Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2014, Page 15
Fréttir 15Helgarblað 5.–8. desember 2014
Desemberuppbót félagsmanna VR í fullu starfi er núna 73.600 kr.
og á að greiðast ekki seinna en 15. desember.
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | SÍMI 510 1700 | WWW.VR.IS
Hvenær kemur desemberuppbótin?
Virðing, réttlæti og gleðilega hátíð!
E
igandi fata- og minjagripa-
fyrirtækisins Drífu ehf. hefur
stefnt opinbera fyrirtækinu
Isavia ohf. vegna útboðs þess
á verslunarrými í Leifsstöð
fyrr á árinu. Drífa ehf. krefur Isavia
um rúmlega 900 milljónir króna í
skaðabætur vegna þess sem það tel-
ur vera óeðlileg vinnubrögð Isavia
við útboð á verslunarrýminu. Drífa
fékk ekki inni í Leifsstöð með starf-
semi sína í útboðinu. Þetta kemur
fram í stefnunni í málinu sem þing-
fest verður í Héraðsdómi Reykjavík-
ur þann 11. desember næstkomandi.
Ingimundi Sigurpálssyni, stjórnar-
formanni Isavia, er gert að mæta í
þingfestinguna sem fyrirsvarsmanni
félagsins.
Drífa ehf., sem meðal annars sel-
ur fatnað undir merkinu Icewear
auk alls kyns minjagripa, hefur rekið
verslun í Leifsstöð um árabil – föt frá
Icewear-merkinu hafa verið til sölu
í Leifsstöð frá árinu 1988. Eigandi
fyrir tækisins heitir Ágúst Þór Eiríks-
son en það var stofnað árið 1973 og
hefur reksturinn gengið vel. Hagnað-
ur þess í fyrra nam til dæmis tæplega
88 milljónum króna og er eiginfjár-
staðan jákvæð um nærri 314 milljón-
ir króna. Til að setja fyrirtækið í sam-
hengi þá rak það einnig Víkurprjón
þar til í fyrra en þá sameinaðist það
fyrirtæki Drífu.
Úboð Isavia var talsvert til um-
fjöllunar í fjölmiðlum í haust og var
það gagnrýnt talsvert af fyrirtækjum
sem ekki fengu úthlutað húsnæði í
flugstöðinni, meðal annars fyrirtæk-
inu Kaffitári.
Telur rökstuðninginn takmarkaðan
Málið er höfðað þar sem Drífa telur
að tilboðið í verslunarrýmið í Leifs-
stöð sem fyrirtækið skilaði inn hafi
verið hagkvæmt og er Isavia gagn-
rýnt í stefnunni fyrir að hafa ekki fært
nægjanlega góð rök fyrir synjunni á
umsókn Drífu. „Stefnandi er fullviss
um að tilboð hans voru hagkvæm-
ustu sem bárust í útboðinu. Það kom
stefnanda því mjög á óvart að tilboð
hans skyldu ekki vera valin. Stefn-
andi taldi því nauðsynlegt að fá rök-
stuðning og útskýringar fyrir þeirri
ákvörðun stefnda að taka ekki tilboð-
um stefnanda.“
Í stefnunni er rakið hvernig rök-
stuðningur hafi borist frá Isavia fyr-
ir þessari ákvörðun en að forsvars-
menn Drífu hafi talið hann
ófullnægjandi.
Áætluð sala upp á nærri 5 milljarða
Mikla athygli vekur í stefnunni
hversu mikil áætluð sala Drífu á vör-
um fyrirtækisins er. Upphæðin sem
Drífa krefur Isavia um er reiknuð út
frá áætlaðri sölu í Leifsstöð næstu
fjögur árin að frádregnum kostn-
aði við þessa vörusölu. Áætluð sala
Drífu á tímabilinu er, samkvæmt
stefnunni, 4.964 milljónir króna eða
nærri fimm milljarðar króna, en á
móti er kostnaður upp á ríflega 4
milljarða króna en þar af er er leiga
á húsnæðinu upp á rúman millj-
arð. Eftir stendur áætlaður hagnaður
upp á ríflega 900 milljónir króna sem
Drífa vill nú fá frá ríkinu.
Miklir hagsmunir
Í ljósi þessarar miklu áætluðu sölu,
sem byggir á sölu Drífu á vörum í
Leifsstöð síðustu árin, sést hversu
miklir hagsmunir eru í húfi fyrir
fyrirtækið. Enda segir líka í stefn-
unni: „Stefndi hefur sjálfur bent á
að að verslunar- og veitingarými
í flugstöðinni sé meðal þess eftir-
sóttasta á Íslandi. Með útboðinu
var stefndi þannig að setja af stað
ferli með að markmiði að ráðstafa
afar verðmætum en takmörkuðum
gæðum.“
Drífa telur í stuttu máli að Isavia
hafi brugðist í útboðinu og í raun
brotið lög: „Með lögbrotum stefnda
var komið í veg fyrir að stefnandi
hlyti hin takmörkuðu gæði. Með því
að svipta stefnanda þeim gæðum
sem hann átti réttmætt tilkall til olli
stefndi stefnanda tjóni sem stefn-
andi hefði haft af nýtingu verslunar-
rýmisins.“ n
IsavIa stEfnt
vEgna útboðs
n Eigandi Drífu ehf. vill rúmar 900 milljónir króna í skaðabætur n fékk ekki inni
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
„Með lögbrotum
stefnda var komið í
veg fyrir að stefnandi hlyti
hin takmörkuðu gæði.
Vill 903 milljónir króna
Eigandi Drífu ehf. vill 903
milljónir króna í bætur vegna
þess að fyrirtæki hans fékk
ekki inni í Leifsstöð í afstöðnu
útboði Isavia. Ingimundur
Sigurpálsson er stjórnarfor-
maður Isavia.
goslok ekki í bráð
Þriðja mesta hraunrennsli í heiminum frá 18. öld
Í
nýju mati Almannavarna kemur
fram að jarðeldarnir í Bárðar-
bungu munu að óbreyttu halda
áfram í nokkra mánuði til viðbót-
ar – að minnsta kosti. Vísindamenn
hafa komist að þessu.
Nokkuð hefur dregið úr hraun-
rennslinu að undanförnu og þá er
skjálftavirkni heldur minni en fram-
an af. Hraunið sem runnið hefur nú
þegar er talið vera um það bil einn
rúmkílómetri. Ekki hefur meira
hraun runnið úr íslenskum eldfjöll-
um í einu lagi síðan í Skaftáreldum
seint á 18. öld. Vísindaráð Almanna-
varna segir að sennilega sé Holu-
hraun þriðja stærsta hraun sem
runnið hefur á jörðinni síðan þá.
Hraunið sem rennur núna er
talið vera undir 100 rúmmetrum
á sekúndu en í september var það
nærri 200 rúmmetrum, sem er svip-
að rennsli og í Jökulsá á Fjöllum.
Bárðarbunga heldur áfram að síga
en helmingi hægar en áður. Ekkert
útlit er fyrir að gosinu ljúki í bráð. n
Hægir á Rennslið er nú helmingi minna en í
september. Mynd ÁrMann Höskuldsson