Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2014, Síða 14
Áramótablað 30. desember 201414 Fréttir
Gleðilegt ár...
...með kryddum
og kryddblöndum
frá Pottagöldrum
Þrettán ára
hringdi inn
sprengjuhótun
12. febrúar Þrettán ára gamall
drengur hafði samband við flug
málayfirvöld og sagði að sprengju
væri að finna í flugvél WOW air. Vél
in var á leiðinni frá Gatwick í Lund
únum með 145 farþega sem öllum
var boðin áfallahjálp. Mikill við
búnaður var vegna málsins og var
prakkarastriki drengsins tekið mjög
alvarlega.
Skrítið að leyfa
hvalabjór
12. febrúar Neytendasamtökin voru
afar undrandi vegna ákvörðunar
Sigurðar Inga Jóhannssonar, sjávar
útvegs og landbúnaðarráðherra,
að taka fram fyrir hendur Heilbrigð
iseftirlits Vesturlands sem bannaði
sölu á hvalabjór Steðja og þótti það
undarlegt enda var á meðal hrá
efna hvalamjöl sem er allt að fimm
ára gamalt og er ekki til manneld
is. Ráðherra heimilaði söluna en í
október kom svo loks í ljós að ekki
var heimilt að selja hvalabjór eftir
allt saman.
Viðtalið sem allir
töluðu um
16. febrúar Við
tal Gísla Marteins
Baldurssonar, í
þættinum Sunnu
dagsmorgunn, við
Sigmund Davíð
Gunnlaugsson for
sætisráðherra vakti mikla
athygli og tókust bæði þáttastjórn
andinn og viðmælandinn á í þættin
um. Þegar viðtalinu var lokið og
Gísli Marteinn hafði þakkað Sig
mundi Davíð fyrir komuna gat for
sætisráðherrann ekki á sér setið og
skaut á Gísla. „Þú stóðst þig ágæt
lega í að sanna að þú værir ekki að
tala fyrir ríkisstjórnina,“ sagði Sig
mundur við furðu lostinn Gísla sem
lét nægja að segja: „Takk.“
Kvenfyrirlitning
í MORFÍS
16.febrúar „Kvenfyrirlitning/
kynferðisleg áreitni/kynbund
ið ofbeldi gagnvart konum er
ósanngjarnt, óvelkomið og alltaf
móðgandi. Þetta er mjög alvar
legt samfélagsmein sem okkur ber
að uppræta og ég tek umræðunni
fagnandi,“ sagði Tinna Rut Bjarna
dóttir Isebarn og mótmælti harð
lega því sem hún sagði vera rótgróna
kvenfyrirlitningu í MORFÍS, mælsku
og rökræðukeppni framhaldsskól
anna. Áður hafði Eyrún Björg Guð
mundsdóttir lýst sinni reynslu af
slíkri framkomu, en upp úr sauð eftir
keppni Menntaskólans á Ísafirði við
Menntaskólann á Akur eyri. Eyrún
tilheyrði MA og hafði einn meðlimur
liðs MÍ haft uppi ljót orð um Eyrúnu
í keppninni. Fleiri konur stigu fram í
kjölfarið og lýstu reynslu sinni
Vilja slíta
viðræðum
21. febrúar Þings
ályktunartillaga um
að draga til baka um
sókn Íslands um aðild að
Evrópusambandinu var sett fram.
Mikil umræða varð um tillöguna í
samfélaginu sem skipti sér í tvær
fylkingar, með og á móti. Gríðarleg
ur fjöldi undirskrifta safnaðist til að
mótmæla aðgerðum ríkisstjórnar
innar og vikulegir mótmælafundir
voru haldnir í nokkurn tíma. Ríkis
stjórnin lét þó ekki segjast og hélt til
streitu umdeildri tillögunni.
Barkaígræðslu-
þegi látinn
27. febrúar Andemariam Teklesen
bet Beyene er látinn. Hann starfaði
hér á landi við Jarðhitaskóla háskóla
Sameinuðu þjóðanna og stundaði
nám í jarðeðlisfræði við Háskóla Ís
lands. Hann greindist með alvarlegt
krabbamein í barka. Þrátt fyrir erf
ið veikindi stundaði Andemariam
námið eftir megni og hlaut læknis
meðferð hér á landi og síðar í Sví
þjóð þar sem græddur var í hann
plastbarki og var þar með brotið
blað í sögu læknavísindanna. En
þetta var í fyrsta sinn sem slíkt líf
færi, framleitt á rannsóknarstofu en
innsíað með stofnfrumum líffæra
þegans sjálfs, var grætt í mann
eskju.
Tekin fyrir
af Hildi
27. febrúar Tónlistar
konan Hafdís Huld
Þrastar dóttir leitaði til
lögreglu vegna grófra
ummæla sem Hildur Lilli
endahl lét falla nafnlaust um hana á
árunum 2009 til 2010, á vefsíðunni
Bland.is. Ummælin voru öll látin
falla undir notendanafninu Nöttz,
sem er notendanafn Hildar. Kastljós
greindi frá málinu sem vakti mikla
athygli. Hildur sagði eiginmann sinn
bera ábyrgð á hluta ummælanna og
sagði þau hjónin skammast sín og
báðust þau fyrirgefningar.
Fólk ældi
vegna ofáts
4. mars Ikea ákvað að hætta að
bjóða upp á íslenska þjóðarrétt
inn, saltkjöt og baunir, á tvær krón
ur á sprengidag. Ástæðan var sú
að ofát var farið að vera vandamál
á veitingahúsi IKEA á sprengidag.
„Fólk át allt of mikið og var orðið
veikt hérna – það ældu nokkrir.
En það er engin stemmning í því.
Aukningin var orðin svo mikil að
við náðum ekki að halda staðnum
hreinum,“ sagði Þórarinn Ævarsson,
framkvæmdastjóri Ikea, í samtali
við DV.
Þriggja ára
numin á brott
7. mars Lögregla fékk tilkynningu
um að þriggja ára stúlka hefði verið
numin á brott af mexíkóskum föð
ur hennar á Álftanesi snemma
morguns. Stúlkan var á leið í
skólann ásamt móður sinni í
Garðabænum þegar faðir henn
ar kom aðvífandi og hrifsaði
hana með sér. Hafði hann kom
ið gagngert til landsins til að sækja
dóttur sína en foreldrar telpunn
ar höfðu nýverið slitið samvistum.
Maðurinn skilaði stúlkunni síðar
sama dag.
Framhaldsskóla-
kennari dæmdur
fyrir misnotkun
og vændiskaup
7. mars Hæstiréttur dæmdi fram
haldsskólakennara á sjötugsaldri í
ársfangelsi fyrir kynferðisbrot gegn
pilti sem var þá fjórtán ára.
Dómurinn var skilorðsbundinn
Evonia eykur hárvöxt með því að
veita hárrótinni næringu og styrk.
Evonia er hlaðin bætiefnum sem
næra hárið og gera það gróskumeira.
Bætiefni ársins í Finnlandi 2012.
Evonia
www.birkiaska.is
Sigmundur veitti fimm milljóna styrk með SMS Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráð-
herra og formaður Framsóknarflokksins, veitti Fljótsdalshéraði fimm milljóna króna styrk úr ríkiskassanum með SMS-skilaboðum til forseta
bæjarstjórnarinnar, Stefáns Boga Sveinssonar. Styrkurinn, sem var fyrir veghleðslu, vakti athygli, enda hafði engin umsókn verið lögð inn
fyrir honum. Fimm milljónirnar sem Fljótsdalshérað fékk eru hluti af 97 milljónum sem runnu til kjördæmis Sigmundar Davíðs í umræddum
styrkveitingum. Ríkisendurskoðun var ósátt við þessi vinnubrögð og segir að með þessu hafi jafnræðis ekki verið gætt.
4. mars