Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2014, Page 17
Áramótablað 30. desember 2014 Fréttir 17
Brátt fer daginn að lengja á ný og við fögnum birtunni sem fylgir hækkandi sól. Við hjá RARIK viljum þakka
ykkur fyrir viðskiptin á árinu sem nú er senn liðið og sendum bestu óskir um gleðileg jól og heillarríkt
komandi ár.
Getur þú hugsað þér
daglegt líf án rafmagns?
12 ára kveikti í
Rimaskóla
29. apríl Það var tólf ára drengur
sem var að fikta með eld sem kveikti
bál í Rimaskóla þann 28. apríl sl.
Færanlegar kennslustofur brunnu
til kaldra kola en sem betur fer voru
þær mannlausar og höfðu ekki verið
í notkun um nokkurt skeið. Engan
sakaði.
Vann 84,5 milljónir
6. maí Einstæð móðir sem er 75
prósent öryrki eftir slys reyndist eiga
báða vinningsmiðana í lottóinu eitt
laugardagskvöld í byrjun maí. Sam
tals hreppti hún því 84,5 milljónir í
sinn hlut. Hún ku hafa haldið fyrir
andlitið þegar starfsmenn Íslenskr
ar getspár sögðu henni frá vinn
ingnum, svo mikið kom á hana við
fréttirnar.
Kári safnar sýnum
8. maí Íslensk erfða
greining sendi út
tól til sýnatöku til
valins úrtaks Ís
lendinga og bauð
Landsbjörg, Lands
sambandi íslenskra
björgunarsveita, að nýta
verkefnið til fjáröflunar. Fyrir hvert
sýni sem björgunarsveitarmenn
sóttu fékk Landsbjörg greiðslu.
Sýnatakan var afar umdeild og voru
ekki allir á eitt sáttir um siðfræðileg
álitaefni sem tengdust söfnuninni.
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar
erfðagreiningar, stóð keikur og sagði
sýnin vera samanburðarsýni fyrir
gagnagrunn fyrirtækisins.
Netníðingar
óska eftir nauðg-
unarmyndbandi
14. maí Myndband sem
talið var sýna sext
án ára stúlku beitta
kynferðisofbeldi fór í
dreifingu á vefnum. Á
síðu þar sem netníð
ingar óska eftir nektar
myndum og hefndarklámi var
óskað eftir myndbandinu og veltu
níðingarnir fyrir sér hvernig mætti
nálgast það.
Skrifuðu undir
20. maí Grunnskólakennar
ar skrifuðu undir nýjan kjara
samning eftir verkfallsaðgerðir
sem fólu í sér vinnustöðvun.
Hallbjörn
dæmdur
20. maí Hall
björn Hjartarson,
79 ára tónlistar
maður, var dæmdur í
þriggja ára fangelsi fyrir kynferðis
brot gegn tveimur barnabörnum
sínum. Dómari málsins kvað á um
sérstaka refsiþyngingu vegna bréfs
sem Hallbjörn skrifaði til annars
brotaþola og dóttur sinnar þar sem
hann reyndi að koma sökinni yfir á
barnabarn sitt.
Hjúkrunar-
fræðingur
ákærður
22. maí Ríkis
saksóknari
birti ákæru á
hendur hjúkr
unarfræðingi og
Landspítala. Eru
hjúkrunarfræðingur og Landspít
ali ákærðir fyrir manndráp af gá
leysi og hjúkrunarfræðingurinn að
auki ákærður fyrir brot á hjúkr
unarlögum með því að hafa í starfi
sínu á kvöldvakt, sem hann vann í
beinu framhaldi af dagvakt, á gjör
gæsludeild Landspítala við Hring
braut hinn 3. október 2012, láðst
að tæma loft úr kraga barkaraufar
rennu þegar hann tók sjúkling úr
öndunarvél og setti talventil á bark
araufarrennuna. Aðalmeðferð máls
ins mun fara fram á næsta ári.
„Við förum
ekkert að sofa“
1. júní Hún
gekk afskap
lega illa taln
ing atkvæða í
Reykjavík eftir
borgarstjórnar
kosningarnar. Það
voru um 40 atkvæði
sem erfiðlega gekk að gera grein fyr
ir og komu niðurstöðurnar ekki fyrr
en undir morgun daginn eftir.
Sveinbjörg vill ekki að múslimar fái lóð Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir greindi frá því að hún vildi að
lóð, sem Félagi múslima var úthlutað, yrði skilað. Vildi hún að lóðaúthlutunin yrði afturkölluð. „[...] fólkið í borginni, borgarbúar í Reykjavík,
hafi um þetta mál að segja,“ sagði Sveinbjörg. Málið dró mikinn dilk á eftir sér og segja má að það hafi verið mál málanna í borgarstjórnar-
kosningabaráttunni. Sveinbjörg þakkaði síðar kosningasigri Framsóknar og flugvallavina þessum ummælum.
23. maí