Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2014, Side 20
Áramótablað 30. desember 201420 Fréttir
Andra. Viðtalið birtist í DV í ágúst
síðastliðnum. Var Sveinn Andri
ósáttur við umfjöllun um „viðkvæm
einkamálefni hans.“ Ritstjórn hafn-
aði kröfu Sveins Andra og lögmanns
hans.
Sendiherrann
sem hvarf
5. september
Ma Jisheng,
sendiherra Kína
á Íslandi, er
horfinn. Í ágúst-
mánuði hafði
ekkert til hans
spurst í rúma sjö
mánuði, og enn er á huldu hvert
hann fór. Ma fór af landi brott þann
23. janúar síðastliðinn en hugð-
ist snúa aftur í mars. Ekkert varð af
heimkomu og engin svör fengust
frá kínverska sendiráðinu um afdrif
hans. Kínverskir fjölmiðlar greindu
svo frá því nokkru síðar að Ma Jis-
heng hefði verið handtekinn, grun-
aður um að hafa lekið upplýsingum
til stjórnvalda í Japan.
Nýr ritstjóri DV
7. september Hallgrímur Thor-
steinsson var ráðinn ritstjóri DV og
Reynir Traustason leystur undan
starfsskyldu sinni.
Hækka virðis-
aukaskatt á mat-
væli og bækur
9. september
Lægra þrep virðis-
aukaskatts hækk-
ar úr 7 prósentum
upp í 12 prósent
samkvæmt fjár-
lagafrumvarpi ársins
2015 samkvæmt nýju
fjárlagafrumvarpi. Þessi hækkun var
svo samþykkt í desember þegar fjár-
lagafrumvarpið var afgreitt.
Viðurkenndi
að hafa
„danglað“ í barn
19. september Umboðsmaður
barna vakti athygli á því að ríkis-
saksóknari hefði ekki ákært í máli
er varðaði starfsmann leikskólans
101 Reykjavík. Einn starfsmaður þar
hafði viðurkennt að hafa „danglað“
í barnið vegna þess að það var
óþekkt. Sagði umboðsmaður að
bæði ríkislögreglustjóri og lögreglan
á höfuðborgarsvæðinu hefðu ekki
túlkað íslensk lög rétt við rannsókn
málsins.
Kveikti á
neyðarblysi í
kennslustund
22. september Nemandi á yngsta
stigi í Brekkubæjarskóla á Akra-
nesi kveikti í neyðarblysi í miðri
kennslustund. Drengurinn slasaðist
mikið og samnemendum hans var
mjög brugðið.
Leitað að
Christian
23. september
Lögreglan á Vest-
fjörðum, björgunar-
sveitir og Landhelgisgæslan gerðu
ítarlega leit að Christian Mathias
Markus við Látrabjarg án árangurs.
Leit stóð nokkuð lengi yfir en enn er
Christian ófundinn.
Mjólkursamsalan
sektuð
23. september
Samkeppnis-
eftirlitið komst að
þeirri niðurstöðu
að Mjólkursam-
salan beitti smærri
keppinauta samkeppnishamlandi
mismunun með því að selja þeim
hrámjólk á 17% hærra verði en fyr-
irtæki sem eru tengd MS greiddu.
Er það mat Samkeppniseftirlitsins
að verðmunurinn hafi verið til þess
fallinn að veikja Mjólkurbúið Kú og
stuðla að sölu á fyrirtækinu Mjólku
til Kaupfélags Skagfirðinga á árinu
2009. Málið vakti mikla athygli og
margir sniðgengu vörur MS vikurn-
ar á eftir.
Fannst látin
28. september Lögregla var kölluð
að heimili ungra hjóna í Stelkshól-
um í Breiðholti. Þar komu lögreglu-
menn að ungri móður látinni. Eigin-
maður konunnar, sem er 28 ára að
aldri, var í haldi lögreglu grunaður
um að hafa orðið henni að bana og
síðan vistaður á geðdeild.
Sagði sig
frá málinu
2. október Ríkissak-
sóknari sendi bréf til
dómsmálaráðherra þar
sem hann greindi frá því að hann
væri ekki hæfur til að meta endur-
upptöku á Guðmundar- og Geir-
finnsmálunum sökum skyldleika við
rannsóknaraðila. Örn Höskuldsson,
fulltrúi yfirsakadómara, vann að
rannsókn beggja málanna og stýrði
rannsókn þeirra framan af en hann
er kvæntur móðursystur Sigríðar.
Erla Bolladóttir taldi einkennilegt
hversu sein Sigríður var til að segja
sig frá málinu, en það hafði verið á
borði hennar í langan tíma.
Fer í strætó í
vinnuna
7. október
Sigurður Ingi
Jóhannsson,
sjávarútvegs-
og landbúnað-
arráðherra, var
ósáttur við um-
fjöllun Kastljóss um
tengsl og stjórnarstörf Ólafs Frið-
rikssonar, skrifstofustjóra sjávarút-
vegs- og landbúnaðarráðuneytis.
Ólafur, sem leiðir fyrir hönd ráð-
herra störf nefnda um undanþágur
frá tollum og verðlagningu mjólkur,
hefur setið árum saman í stjórnum
fjölda fyrirtækja með stjórnend-
um Kaupfélags Skagfirðinga, sem er
annar eigandi Mjólkursamsölunn-
ar. „Hann hefur verið í 20 ár í ráðu-
neytinu. Mér fannst, ef ég á að segja
alveg eins og er, Helgi, að Kastljós
hefði farið út á nýjar brautir í gær-
kvöldi með því að ráðast á embætt-
ismann sem kemur með strætó á
hverjum degi í vinnuna,“ sagði Sig-
urður Ingi.
Fangi grunaður
um smygl
9. október Fangi
á Kvíabryggju
grunaður
um aðild að
skipulagningu,
fjármögnun og
innflutningi á
fíkniefnum til lands-
ins. Maðurinn er 27 ára og við hús-
leit sem tengdist rannsókn málsins
lagði lögregla hald á hálft kíló af am-
fetamíni, MDMA, stera og umtals-
verða peningafjárhæð.
ISNIC
endurgreiðir
Ríki íslam
13. október ISNIC, sem sér um
skráningu léna með landsléninu
.is, kemur til með að endurgreiða
forsvarsmönnum vefsíðunnar
Khilafah.is, skráningargjaldið sem
greitt var við skráningu síðunnar.
Vefsíðunni, sem var frétta- og upp-
lýsingasíða fyrir Ríki íslam, var lok-
að af ISNIC. Það var í fyrsta skipti í
sögu internets á Íslandi sem fyrir-
tækið grípur til þessa ráðstafana.
Kæra leka
16. október Eimskipafélagið kærði
leka á gögnum úr samkeppnis-
eftirlitinu til lögreglunnar eftir um-
fjöllun Kastljóss um meint samráð
Eimskipa og Samskipa í flutningum
hér á landi.
Lögreglan vopn-
ast með leynd
20. október DV
greindi frá því að
íslensk lögreglu-
umdæmi hefðu
fengið til afnota
150 vélbyssur, sem
fengnar voru frá
norska hernum. Vél-
byssurnar komu hingað til lands eft-
ir samning hersins við Landhelgis-
gæsluna. Málið var afar umdeilt,
enda hafði almenningur litla vit-
neskju um vopnaburð lögreglunnar.
Misvísandi upplýsingar ríkisstofn-
ana leiddu til þess að lengi vel var
óljóst hvort byssurnar hefðu verið
gjöf eða hvort að íslensk stjórn-
völd hefðu greitt fyrir þær.
Eldgos í Holuhrauni Eldgos hófst um miðnætti í Holuhrauni norður af Dyngjujökli. Rúmlega eins kílómetra gossprunga opnaðist. Mikil skjálftavirkni hafði verið í Bárðarbungu í tæpan mánuð á undan eldgosinu. Gosinu
lauk stuttu síðar, en þann 31. ágúst hófst stærra gos, sem gýs enn, og ekkert liggur fyrir um goslok er þessi annáll er skrifaður. Þá er enn óvíst hvort gos muni hefjast í Bárðarbungu, en eldgosið í Holuhrauni hefur verið hið mesta sjónarspil
en með tilheyrandi gasmengun um land allt.
29. ágúst
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur