Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2014, Qupperneq 18
Áramótablað 30. desember 201418 Fréttir
Allir sýknaðir í
Aurum-málinu
5. júní Lárus Welding,
Magnús Arnar Arn-
grímsson, Jón Ásgeir
Jóhannesson og
Bjarni Jóhannesson
voru allir sýknaðir í
Aurum-málinu svo-
kallaða. Málið snerist um
sex milljarða króna lánveitingu út
úr Glitni í maí 2008 og tengdist við-
skiptum með skartgripaverslana-
keðjuna Aurum.
Ákærður fyrir
tölvupóst
5. júní Íslenskur
karlmaður á sjö-
tugsaldri var
ákærður fyrir brot
á lögum um fjar-
skipti vegna þess að
hann áframsendi tölvupóst frá Jóni
Ásgeiri Jóhannessyni fjárfesti sem
hann fékk sendan fyrir slysni síðla
árs 2012. Tölvupósturinn fjallaði um
fjármögnun á rekstri Iceland-keðj-
unnar á Íslandi.
Lést eftir fall úr
rússíbana
7. júní Andri Freyr Sveinsson lést
í skelfilegu slysi í rússíbana í
Terra Mítica-skemmtigarðin-
um á Benidorm á Spáni. „Hann
var einn af þeim flottustu,“ sagði
móðir Andra í viðtali við DV.
Nýr meirihluti
11. júní Dagur B. Egg-
ertsson, Samfylkingu,
Sigurður Björn Blön-
dal, Bjartri framtíð,
Sóley Tómasdóttir,
Vinstri grænum og
Halldór Auðar Svansson,
Pírötum, kynntu samstarfs-
sáttmálann sem flokkarnir höfðu
gert með sér fyrir komandi kjör-
tímabil borgarstjórnar í Reykjavík.
Dagur er borgarstjóri en Sóley for-
seti borgarstjórnar.
Hundsar Ísland
11. júní Íslendingum var ekki boð-
ið að taka þátt í ráðstefnunni „Our
Ocean" eða „Hafið okkar“ sem utan-
ríkisráðuneyti Bandaríkjanna stóð
fyrir í Washington í júní. Ástæðan
var sögð vera hvalveiðar Íslendinga.
Harmleikur við
Bleiksárgljúfur
13. júní Tvær
konur létust
við Bleiksár-
gljúfur í
Fljótshlíð.
Konurnar, þær
Pino Becerra
og Ásta Stefáns-
dóttir, höfðu dvalið í sumarbústað
nærri gljúfrinu og hófst leit að þeim
þegar þær skiluðu sér ekki til vinnu
eftir hvítasunnuhelgina. Lík Pino
fannst í gljúfrinu daginn sem leit
hófst, en Ásta fannst ekki fyrr en
15. júlí eftir gríðarlega umfangs-
mikla leit.
Skýrslan um
dauða Sævars
13. júní Skýrsla sem beðið hafði
verið eftir í rúmt hálft ár og sneri
að andláti Sævars Rafns Jónasson-
ar í Hraunbæ í desember 2013 kom
út. Þar var greint frá því að ríkissak-
sóknari gerði engar athugasemdir
við aðgerðir lögreglunnar í Hraun-
bæ þar sem Sævar Rafn var felld-
ur af vopnuðum lögreglumönnum.
Fjölskylda Sævars gerði margar
athugasemdir við skýrsluna og
endurtók að kerfið hefði brugðist
Sævari sem glímdi við erfiðan geð-
sjúkdóm.
Flytur Fiskistofu
30. júní Starfsmenn
Fiskistofu lýstu yfir mik-
illi reiði vegna áforma
sjávarútvegsráðherra,
Sigurðar Inga Jóhann-
essonar, með flutn-
inga stofnunarinnar frá
Hafnarfirði og á Akureyri.
„Falsað“ bréf
12. júlí Morgunblaðið
hefur beðið lesend-
ur sína afsökunar á
rangfærslum sem
birtust í Reykjavíkur-
bréfi, pistli ritstjóra.
Af einhverjum ástæð-
um taldi ritstjóri Morgun-
blaðsins að sendandinn væri
Tryggvi Gunnarsson, umboðsmað-
ur Alþingis og fyrrverandi nefndar-
maður í rannsóknarnefnd Alþingis
um bankahrunið. Fjallað var um
bréfið með þeim hætti í Reykja-
víkurbréfi Morgunblaðsins. Reyndin
var sú að um allt annan Tryggva var
að ræða.
Fundu
Nathan
23. júlí Kennslanefnd ríkis-
lögreglustjóra staðfesti að lík sem
fannst við Háöldu suðvestur af
Landmannalaugum væri af banda-
rískum ríkisborgara, Nathan Samu-
el Foley-Mendelssohn. Ekkert hafði
spurst til hans frá 10. september
2013 er hann var staddur í Land-
mannalaugum.
Hætti vegna
afskipta Hönnu
Birnu af lögreglu-
rannsókn
29. júlí DV
greindi frá
því að Stefán
Eiríksson, lög-
reglustjóri á
höfuðborgar-
svæðinu, hefði
hætt störfum
vegna undir-
liggjandi hót-
ana og ítrekaðra
afskipta Hönnu
Birnu Kristjáns-
dóttur innanríkis-
ráðherra af störfum lög-
reglunnar í tengslum við lekamálið.
Hann tók við starfi á velferðarsviði
Reykjavíkurborgar en í hans stað
hjá lögreglunni kom Sigríður
Björk Guðjónsdóttir. DV fjall-
aði ítarlega um málið, en Stef-
án vildi sjálfur ekki tjá sig um
það heldur vitnaði til texta í
bítlalagi og sagði: „She came in
through the bathroom window.“
Í kjölfarið kallaði umboðsmað-
ur Alþingis eftir svörum frá Hönnu
Birnu Kristjánsdóttur innanríkis-
ráðherra, Stefáni Eiríkssyni og Sig-
ríði Friðjónsdóttur, ríkissaksóknara.
Niðurstöðu í frumkvæðisathugun
umboðsmanns er að vænta árið
2015. Stefán staðfesti síðar að
Hanna Birna hefði haft afskipti af
rannsókninni og kvartað yfir því
að hún tæki of langan tíma.
Gísli Freyr ákærð-
ur – Hanna Birna
hættir sem dóms-
málaráðherra
15. ágúst Greint
var frá því að ríkis-
saksóknari hygð-
ist ákæra Gísla
Frey Valdórsson,
pólitískt skipaðan
aðstoðarmann inn-
anríkisráðherra, fyrir að
leka trúnaðarupplýsingum um ní-
geríska hælisleitendur til fjölmiðla.
Ráðherra leysti Gísla frá störfum,
en að hennar sögn hafði hann tjáð
henni að hann væri saklaus. Hanna
Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráð-
herra, óskaði eftir því við forsætis-
ráðherra að þau málefni sem undir
hana heyra og hafa með dóms-
mál og ákæruvald að gera færist
tímabundið til annars ráðherra. Sig-
mundur Davíð Gunnlaugsson for-
sætisráðherra tók við embættinu af
Hönnu Birnu.
Ákærður fyrir
uppflettingar
19. ágúst Lög-
reglumaðurinn
Gunnar Schev-
ing Thorsteins-
son var ákærður
fyrir óeðlileg-
ur uppflettingar í
LÖKE-kerfinu annars
vegar og hins vegar sakaður um
að hafa sent félaga sínum upplýs-
ingar úr kerfinu í gegnum Facebook.
Alls fletti Gunnar upp 45 konum á
tímabilinu 7. október 2007 til 16.
nóvember 2013 sem ríkissaksóknari
segir að hafi ekki tengst starfi hans
sem lögregluþjóns og hann hafi því
misnotað stöðu sína til að afla sér
upplýsinga um konurnar.
Mikael rekinn
25. ágúst Mikael
Torfasyni var sagt
upp störfum sem
aðalritstjóra 365
miðla. Kristín
Þorsteinsdóttir,
sem áður gegndi
stöðu útgefanda 365
miðla, var sett í hans stað. Ólafur
Stephensen, ritstjóri Fréttablaðsins,
sagði upp stuttu síðar, en áður en
hann gerði það skrifaði hann grein
þar sem hann fjallaði meðal annars
um eigendur fjölmiðla sem réðu
til sín starfsfólk sem væri náið og
handgengið eigendum.
Stakk
kærustu sína
28. ágúst Daníel Andri Kristjáns-
son réðst með fólskulegum hætti
að 22 ára gamalli sambýliskonu
sinni með hnífi. Daníel var í október
dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir
árásina.
Vill 10 milljónir
frá DV vegna
viðtals
2. september
Lögmaðurinn
Vilhjálmur Hans
Vilhjálmsson
hefur fyrir hönd
lögmannsins Sveins
Andra Sveinssonar krafið Reyni
Traustason, ritstjóra DV, Viktoríu G.
Hermannsdóttur, blaðamann DV
og DV. ehf. um tíu milljónir króna
vegna viðtals við stúlku sem
kveðst vera barnsmóðir Sveins
Rjúkandi rúst Húsakynni efnalaugarinnar Fannar og BT/Griffils voru gjörónýt
eftir stórbruna í Skeifunni í Reykjavík. Miklar skemmdir urðu á húsum og lausafé í brunanum
en illa gekk að eiga við hann. Fjöldi fólks fór til að fylgjast með aðgerðum slökkviliðsins og
björgunarstörfum og truflaði slökkvistarf fyrir vikið.
6. júní
KR flugeldaR
KR Heimilinu Frostaskjóli
Opið til kl.22 í dag
Og til kl.16 á gamlársdag