Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2014, Blaðsíða 38
Áramótablað 30. desember 201438 Fólk Viðtal
É
g er fullur tilhlökkunar og
ætla að gera mitt besta
til að gera hér alþýðlegt
leikhús. Hér er rík krafa
og metnaður um gott
leikhús og hefur alltaf verið.
Ég kem ekki með látum held-
ur hlustandi. Ég ætla að búa
hérna, vinna hérna og hefja
hér nýtt skeið í lífi mínu,“
segir leikarinn og leikstjór-
inn Jón Páll Eyjólfsson,
nýráðinn leikhússtjóri hjá
Leikfélagi Akureyrar.
Úr 101 í 600
Jón Páll er kvæntur tveggja barna fað-
ir. Eiginkona hans er Íris Eggertsdótt-
ir myndlistakona og fatahönnuður
en dæturnar tvær heita Embla Sól og
Sóley Úa og eru 13 ára og 11 ára. Fjöl-
skyldan hefur um árabil búið í mið-
borg Reykjavíkur en ætlar nú að rífa
sig upp með rótum og flytja norður.
„Við erum búin að búa í 13 ár í 101.
Við fluttum á Hverfisgötuna þegar
enginn vildi búa þar og höfðum lag-
að til íbúð á tveimur hæðum. Þetta er
lítil íbúð á frábærum stað en er orðin
of lítil. Miðbærinn hefur breyst og
við höfum breyst, væntingar okkar til
lífsins eru aðrar. Við vorum tilbúin til
að skipta um rytma og höfðum talað
um að fara miklu meira afskekkt og
höfðum fundið okkur stórt hús úti í
sveit með bílskúr og öllu. Ég er úti-
vistarmaður, veiði og fer á skíði og
síðasta sumar fór ég í sjóveiði á kajak
við Siglufjörð. Og svo hef ég loksins
látið verða af því að fá mér hund.“
Ævintýri og áskorun
Hann segir eiginkonuna einnig
spennta fyrir breytingunum. „Hún
lítur á þetta sem nýja byrjun. Hún
hafði rekið verslun í miðborginni í
nokkur ár og ætlar núna finna sér og
sínum hugðarefnum vinnustofu. Við
erum mjög spennt. Þetta er heilmik-
ill viðsnúningur fyrir stelpurnar, sem
hafa í rauninni aldrei flutt svo þetta
verður heilmikið ævintýri og áskor-
un fyrir þær,“ segir hann en viður-
kennir að svona umskiptum fylgi alls
kyns tilfinningar. „Stelpurnar hafa
sínar skoðanir en þær verða bara
að treysta mér og mömmu sinni til
að taka bestu ákvarðanir fyrir okkur
öll. Þær voru þó fegnar að við vær-
um að fara til Akureyrar en ekki eitt-
hvert lengst út í sveit eins og upp-
haflega stóð til. Sú yngri er mikið á
skautum og báðum finnst gaman að
hestamennsku og hér er skautasvell
og kunningi okkar er hér með hesta.“
Þekkir bæinn
Jón Páll er kunnugur Samkomuhús-
inu en hann dvaldi á Akureyri fyrir
tíu árum þegar söngleikurinn Óliver
Tvist var settur á svið. „Þetta var mik-
il og stór sýning og þá kom öll fjöl-
skyldan, mamma, pabbi og allt geng-
ið í heimsókn yfir jólin. Svo varð ég
áfram og leikstýrði tveimur verkum.
Ég er því kunnugur húsinu. Ég átti
Ekki lau við rEiðina
Jón Páll Eyjólfsson er nýráðinn
leikhússtjóri hjá Leikfélagi Akureyrar. Jón Páll
hefur ásamt fjölskyldu sinni búið um árabil
í miðborginni en söðlar nú um og sest að á
Akureyri. Indíana Ása Hreinsdóttir hitti Jón Pál
á kaffihúsi og spjallaði við hann um flutningana,
fjölskylduna, reiðina, áhugamálin og leiklistina
sem hann gafst næstum því upp á.
Indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is
„Það fannst
mér erfitt
enda er heimilið þar
sem fjölskyldan er
Útivistarmaður
Jón Páll lét draum
rætast og fékk sér
hund. MyndIr SIgtryggur ArI