Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2014, Blaðsíða 60
60 Fólk Áramótablað 30. desember 2014
H
já mörgum er til siðs að
strengja áramótaheit und-
ir lok árs og nota þannig
tímamótin sem marka nýtt
ár til að lofa sjálfum sér bót
og betrun. Á meðan sumir einblína
á bætt heilbrigði kjósa aðrir að setja
sér markmið um spennandi ævintýri
á nýju ári. DV heyrði í fjórum þekkt-
um Íslendingum og forvitnaðist um
áramótaheit þeirra.
Gott rauðvín og ostar
„Já ég ætla að strengja áramótaheit
eða áramótamarkmið eins og það
ætti kannski frekar að kallast,“ seg-
ir tónlistarkonan Steinunn Camilla
úr hljómsveitinni The Charlies sem
segist vanalega strengja áramóta-
heit. „Ég set mér ýmis misströng
markmið. Ég reyni að prófa eitthvað
nýtt á hverju ári, gera eitthvað sem
hræðir mig og ná þá að strika út af
löngum „bucket“-lista sem ég hef
verið að safna inn á í gegnum tíð-
ina. Ég hef alltaf haldið mín heit en
misvel samt. Árið 2013 ákvað ég að
vakna snemma til að nýta daginn og
kaupa blóm tvisvar í mánuði ásamt
ýmsu öðru. Ég hef haldið því síð-
an. Í ár vildi ég læra að skjóta, fara á
fleiri söfn. Ég gerði hvort tveggja og
annað misgáfulegt. Ég vildi til dæm-
is drekka meira af góðu rauðvíni og
borða oftar góða osta og hef staðið
mjög vel við það.“
Steinunn Camilla lítur björtum
augum fram á við. „Árið 2014 var
tímamótaár á mörgum sviðum, bæði
hvað varðar fjölskyldu og vinnu. For-
gangsröðun mín og viðhorf breyttu-
st mikið. Árið 2015 mun verða mjög
spennandi og ég fer einstaklega ein-
beitt inn í það ár og hlakka til að tak-
ast á við þau verkefni sem ég hef sett
mér.“
Strengir ekki áramótaheit
Útvarpsleikhússtjórinn Viðar Egg-
ertsson er ekkert að flækja hlutina
þegar kemur að áramótaheitum.
Viðar játar því að ætla að strengja
áramótaheit í ár. „Já, að strengja ekki
áramótaheit,“ segir hann og segist
alltaf strengja það heit. „Mér tekst
alltaf að halda þetta heit, sem ég
strengi á hverju ári, að strengja ekki
áramótaheit.“
Viðar segist hafa notið ársins sem
nú er að líða. „Þetta var algjörlega
splunkunýtt ár, með öllu ónotað. Ég
naut þess í botn að háma það í mig.
Það mun væntanlega taka 364 daga
að klára það. Nú er ég að verða bú-
inn með það, pakksaddur.“ Aðspurð-
ur hvernig honum lítist á árið 2015
svarar hann: „Aldrei kynnst því áður.
Hlakka óskaplega til að kynnast því
smátt og smátt og vænti þess að það
standi hinum fyrri ekki að baki!“
Magnaðasta ár lífs míns
„Þetta árið ætla ég að lesa fleiri bæk-
ur, búa mér til tíma fyrir lestur. Ég
hef verið að fresta nokkrum bókum,“
segir dagskrár- og kvikmyndagerðar-
konan Ragnhildur Magnúsdóttir
sem strengir reglulega áramótaheit.
„Þetta er orðin einhvers konar hefð
hjá mér að endurskoða hlutina fyrir
áramótin og pæla í því hvað er hægt
að bæta og breyta. Eitt árið tók ég
janúar fyrir og borðaði bara grænt út
mánuðinn, sem sagt bara grænmeti
og ávexti minnir mig. Svona einhvers
konar detox,“ segir hún en bætir við
að erfiðasta áramótaheitið hafi verið
að ætla að hætta að blóta. „Því miður
þá sprakk ég 1. janúar.“
Ragnhildur segir árið 2014 hafa
verið frábært. „Í raun og veru var
þetta magnaðasta ár lífs míns þar
sem ég eignaðist frumburðinn,
dóttur mína Stellu Lúnu. Lífið hef-
ur auðvitað breyst mikið og algjör-
lega til hins betra. Hún er skemmti-
legur orkubolti, hress og kát,“ segir
Ragnhildur sem líst vel á komandi
ár. „Mjög vel. Mér finnst áramótin
skemmtilegt tækifæri til að fram-
kvæma breytingar, skipuleggja og
setja sér markmið og nýjar áskoran-
ir. En mest er ég þó spennt að eiga
árið með Stellunni minni og fá að sjá
hana þroskast og stækka.“
Erfitt súkkulaðibindindi
„Ég er vaxin upp úr áramótaheitum,
en held að sjálfsögðu til streitu þessu
sígilda heiti sem ég set mér nánast
hverjum degi: Að verða betri mann-
eskja í dag en í gær, að standa með
sjálfri mér og að vera til staðar fyrir
fólkið mitt,“ segir fræðikonan Ólína
Þorvarðardóttir og bætir við: „Ég hef
farið ýmsar Bjarmalandsferðir með
áramótaheitin að leiðarljósi gegn-
um tíðina, til dæmis öll árin sem
ég var að reyna að hætta að reykja.
Eins þegar kílóunum fór að fjölga
full mikið fyrir minn smekk,“ segir
Ólína sem hefur tekist að halda alla-
vega eitt áramótaheit. „Já, á endan-
um tókst mér að hætta að reykja – en
kílóin vilja koma aftur. Súkkulaði-
bindindið fjarar alltaf út hjá mér –
sömuleiðis er ég búin að gefast upp
á líkamsræktarstöðvum.“
Ólína kveður árið 2014 með þak-
klæti. „Þetta ár færði mér ýmislegt
nýtt og skemmtilegt. Í byrjun ársins
hlotnaðist mér mjög skemmtilegt
verkefni, ritun bókar um Ísafjarðar-
djúp sem ég fer nú að leggja loka-
hönd á fljótlega. Ég stofnaði lítið
gistiheimili í húsinu mínu á Ísa-
firði sem hefur gengið vel, og verið
skemmtileg reynsla fyrir mig. Þá hef
ég átt þess kost að sinna fræðastörf-
um, halda fyrirlestra, ferðast bæði
utanlands og innan og vera með
fólkinu mínu, sem er dýrmætast af
öllu.
Fyrirheit nýja ársins eru óræð
eins og jafnan áður. Heimurinn er
síst friðvænlegri við lok þessa árs
en hann var í upphafi þess. Í lands-
málunum er óeining og bágborið
ástand í ríkisbúskapnum. Náttúru-
öflin hafa verið að ræskja sig og við
erum farin að finna fyrir meiri veður-
öfgum en áður, þannig að ekkert er
fast í hendi. Samt lít ég vongóðum
augum til ársins 2015. Ég vonast til
þess að geta nýtt mér nýfengið frelsi
til skrifta og eigin atvinnureksturs,
ætla að reyna að vera sjálfs míns
herra og njóta þess.“ n
Nýtt ár og Ný fyrirheit
n Íslendingar sem strengja áramótaheit n Sumir vilja hætta að reykja
Ólína Þorvarðardóttir
Ólínu tókst að hætta að
reykja með hjálp áramóta-
heits. Mynd SiGtryGGur Ari
indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is
„Árið 2014 var
tímamótaár
á mörgum sviðum,
bæði hvað varðar
fjölskyldu og vinnu.
Steinunn Camilla
Tónlistarkonan Steinunn
Camilla tekur á móti nýju
ári með opnum örmum.
Mynd MiCHEllE inGolfSSon
Viðar Eggertsson
Viðar hlakkar til að
kynnast nýju ári.
Mynd SiGtryGGur Ari
ragnhildur
Magnúsdóttir
Ragnhildur eign-
aðist frumburð
sinn á árinu.