Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2014, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2014, Qupperneq 32
Áramótablað 30. desember 201432 Fréttir aðskilnaðarsinnar að sölsa undir sig alþjóðaflugvöllinn í Donetsk, án árangurs. Um 50 aðskilnaðarsinnar lágu í valnum. Konungur afsal- aði sér krúnunni 2. júní Juan Carlos Spánarkonungur tilkynnti að hann hygðist afsala sér krúnunni. Carlos var konungur Spánar í 39 ár og kom það í hlut son- ar hans, Felipe, að taka við af honum. Skiptar skoðanir voru meðal Spánverja um arfleifð Carlos; af sumum var honum hrósað fyrir að þátt sinn í að gera Spán að lýð- ræðisríki á meðan aðrir gagnrýndu hann og fjölskyldu hans fyrir að eyða ótæpilega á erfiðum tímum, ekki síst eftir efnahagsniðursveifl- una 2008. Assad endurkjörinn 3. júní Bashar al- Assad Sýrlandsfor- seti var endur- kjörinn í embætti með yfirburðum, hlaut hann 89 prósent atkvæða. Framkvæmd kosn- inganna var gagnrýnd, ekki síst þar sem aðeins íbúar á þeim svæðum þar sem sýrlensk yfir- völd fara með stjórn fengu að kjósa. Talíbanar gerðu árás 9. júní Talíbanar gerðu hryðju- verkaárás á Jinaah-alþjóðaflugvöll- inn í Karachi í Pakistan með þeim afleiðingum að 29 manns létust, þar af 10 árásarmenn. Jinaah-flug- völlur er stærsti flugvöllur landsins. Talsmaður talíbana hótaði að frek- ari árása væri að vænta, markmiðið væri að valda pakistönskum stjórn- völdum skaða. ISIS stofnaði kalífadæmi 1. júlí Íslamska ríkið, sem þar til 1. júlí var þekkt undir nafninu ISIS, tilkynnti um stofnun kalífadæmis á stóru svæði sem teygði meðal annars anga sína norður og vestur af Bagdad, höfuðborg Íraks og til Sýr- lands. Í kjölfarið hófu Írakar, undir stjórn bandarískra ráðgjafa, að finna leiðir til að vernda höfuðborgina gegn ágangi samtakanna. Ísrael og Palestína í hart – enn og aftur 2.–31. júlí Lík palestínsks unglings fannst aðeins degi eftir að þrír ísraelsk- ir unglingar voru jarð- settir. Ísraelsmönnunum ungu hafði verið rænt og þeir myrtir á fjallgöngu á Vesturbakkanum í júnímánuði. Bæði þessi atvik áttu stóran þátt í að í brýnu sló á milli Ísralels og Palestínu í júlímánuði og vatt mál- ið upp á sig svo um munaði dagana þar á eftir. Þann 9. júlí skutu upp- reisnarhópar hundruð eldflauga til Ísraels frá Gaza-ströndinni. Ísraelsmenn svöruðu í sömu mynt og bjuggu sig undir landhernað í Palestínu. Fjölmargir Palestínu- menn létust í árásum Ísraelsmanna. Þann 16. júlí höfðu Ísraels- menn skotið á yfir 60 skot- mörk á Gaza þar sem um 200 Palestínumenn létust. Palestínumenn svöruðu með eldflaugaárásum. Það sem eftir lifði júlímánaðar áttu á annað þúsund eftir að liggja í valnum, aðallega óbreyttir borgarar í Palestínu. Íslamska ríkið náði Mosul Meðlimir Íslamska ríkisins tóku öll völd í borginni Mosul í norðurhluta Íraks þann 11. júní. Föngum, súnní-múslimum, sem afplánað höfðu í fangelsi borgarinnar, sem er næst fjölmennasta borg landsins, var sleppt af liðsmönnum samtakanna og þá frömdu þeir bankarán, tóku flugvöll borgarinnar á sitt vald auk stjórnarbygginga í borginni. Um hálf milljón manna lagði á flótta frá borginni.Nouri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, lýsti í kjölfarið yfir neyðarástandi í landinu og Ayatollah Ali Sistani, einn helsti trúarleiðtogi sjíta í Írak, kallaði eftir því að Írakar berðust gegn liðsmönnum Íslamska ríkisins. Fjölmargir urðu við beiðninni en máttu síns lítils gegn þungvopnuðum sveitum Íslamska ríksins sem héldu áfram að sölsa undir sig svæði í Írak og víðar. Þann 21. júní tilkynnti Barack Obama að hann hygðist senda 300 hernaðarráðgjafa til Íraks til að aðstoða þarlend stjórnvöld í baráttunni. 11.–21. júní Farþegaþota skotin niður Malaysia Airlines komst aftur í heimsfréttirnar á árinu – og það ekki af góðu. Farþegaþota félagsins, með flugnúmerið MH17, var skotin niður þegar henni var flogið yfir austurhluta Úkraínu, skammt frá landamærum Rússlands. 298 manns voru um borð, flestir Hol- lendingar, og komst enginn lífs af. Átök höfðu verið á þessu svæði og beindust spjótin fljótlega að rússneskum aðskilnaðarsinnum sem þó neituðu aðild að málinu. Talið er mögulegt að aðskilnaðarsinnar hafi talið að um úkraínska herflugvél hafi verið að ræða. Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á ódæðinu en rannsókn er þó enn í gangi. 17. júlí
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.