Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2014, Síða 8
Helgarblað 5.–8. desember 20148 Fréttir
Eins og náttúran hafði í hyggju
• Magnesíumsprey sem virkar strax!
• Slakandi, bætir svefn og slær á
fótaóeirð og sinadrátt
• Frábær upptaka
Sefurðu illa?
MagnesiumOil
Spray
Fæst í flestum apótekum, Lifandi Markaði, Heilsuhúsinu,
Fjarðarkaup og Systrasamlaginu
Nánari upplýsingar á www.gengurvel.is
og á Facebook síðunni Better You Ísland
PREN
TU
N
.IS
Goodnight
Þingmenn
sniðgengnir
DV leitaði viðbragða nokkurra
þingmanna úr röðum Sjálf
stæðisflokksins við skipan
Ólafar Nordal í embætti innan
ríkisráðherra. Þó að Pétur Blön
dal og Ragnheiður Ríkharðs
dóttir hafi lítið viljað segja um
ráðninguna í gær, mátti heyra
á þeim að þeim fannst fram hjá
sér gengið. Pétur sagði við DV
að þetta væru
vonbrigði fyr
ir sig en hann
hafði lýst því
yfir við RÚV
seint í nóvem
ber að hann
væri næstur í
röðinni. Svör
Péturs voru
afar snubbótt þegar DV ræddi
við hann. Hann sagði þó að
honuml litist vel á Ólöfu.
„Ég ætla ekki að hafa nokk
ur orð um þetta,“ sagði Ragn
heiður Ríkharðsdóttir í samtali
við DV þegar tíðindin urðu ljós.
Ragnheiður hafði, ásamt Einari
K. Guðfinnssyni, sem hafnaði
starfinu, verið sterklega orðuð
við stöðu innanríkisráðherra.
Hún hlaut ekki náð fyrir augum
formanns síns. „Ég ætla ekki að
tjá mig um skipan formannsins
en óska Ólöfu Nordal velfarnað
ar í dag,“ sagði hún við DV en
ekki þarf djúpan skilning til að
álykta að hún sé afar ósátt.
Einar K. Guðfinsson, for
seti Alþingis, hafnaði starfinu,
eins og áður segir. Sjálfstæð
ismenn hafa ekki tekið djúpt í
árinni, þegar
þeir tjá sig
um skipanina
en lögmað
urinn Sveinn
Andri Sveins
son, sem hef
ur munninn
fyrir neðan
nefið, sagði
að í skipaninni fælist „hressileg
vantraustsyfirlýsing formanns
Sjálfstæðisflokksins í garð
þingmanna flokksins“. Þing
mennirnir Brynjar Níelsson,
Birgir Ármannsson og Unn
ur Brá Konráðsdóttir voru, auk
Péturs, á meðal þeirra sem lýstu
yfir áhuga á stöðu innanríkis
ráðherra.
Ó
löf Nordal, nýr innanríkis
ráðherra, tekur við dóms
málum sem Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson for
sætisráðherra hefur farið
með síðan Hanna Birna Kristjáns
dóttir, fráfarandi innanríkisráð
herra, sagði sig frá þeim í lok ágúst
síðastliðins vegna lekamálsins.
Bjarni Benediktsson, formaður Sjá
flstæðisflokksins, sagði eftir ríkis
stjórnarfund 26. ágúst að ákveðið
hefði verið að koma á fót emb
ætti dómsmálaráðherra innan
innanríkisráðuneytisins og með
embættið færi forsætisráðherra
tímabundiið þar til stofnað yrði sér
stakt ráðuneyti dómsmála. „Eins
og menn munu sjá þá erum við
ekkert síður með þessu að stíga
fyrsta skerfið í átt að því að endur
reisa sjálft dómsmálaráðuneytið
og það er liður í stærri ákvörðun
sem tengist ekki málinu beint,“
sagði Bjarni í samtali við mbl.is
þennan dag. Samkvæmt forseta
úrskurði sem gefinn var út fyrir
helgina er að sjá sem horfið hafi
verið frá þeim áformum sem Bjarni
lýsti í lok ágúst, því Ólöf tekur við
dómsmálunum án nokkurra fyrir
vara. Ólöf er lögfræðingur og gæti
það bent til þess að ekki standi til
að hrófla í bráð við dómsmálun
um í innanríkisráðuneytinu. Upp
skipti ráðuneytisins voru gagnrýnd
harðlega af stjórnarandstöðunni á
haustþingi. Árni Páll Árnason, for
maður Samfylkingarinnar, ritaði
grein í Fréttablaðið 28. ágúst síðast
liðinn af sama tilefni og sagði meðal
annars: „Til að forða því að ráðherra
flokksins þurfi að axla ábyrgð á eig
in verkum og framgöngu pólitískra
aðstoðarmanna hennar er frekar
farið í handahófskenndar ráðu
neytabreytingar. Það er betra að
brjóta upp stjórnkerfið en að skipta
um ráðherra.“ Árni sagði enn frem
ur að breytingin væri ekki hluti af
yfirvegaðri endurskipulagningu
„heldur klæðskerasaumuð að þess
um flótta Sjálfstæðisflokksins frá
pólitískri ábyrgð.“
Lögfræði og stjórnmálareynsla
Ólöf Nordal er 48 ára, reyndur
stjórnmálamaður og fyrrverandi
varaformaður Sjáflstæðisflokksins
(2010 til 2013). Hún er nú formað
ur bankaráðs Seðlabanka Íslands
en þarf að segja sig frá því embætti
nú þegar hún er orðin ráðherra.
Hún tók lögfræðipróf frá Háskóla
Íslands árið 1994 og MBApróf frá
Háskólanum í Reykjavík árið 2002.
Hún var deildarstjóri í samgöngu
ráðuneytinu 1996 til 1999 og síð
ar lögfræðingur hjá Verðbréfaþingi
Íslands til ársins 2001. Eftir það
kenndi hún við Háskólann á Bif
röst og stýrði heildsöluviðskiptum
hjá Landsvirkjun svo nokkuð sé
nefnt. Hún var fyrst kjörin á þing
í þingkosningunum árið 2007 fyrir
Sjálfstæðisflokkinn í Norðaustur
kjördæmi en lét af þingmennsku
árið 2013, þá sem þingmaður
Reykvíkinga. Eiginmaður Ólafar
er Tómas Már Sigurðsson, fram
kvæmdastjóri álframleiðslu Alcoa
á heimsvísu og hefur hann séð um
daglegan rekstur á framleiðslu ál
vera Alcoa um allan heim og báxít
framleiðslu fyrirtækisins síðan
hann tók við starfinu í júní á þessu
ári. Tómas hóf störf hjá Alcoa
Fjarðaáli árið 2004 en var ráðinn
forstjóri Alcoa í Evrópu árið 2011.
Hann er menntaður í verkfræði og
með mastersgráðu í framkvæmda
áætlun frá Cornellháskóla í
Bandaríkjunum. Börn Ólafar og
Tómasar eru fjögur, Sigurður, Jó
hannes , Herdís og Dóra. Síðast
liðið sumar greindi Ólöf frá því á
vefsíðu sinni að hún hefði greinst
með illkynja æxli. Krabbameinið
fannst um miðjan júlí þegar Ólöf
var í stuttri heimsókn á Íslandi en
hún var þá búsett hjá manni sín
um í Sviss. Hún hefur gengist und
ir meðferð hér á landi og hefur náð
sér að fullu.
Kom á óvart
Skipun Ólafar í embætti innan
ríkisráðherra kom þingmönnum
Sjálfstæðisflokksins sem og mörg
um öðrum á óvart, en hún er
tuttugasti utanþingsráðherra
þjóðarinnar. Á síðasta kjörtímabili
gegndi Gylfi Magnússon embætti
viðskiptaráðherra og Ragna Árna
dóttir embætti dóms og kirkju
málaráðherra um tíma. Bjarni
Benediktsson, formaður flokksins,
tók ekki endanlega ákvörðun sína
um nýjan ráðherra fyrr en síðast
liðið miðvikudagskvöld. Hann hafði
þá boðið Einari K. Guðfinnssyni
ráðherraembættið en hann baðst
undan því og kvaðst vilja gegna
áfram stöðu forseta Alþingis. Ólöf
tók við lyklum að innanríkisráðu
neytinu úr hendi Hönnu Birnu
Kristjánsdóttur sem lét formlega
af embætti síðastliðinn fimmtu
dag. Kvaðst Hanna Birna ekki get
að hugsað sér betri eftirmann á ráð
herrastóli. Hanna Birna hyggst taka
sér frí frá stjórnmálum til vorþings
ins sem kallað verður saman upp úr
miðjum janúar næstkomandi. n
Dómsmálin aftur í
innanríkisráðuneytið
n Áform um sjálfstætt dómsmálaráðuneyti víkja n Lögfræðingur í brúnni
Jóhann Hauksson
johannh@dv.is „Kom þing-mönnum
Sjálfstæðisflokks-
ins sem og mörgum
öðrum á óvart
Tilfinningaþrungin stund
Ólöf Nordal tekur við lyklum
innanríkisráðuneytisins úr
höndum Hönnu Birnu Krist-
jánsdóttur. Mynd SigTryggur Ari