Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2014, Síða 56
56 Lífsstíll Áramótablað 30. desember 2014
Þ
að var ekkert lát á upp-
finningasemi þetta árið
og tækninýjungarnar, eða
endurbæturnar mátti finna
á hverju strái. DV leitaði á
snoðir hins alvitra internets og tók
saman nokkrar uppfinningar sem
féllu í grýttan jarðveg.
Fire-síminn
Amazon hugðist fylgja eftir óstöðv-
andi vinsældum lestölvanna Kindle
og Kindle Fire og sendi frá sér snjall-
síma á árinu. Við tók rándýr kynn-
ingarherferð sem fór þó ekki bet-
ur en svo að síminn náði sjaldan
meira en einnar stjörnu dómum frá
græjurýnum. Það sem þótti einna
helst vera vandamál var stuttur líf-
tími rafhlöðunnar auk þess sem tæk-
ið á það til að ofhitna eftir örstutta
notkun. Enginn var hrifinn og end-
ar tækið því í raftækjakirkjugörðum
eftir árið.
Mother
Lítill krúttlegur róbóti sem minnir
þig á að bursta tennurnar, borða kál-
ið þitt og skipta um sokka. Fyrirtæk-
inu Sen.se gekk eflaust gott eitt til
þegar ráðist var í framkvæmd þessar-
ar furðuveru sem var auðvitað nefnd
„Mamma.“
Lífið er erfitt án skipulags og með
gervigreindarmömmu við höndina
ættu þér að vera allir vegir færir, eða
ekki. Tækið skrásetur daglega hegð-
un þína nákvæmlega með hjálp
hreyfiskynjara sem festur er við
heimilistæki og aðrar nauðsynjar og
lætur þig vita hvenær hegðun þín er
komin úr fyrir ákveðin mörk. Fyrir
fólk sem er einmana og hræðist ekki
NSA er þetta kannski í lagi en okkur
þykir þetta bara „krípí.“
Threwgrip-lyklaborðið
Þetta óvenjulega lyklaborð vakti
nokkra athygli fyrir framúrstefnu-
lega lögun sem minnir einna helst á
harmóniku. En til þess er leikurinn
gerður, borðið var hannað með
fingrasetningu harmónikuleikara
í huga og getu þeirra við að spila á
takkaborðið eftir tilfinningu. Borðið
tengist Bluetooth og hengir sig við
símann þinn eða spjaldtölvuna
og með því vildu framleiðendurn-
ir meina að þér væru allir vegir vél-
ritunar færir, og meira. Það dugði þó
ekki til.
Name Tag-smáforritið
Hvar á maður að byrja? Snillingarn-
ir á bak við þetta Google Glass-smá-
forrit héldu því fram að fólk kærði
sig um hnýsni náungans. Name Tag
virkar þannig að manneskja með
Google Glass, tekur af þér andlits-
mynd hvar sem henni dettur í hug.
Hvort sem það er úti á götu eða inn-
andyra og getur svo tengt andlitið
á þér við internet sjálfið þitt; með
þessu fær hún upp Facebook-reikn-
inginn þinn og í raun allar upplýs-
ingar sem viðkomandi vill og finn-
ast af þér á netinu. Þetta hugsuðu
hönnuðirnir svona sem fyrirmynd-
ar stefnumótasmáforrit, eða leið til
þess að kynnast nánar. Já, kannski ef
þú ert eltihrellir.
Tao Well Shell
Þessi skrítna litla skjaldbökuskel
átti að geta hjálpað þér við æfinga-
prógrammið. Þú einfaldlega setur
hana á milli læranna og kreistir af
alefli, eins oft og þér þykir nauðsyn.
Litla skjaldbakan reiknar svo út fyr-
ir þig upplýsingar um þitt eigið afl
og sendir í snjallsímann þinn í þar
til gert forrit. Hvað þú átt svo að gera
við þessar upplýsingar er hins vegar
ekki alveg ljóst svo þessi fer rakleiðis
á uppfinningaruslahaugana.
Ipad-skurðar-
brettið og Ipad-kló-
settrúllustandurinn
Þetta slitsterka bambusskurðarbretti
er bara nokkuð falleg hönnun. Á því er
standur fyrir hnífana þína og, eins og
nafnið gefur til kynna, líka Ipad-spjald-
tölvuna. Spurningin er hins vegar;
hvenær þarf maður að horfa á spjald-
tölvuna á meðan maður sker lauk? Fá-
ránleg hugmynd og allt of dýrt spaug.
Þá fer klósettrúllustandurinn sömuleið-
is á haugana. Í alvöru, hver þarf þetta?
iTOi Periscope
Einhverjir uppfinningamenn voru
leiðir á því að geta ekki horft al-
mennilega í augu vina sinna á Skype.
Þeir hönnuðu því þessa gríðarsmíð
sem átti að gera tölvusamskiptin
nánari og augnsambandið raun-
verulegra. Það sem þeir klikkuðu þó
á var að græjan, sem er eins og eitt-
hvað sem augnlæknirinn þinn set-
ur þig í, er asnaleg og afar ópraktísk
í útliti.
Intel Smart-bollinn
Þetta er fyrir þau sem vilja snjall-
væða heiminn. Þessi bolli gerir fátt
annað en venjulegur bolli fyrir utan
að á hann má prógramma skilaboð
sem birtast í LED-ljósi framan á. Það
er alveg smá krúttlegt en það getur
þó valdið magasári að þurfa í sífellu
að hafa áhyggjur af því að einhver
setji hann í uppþvottavélina.
ChefJet-sykurprentarinn
Það hefur orðið sveifla á þrívíddar-
prentaramarkaðinum undanfarin
tvö/þrjú ár. Nú erum við að horfa
fram á líffæraprentara, vopna-
prentara og hvað eina. En hvers
vegna ekki matarprentara? Nú
þegar hafa nokkrir matarprentarar
ruðst fram á sjónarsviðið og hug-
myndin, skulum við viðurkenna,
er heillandi. Í stað þess að þurfa
að fylgja uppskriftum má skella
þeim í prentarann og voila! út
kemur maturinn. ChefJet-prent-
arinn þykir af mörgum skara fram
úr fyrir nákvæmni en vandinn er
að hann prentar aðeins úr sykri.
Hvenær þarf maður einhvern tím-
ann listilega skrautskorna sykur-
skúlptúra? n
n Það má deila um notagildi flestra nútímahluta n Við tókum saman þennan lista tíu furðuverka
Tíu furðulegustu
uppfinningar ársins
Mother
róbótinn Minnir
þig á að bursta
tennurnar.
iTOi Periscope
Raunverulegra augn-
samband.
ChefJet-sykurprent-
arinn Listilega skraut-
skornir sykurskúlptúrar