Barak. Um 300 heimili grófust undir aur og leðju sem sums staðar var allt að 30 metr- ar á dýpt. Um var að ræða einar verstu náttúruhamfarir sem riðið hafa yfir í Afganistan á 21. öldinni. Poroshenko kjörinn forseti 25. maí Úkraínski auðkýfingurinn Petro Poroshen- ko var kjörinn forseti Úkraínu með yfirburð- um. Hann hlaut yfir 50 prósent at- kvæða og því var ekki þörf á annarri umferð kosninganna. Poroshenko, sem kallaður hefur verið Súkkulaði- konungurinn, hagnaðist á sælgætis- framleiðslu. Hans beið það erfiða verkefni að reisa sundraða Úkra- ínu upp úr öskustónni. Aðeins degi eftir kosningarnar reyndu Banvænt slys á Everest Sextán sjerpar létu lífið þegar snjóflóð féll í hlíðum Everest. Sjerparnir voru að koma fyrir köðlum fyrir erlenda fjallgöngumenn þegar slysið varð í um 5.700 metra hæð. Hvorki fyrr né síðar hafa jafn margir farist í einu snjóflóði á þessu hæsta fjalli heims. 18. apríl
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.