Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2014, Síða 10
10 Fréttir Helgarblað 5.–8. desember 2014
É
g er bara mjög reið út í þenn-
an mann,“ segir þolandi kyn-
ferðisofbeldis og íbúi á Sól-
heimum í Grímsnesi í samtali
við DV. Konunni er mjög í
mun að segja sögu sína en mis-
notkunin hefur haft djúpstæð áhrif
á hana. DV greindi fyrst frá því í
október síðastliðnum að lögreglan
á Selfossi hefði til rannsóknar kyn-
ferðisbrot gegn fatlaðri konu á Sól-
heimum. Samkvæmt upplýsingum
frá lögreglu er rannsókn ekki enn
lokið og eiga enn eftir að fara fram
skýrslutökur í málinu. Þorgrímur
Óli Sigurðsson aðstoðaryfirlög-
regluþjónn sagðist í samtali við DV
vonast til þess að rannsókn ljúki um
miðjan mánuð.
„Ég er reið“
Konan, sem er á fertugsaldri og
greind með væga þroskahöml-
un, segist hafa kynnst manninum
á stefnumótasíðunni einkamál.is
fyrir nokkrum árum en hann hafi
haft samband við hana á nýjan
leik í haust eftir að hún varð fyrir
persónulegu áfalli. Hann hafi þá í
þrígang hringt í hana, boðið henni
í bíltúr og borið í hana áfengi. „Svo
bara fór hann að gera það sem
hann átti ekki að gera,“ segir hún
og á augljóslega erfitt með að rifja
atvikin upp. Konan var því undir
áhrifum áfengis þegar brotin þrjú
voru framin. Hún segist að lok-
um hafa látið framkvæmdastjóra
Sólheima vita af misnotkuninni
og í kjölfarið hafi maðurinn verið
kærður til lögreglu. „Ég er búin að
vera að ganga í gegnum það líka,“
segir hún og á þar við ferlið sem
fór í gang eftir að kæran var lögð
fram.
Konan segist hafa gengið til
sálfræðings á Sólheimum eftir að
brotin voru framin. „Þannig að
ég fæ stuðning hérna,“ segir hún.
Þegar konan er spurð að því hvaða
áhrif misnotkunin hafi haft á hana
segir hún að sér líði illa og að hún
eigi það til að einangra sig. „Ég á
það til að loka mig af stundum og
tala ekki við neinn.“
Konan segir manninn ekki hafa
reynt að hafa samband við hana
aftur eftir að brotin voru kærð
til lögreglu en hún segist vita til
þess að honum hafi ekki verið vik-
ið úr starfi í kjölfar rannsóknar
málsins. Maðurinn er atvinnubíl-
stjóri og tengist Sólheimum ekki
neitt. Henni líður illa með þá vit-
neskju. „Mér finnst að það eigi að
taka hann og setja hann í gæslu-
varðhald. Stinga honum í „djeil-
ið“. Svona menn eiga ekki að ganga
lausir.“ Óttast hún þá manninn?
„Nei, en ég er reið,“ svarar hún.
Fær ekki að hitta vini sína
Konan segist að auki óánægð með
starfshætti á Sólheimum eftir að
málið kom upp. Hún segist til að
mynda ekki fá helgarleyfi til þess að
fara og hitta vini sína á Selfossi. Hún
segist telja að með þessu sé verið að
reyna að koma í veg fyrir að brotið
verði á henni að nýju. Upplifir hún
þetta sem mikla frelsisskerðingu og
er reið. „Þau dæma vini mína sem
ég á hérna á Selfossi mjög harkalega
og ég fæ ekki að hitta neina af vin-
um mínum. Þau ákveða bara fyrir-
fram að þetta séu slæmir félagar,“
segir hún meðal annars.
DV hafði samband við Guð-
mund Ármann Pétursson, fram-
kvæmdastjóra Sólheima, vegna
málsins sem sagðist ekki geta tjáð
sig um málefni einstaklinga á Sól-
heimum.
Upplifa oft forræðishyggju
Við vinnslu fréttarinnar hafði
réttar gæslumaður konunnar sam-
band við blaðamann og mótmælti
birtingu viðtalsins. Sagði hann for-
eldra konunnar og forstöðumann
Sólheima hafa þungar áhyggjur af
birtingunni. Þá sagði réttargæslu-
maðurinn konuna vera svipta lög-
ræði og því ekki hafa heimild til að
heimila svona viðtöl. Þess ber að
geta að konan hafði sjálf, í gegnum
þriðja aðila, samband við blaða-
mann og bað um að fá að segja sögu
sína.
„Spurningin er, þótt maður sé
ólögráða á það að ná út fyrir tján-
ingarfrelsi?“ segir Helga Baldvins-
dóttir Bjargardóttir, lögfræðingur
og starfsmaður Stígamóta, í sam-
tali við DV. Helga er sérfræðing-
ur í réttindum fatlaðs fólks en seg-
ir það oft notað gegn fötluðu fólki
að það sé ólögráða og sjálfræðis-
svipt. Þess vegna telji starfsfólk, og
aðrir nákomnir, að þeim sé heimilt
að taka nánast allar ákvarðanir fyr-
ir þeirra hönd. „Það er óskýrt í lög-
ræðislögunum hverjar séu heimild-
ir lögráðamanns, en ég get ekki séð
að það nái yfir tjáningarfrelsi,“ segir
Helga.
Helga segir rannsóknir hafa sýnt
fram á að fötluðum konum sé oft
mjög í mun á ná fram réttlæti í kyn-
ferðisbrotamálum. Þá sé einnig vit-
að að fatlaðar konur eigi mun meira
á hættu en ófatlaðar að verða fyr-
ir kynferðislegu ofbeldi. Þær lendi
hins vegar alltof oft í því að þeim sé
ekki trúað og að lítið sé gert úr því
sem kom fyrir þær. Þá segir Helga
einnig eðlilegt að konan sé reið yfir
því að fá ekki að hitta vini sína í kjöl-
far þess að brotin voru kærð. „Það
sem fatlað fólk upplifir svo oft er
þessi, vel meinandi oft, forræðis-
hyggja sem er mjög lífsgæða- og
frelsisskerðandi,“ segir Helga. n
„Svo bara fór hann
að gera það sem
hann átti ekki að gera.
Áslaug Karen Jóhannsdóttir
aslaug@dv.is
„Svona menn eiga
ekki að ganga lausir“
n Íbúi á Sólheimum segir frá kynferðislegri misnotkun
Er reið Konan segist
ekki hrædd við mann-
inn, en hún sé reið.
Njóta alþingis-
menn forgangs
Jón Þór Ólafsson, þingmaður
Pírata, hefur sent Kristjáni Þór
Júlíussyni sérstaka fyrirspurn
um hvort þingmenn og ráðherr-
ar njóti sérstaks forgangs í heil-
brigðiskerfinu.
„Veit heilbrigðisráðherra til
þess að ráðherrar og þingmenn
njóti forgangs í heilbrigðiskerf-
inu? Ef svo er, í hverju er hann
fólginn? Ef ekki, mun ráðherra
láta rannsaka hvort svo sé, og þá
sér í lagi vegna eftirfarandi orða
fyrrverandi landlæknis, Ólafs
Ólafssonar, í viðtali við Frétta-
tímann 28. nóvember sl. um heil-
brigðismál: „Einhvern veginn er
það líka þannig að ráðherrar og
þingmenn lenda ekki á biðlist-
um.“
Þá spyr Jón Þór hvort slíkur
forgangur verði lagður af ef rétt
reynist.
Segir af sér
Guðlaug Kristjánsdóttir, formað-
ur Bandalags háskólamanna, hef-
ur ákveðið að stíga til hliðar. Guð-
laug hefur verið formaður BHM
í sex ár og var endurkjörin til
tveggja ára síðastliðið vor. Á sama
tíma leiddi hún lista Bjartrar
framtíðar í sveitarstjórnarkosn-
ingum í Hafnarfirði og er í dag
forseti bæjarstjórnar. Segist hún
ekki geta gegnt þessum tveimur
hlutverkum samhliða. „Ég lít sátt
yfir farinn veg, stolt og þakklát
fyrir það sem við höfum áorkað,“
segir Guðlaug meðal annars í til-
kynningu frá BHM.
Sólheimar Konan
býr á Sólheimum í
Grímsnesi.