Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2014, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2014, Blaðsíða 12
Áramótablað 30. desember 201412 Fréttir „Það er einhver að reyna að nauðga mér“ 7. janúar Brynja Norðfjörð greindi frá upplifun sinni af því þegar nauðgunarlyf var sett í drykk hennar þegar hún var að skemmta sér í mið­ borginni. Fjölmargar kon­ ur stigu fram í kjölfarið og sögðu af upplifun sinni af því að verða fyrir því að vera byrluð ólyfjan. Hanna Birna kærð til lögreglu 10. janúar DV greindi frá því að Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra hefði verið kærð til lögreglunnar á höf­ uðborgarsvæðinu vegna trúnaðarbrests í ráðuneytinu gagnvart hælisleitand­ anum Tony Omos. Blaðamenn DV hittu Hönnu Birnu fyrir utan Stjórn­ arráðið og leituðu eftir viðbrögðum frá henni vegna kærunnar, en ítrekuðum beiðnum um viðtal hafði verið hafnað. Þegar Hanna Birna steig út úr stjórnarráðshúsinu sagð­ ist hún til í stutt viðtal, en þegar hún áttaði sig á að um blaðamenn DV var að ræða og spurningarnar sneru að lekamálinu, gekk hún hröðum skrefum að ráðherrabílnum og sagði: „Nei, ég þarf ekkert að tjá mig um það.“ Ráðuneytið tilkynnti sama dag að frekari fyrirspurnum DV eða annarra fjölmiðla yrði ekki svarað. Ríkissaksóknari greindi svo frá því að hann hefði málið til skoðunar. Alvarlegt bílslys í Norðurárdal 12. janúar Slysið varð á Vesturlandsvegi í Norðurárdal við Fornahvamm sunnu­ daginn 12. janúar. Í slysinu lést ung stúlka, Anna Jóna Sigurbjörns­ dóttir. Kærasti hennar, Skarphéðinn Andri Kristjánsson, slasaðist lífshættulega og lést á gjör­ gæsludeild Landspítalans miðviku­ daginn 29. janúar. Foreldrar Skarp­ héðins ákváðu að virða óskir sonar síns, sem vildi vera líffæragjafi. Vöktu þau, með ákvörðun sinni, marga til umhugsunar um líffæra­ gjafir. Björn Bragi og RÚV biðjast afsökunar 18. janúar Björn Bragi Arnarson og íþróttadeild RÚV sendu frá sér afsökunarbeiðni vegna ummæla Björns Braga í hálfleik þegar Ísland keppti við Austurríki á Evrópumeist­ aramótinu í handbolta. „Íslenska landsliðið er eins og þýskir nasistar árið 1938, Við erum að slátra Austur­ ríkismönnum,“ sagði Björn Bragi, en stuttu eftir leikinn höfðu bæði hann og RÚV sent frá sér yfirlýsingar þar sem ummælin voru hörmuð og sögð vera „afar ósmekkleg.“ Eitt stærsta gjaldþrotið 21. janúar Guðmundur A. Birgisson, Guðmundur á Núpum, lýsti yfir gjald­ þroti. Hann var umsvifamik­ ill í fjárfestingum fyrir efnahags­ hrunið haustið 2008 og var áberandi athafnamaður. Skuldir Guðmundar námu 3,8 milljörðum króna. Magnús nýr útvarpsstjóri 26. janúar Stjórn Ríkis­ útvarpsins réð Magnús Geir Þórðarson sem útvarpsstjóra, en forveri hans, Páll Magnús­ son, sagði starfi sínu lausu í desember 2013. Magnús Geir kom úr Borgarleikhúsinu þar sem hann hafði verið leikhússtjóri og í hans stað kom Kristín Eysteins­ dóttir. Lést við ísklifur 4. febrúar Þjóðverji á sextugs­ aldri lést eftir fall við ísklifur í ís­ helli við mynni Veðurárdals við Breiðamerkurjökul. Maðurinn var í ísklifurferð með ferðaþjónustuaðila. Mikill viðbúnaður björgunarsveita var við íshellinn og tóku um fjörutíu aðilar þátt í björgunaraðgerðum. Hjördís handtekin 5. febrúar Hjördís Svan Aðalheiðar­ dóttir var hand­ tekin af dönskum lögreglumönnum og flutt til Danmerk­ ur. Hjördís var færð fyrir dóm í Horsens, en hún hafði verið ákærð fyrir mannrán. Hún hefur átt í ára­ langri forræðisdeilu við danskan barnsföður sinn og flúði með börn­ in til Íslands í ágúst 2013. Siggi hakkari dæmdur fyrir misnotkun 6. febrúar Hæsti­ réttur staðfesti dóm héraðsdóms sem kvað á um að Sig­ urður Ingi Þórðar­ son, einnig þekktur sem Siggi hakkari, ætti að sæta átta mánaða fangelsisvistar fyrir að hafa misnotað sautján ára pilt. Með blekkingum tældi Sigurður fórnar­ lamb sitt til annarra kynferðismaka en samræðis í geymslu á heimili hans. Ríkissaksóknari vísar lekamálinu til lögreglu 7. febrúar Ríkis­ saksóknari framsendi kæru vegna trúnaðar­ brests gagnvart hælisleitendun­ um Tony Omos og Evelyn Joseph til lög­ reglunnar. „Með bréfi dagsettu í dag hefur ríkissaksóknari framsent kæruna, ásamt gögnum sem henni fylgdu og gögnum sem borist hafa frá innanríkis­ ráðuneytinu, til viðeigandi meðferðar við embætti lög­ reglustjórans á höfuðborgar­ svæðinu,“ sagði í yfirlýsingu ríkis­ saksóknara. AfsAgnir, mótmæli og verkföll Innlendur fréttaannáll 2014 Ákærð vegna mótmæla í Gálgahrauni Níu manns, tveir karlar og sjö konur, voru ákærð fyrir að óhlýðnast fyrirmælum lögreglu þegar þau mótmæltu vegagerð í Gálgahrauni hinn 21. október 2013. Tugir manns voru handteknir í hrauninu og færðir í einangrun, en einungis hluti hópsins var ákærður. 16. janúar 3. febrúar Fæddi dreng Evelyn Glory Joseph, hælisleitandi frá Nígeríu, fæddi son, en faðir drengsins er Tony Omos. Persónuupplýsingum um þau Tony og Evelyn, sem sagðar voru eiga uppruna sinn í innanríkisráðuneytinu, var lekið til fjölmiðla í nóvember 2013. Stuttu síðar var Tony vísað úr landi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.