Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2014, Page 11
Fréttir 11Áramótablað 30. desember 2014
2. maí
Úrskurðir Hæstaréttar og héraðsdóms
birtast á vef dómstólanna og staðfesta
að ráðherra og aðstoðarmenn fullyrtu
gegn betri vitund að engum trúnað-
argögnum um hælisleitandann Tony
Omos hefði verið lekið úr innanríkis-
ráðuneytinu. Lögreglan telur einsýnt
að skjalið hafi borist þaðan og að því
hafi verið lekið til að sverta mannorð
hælisleitandans.
6. maí
Hart er sótt að Hönnu Birnu á Alþingi en
hún segir málið vera ljótan pólitískan
leik. „Ég hef aldrei logið að þingheimi,“
segir ráðherrann.
18. júní
Upplýsingar úr úrskurðum Héraðsdóms
Reykjavíkur og Hæstaréttar varpa
enn frekara ljósi á málið. Fjallað er um
„starfsmann b“ sem er með réttarstöðu
grunaðs manns, en ráðuneytið tekur til
varna fyrir hann á vef sínum og gagnrýn-
ir málatilbúnað lögreglu harðlega.
20. júní
DV greinir frá því að báðir aðstoðarmenn
ráðherra séu með réttarstöðu grunaðs
manns. Ranglega er fullyrt í DV að Þórey
Vilhjálmsdóttir sé sá starfsmaður ráðu-
neytisins sem kallaður er „starfsmaður
b“ í greinargerð lögreglu, en á hádegi er
þetta leiðrétt og upplýst að Gísli Freyr,
hinn aðstoðarmaðurinn, sé maðurinn.
1. júlí
DV greinir frá því að Hanna Birna hafi
skammað undirmenn sína á starfs-
mannafundi þar sem lekamálið bar
á góma. Hafi hún kallað eftir meiri
liðsanda og sett út á að starfsmenn
væru „með fýlusvip“.
3. júlí
Katrín Oddsdóttir, lögmaður Evelyn
Glory Joseph, gagnrýnir innanríkisráðu-
neytið harðlega vegna tilkynningar
sem birtist á vef þess nokkru áður. Þar
var Evelyn ranglega sögð „eftirlýst“. Í
kjölfarið breytir innanríkisráðuneytið
tilkynningu sinni en biður Evelyn ekki
afsökunar.
24. júlí
Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglu-
stjóri á Suðurnesjum, er færð til að
frumkvæði Hönnu Birnu og skipuð
lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu án
auglýsingar.
29. júlí
DV greinir frá því að Stefán Eiríksson,
lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu,
hafi hætt störfum eftir stöðugan
þrýsting og afskipti Hönnu Birnu af
störfum lögreglunnar í tengslum við
lekamálið. Sigurður Líndal lagapró-
fessor segir réttast að Hanna Birna víki.
30. júlí
Umboðsmaður Alþingis ræðir við
ríkissaksóknara og lögreglustjórann
um málið. Í kjölfarið sendir hann
Hönnu Birnu bréf og biður hana um
upplýsingar um samskipti hennar við
lögreglustjóra í tengslum við rannsókn
lekamálsins.
1. ágúst
Hanna Birna viðurkennir í svarbréfi til
umboðsmanns Alþingis að hafa rætt
við lögreglustjóra um rannsóknina. Hún
gagnrýnir seinagang við rannsóknina
en svarar ekki hvenær fundirnir með
Stefáni hafi farið fram, hvert tilefni
þeirra hafi verið og hver hafi átt frum-
kvæði að þeim.
2. ágúst
Stefán Eiríksson staðfestir opinberlega
að Hanna Birna hafi gagnrýnt störf
lögreglu við rannsókn innanríkisráðu-
neytisins og að hann hafi komið þeirri
gagnrýni á framfæri við ríkissak-
sóknara. Valtýr Sigurðsson, fyrrverandi
ríkissaksóknari, segir síðustu forvöð
fyrir Hönnu Birnu að víkja tímabundið
úr ráðherraembætti. Í kvöldfréttatím-
um RÚV og Stöðvar 2 segist Hanna
Birna vera fórnarlamb „ljóts pólitísks
leiks“.
3. ágúst
Hanna Birna fullyrðir í viðtali á
Sprengisandi að skjalið um nígerísku
hælisleitendurna hafi „dúkkað upp“
á seinni stigum lekamálsins og ekki
fundist þegar sett var af stað athugun
í innanríkisráðuneytinu með hjálp
rekstrarfélags Stjórnarráðsins. Á
þessum tímapunkti hafði þegar komið
fram í dómskjölum að Hönnu Birnu, að-
stoðarmönnum hennar og ráðuneytis-
stjóra barst skjalið í tölvupósti þann 19.
nóvember.
6. ágúst
Umboðsmaður
Alþingis sendir
Hönnu Birnu
aftur bréf og
ítrekar spurn-
ingar sínar
þar sem fyrri
svör þóttu ekki
fullnægjandi. Ráð-
herra svaraði því til að
mynda ekki hvenær fundir hennar og
Stefáns fóru fram, hvert tilefni þeirra
var og hver átti frumkvæði að þeim.
15. ágúst
Ríkissaksóknari ákveður að gefa út
ákæru á hendur Gísla Frey Valdórs-
syni, þáverandi aðstoðarmanni Hönnu
Birnu, fyrir að leka trúnaðarupplýs-
ingum um nígeríska hælisleitendur til
fjölmiðla. Hann segir ákæruna valda
honum og hans nánustu „sárum von-
brigðum“ enda hafi ítarleg rannsókn
lögreglu ekkert leitt í ljós. Hanna
Birna leysir Gísla Frey frá störfum og
óskar þess að málefni dómstóla og
ákæruvalds verði færð til annars ráð-
herra í ríkisstjórn á meðan dómsmálið
stendur yfir.
8. ágúst
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, segist í samtali við
DV trúa Hönnu Birnu þótt orð hennar
gangi í berhögg við það sem fram
kom í dómskjölum lekamálsins. Þá
viðurkenndi Bjarni að hann hefði ekki
lesið dómskjölin.
16. ágúst
Hanna Birna segist í samtali við Vísi trúa því að Gísli Freyr sé saklaus. „Það liggja
engar sannanir fyrir um að hann hafi gert þetta,“ sagði ráðherra og bætti við að hún
hefði „engar forsendur til annars“ en að trúa Gísla.
26. ágúst
Umboðsmaður Alþingis hefur frumkvæðisathugun á samskiptum innanríkisráð-
herra og lögreglustjóra. Í þriðja bréfi hans til Hönnu Birnu er vitnað til orða Stefáns
Eiríkssonar um að ráðherra hafi „ýtt á eftir“ lögreglunni, sett á hana tímapressu,
kvartað undan umfangi rannsóknarinnar, deilt á einstakar rannsóknarathafnir
lögreglu, beðið um að flýta yfirheyrslum og lýst því yfir að rannsaka þyrfti rannsókn
lögreglu og ríkissaksóknara. Sama dag tekur Sigmundur Davíð Gunnlaugsson við
dómsmálunum af Hönnu Birnu.
16. september
Gísli Freyr lýsir yfir sakleysi sínu við þingfestingu dómsmálsins á hendur honum í
Héraðsdómi Reykjavíkur. Í greinargerð sinni gagnrýnir Gísli lögreglu og ákæruvald
fyrir að hafa ekki rannsakað ferðir ræstingafólks og annarra.
1. október
Munnlegur málflutningur um frávísunarkröfu Gísla Freys vegna lekamálsins fer
fram í Héraðsdómi Reykjavíkur.
9. október
Þórey Vilhjálmsdóttir, aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjáns-
dóttur, stefnir blaðamönnum DV og krefst ýtrustu refsingar
fyrir að hafa ranglega kallað hana „starfsmann b“ í frétt sem
birtist í DV þann 20. júní og var leiðrétt samdægurs.
10. október
Frávísunarkröfu
Gísla Freys er
hafnað í Héraðs-
dómi Reykjavíkur.
11. nóvember
Aðalmeðferð í máli Embættis ríkissaksóknara gegn
Gísla Frey er frestað eftir að ríkissaksóknari leggur fram
ný gögn í málinu. Síðar um daginn játar Gísli Freyr á sig
glæpinn og er leystur alfarið frá störfum. Hanna Birna
fullyrðir að hún hafi ekki vitað um sekt hans fyrr en
þennan dag. Gísli er gestur Kastljóssins um kvöldið og
segist hafa verið einn að verki.
12. nóvember
Aðalmeðferð í lekamálinu fer fram og vegna játningar Gísla eru engin vitni leidd fyrir
dóminn. Saksóknari greinir frá því að Gísli hafi játað á sig glæpinn eftir að ný gögn
komu fram sem vörpuðu ljósi á sekt hans. Þau gögn fundust í tölvu Gísla, en Hanna
Birna hafði lagst sérstaklega gegn því að lögreglan tæki af honum tölvuna og rann-
sakaði hana. Saksóknari veitir fjölmiðlum viðtal og segir ljóst að lekamálið hafi ekki
verið „ljótur pólitískur leikur“. Þá hafi gagnrýni ráðherra á haldlagningu tölvunnar
hans Gísla verið tilhæfulaus.
13. nóvember
Lagt er blátt bann við því í innanríkisráðuneytinu
að starfsmenn þess tali við fjölmiðla meðan
upplýsingafulltrúi er í fríi.
17. nóvember
Krafist er afsagnar
ráðherra á fjölmennum
kröfufundi á Austurvelli.
18. nóvember
DV greinir frá því
að Sigríður Björk
Guðjónsdóttir, fyrr-
verandi lögreglustjóri
á Suðurnesjum
og núverandi
lögreglustjóri á höf-
uðborgarsvæðinu,
hafi átt í ítrekuðum
samskiptum við Gísla
Frey um málefni
Tonys Omos þann 20.
nóvember. Sigríður
hafi hringt í hann úr óskráðum síma að morgni dags,
hann hafi hringt til baka og fengið rannsóknargögn
frá lögreglunni á Suðurnesjum send í tölvupósti.
19. nóvember
Kastljós greinir frá því
að Hanna Birna hafi
kvartað undan aðför
lögreglu þegar hún var
yfirheyrð vegna leka-
málsins. Fram kemur að
athugun rekstrarfélags
Stjórnarráðsins hafi
hvorki verið ítarleg
né umfangsmikil, en
einungis hafi
verið leitað
í „subject“i
tölvupósts
með leitar-
orðunum Tony
Omos og Evelyn Glory
Joseph.
20. nóvember
DV og Kastljós greina frá því að framkvæmdastjóri rekstrarfélags Stjórnarráðsins
hafi sent ráðuneytisstjóra tölvupóst og kvartað undan rangfærslum Þóreyjar
Vilhjálmsdóttur um athugun rekstrarfélagsins. Þá hafi rekstrarfélagið boðist til að
framkvæma ítarlegri rannsókn á lekanum í samráði við Persónuvernd en ráðuneytið
ekki þegið það. Persónuvernd kallar eftir upplýsingum um samskipti Sigríðar Bjarkar
og Gísla Freys.
21. nóvember
Hanna Birna Kristjánsdóttir segir af sér
sem innanríkisráðherra. Hún er sjötti
ráðherra fullveldissögunnar sem víkur
úr embætti vegna umdeildra embætt-
isfærslna.
24. nóvember
Greint er frá því að Hanna Birna sé
farin í frí til útlanda. Þórey Vilhjálms-
dóttir gerir slíkt hið sama. Stjórn
Lögreglustjórafélagsins sendir út
yfirlýsingu til varnar Sigríði Björk.
25. nóvember
DV greinir frá því að Þórey og Gísli hafi
tvisvar talað saman í síma að morgni
dags þann 20. nóvember árið 2013. Þá
hafi Þórey rætt við blaðamann 365
miðla en Gísli talað við fréttamann
RÚV og ritstjóra Morgunblaðsins
þennan sama morgun. Símasamskipti
Þóreyjar og Gísla áttu sér stað um
sama leyti og þau ræddu við fjölmiðla.
Þannig þurfti Gísli til að mynda að
slíta símtali við Þóreyju til að svara
fréttamanni RÚV en Þórey svaraði
blaðamanni 365 miðla tveimur
sekúndum síðar. Allir þessir miðlar
fengu minnisblað innanríkisráðuneyt-
isins í hendur dagana 19. og/eða 20.
nóvember.
28. nóvember
DV greinir frá því að Hanna Birna
hafi fengið sérmeðferð við rannsókn
lekamálsins og símanotkun hennar
hafi ekki verið rannsökuð. Vararíkis-
saksóknari segir í tölvupósti til DV að
rannsakendur hafi ekki viljað ganga
nærri stöðu ráðherra.
2. desember
DV greinir frá því að yfirlýsing Lög-
reglustjórafélagsins til varnar Sigríði
Björk hafi verið samin í vinnutölvu
nánasta samstarfsmanns hennar til
margra ára, Öldu Hrannar Jóhanns-
dóttur, setts aðstoðarlögreglustjóra
á höfuðborgarsvæðinu. Alda Hrönn
er ekki í stjórn Lögreglustjórafélags-
ins. Hún og formaður félagsins gefa
þá skýringu að stjórnin hafi fengið
tölvuna lánaða.
3. desember
Sigríður Björk afhendir Persónuvernd
athugasemdir vegna beiðni um gögn er
varða samskipti hennar við Gísla Frey.
Þá sendir núverandi lögreglustjóri á
Suðurnesjum Persónuvernd greinar-
gerð um rannsókn lögreglunnar á Tony
Omos í tölvupósti þótt beðið hefði
verið um að upplýsingarnar bærust í
ábyrgðarpósti eða með boðsendingu.
4. desember
Ólöf Nordal,
lögfræðingur og
fyrrverandi vara-
formaður Sjálf-
stæðisflokksins, er
skipuð innanríkisráð-
herra. Gengið er framhjá
þeim þingmönnum flokksins sem
sóst höfðu eftir embættinu. Hanna
Birna lætur ekki sjá sig á ríkisráðs-
fundi á Bessastöðum.
12. desember
Útlendingastofnun og íslenska ríkið
er sýknað af kröfu Tony Omos um
ógildingu ákvörðunar Útlendinga-
stofnunar um að taka hælisumsókn
hans ekki til efnislegrar meðferðar.
Tony heldur til á götum Mílanó og
betlar sér til matar.
30. desember
DV greinir frá því að innanríkis-
ráðuneytið hafi beðið fórnarlömb
lekamálsins afsökunar.