Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2014, Page 16
Helgarblað 5.–8. desember 201416 Fréttir
S
igríður Björk Guðjónsdóttir,
lögreglustjóri á höfuðborgar
svæðinu, hefur verið mikið í
umræðunni að undanförnu,
vegna aðkomu hennar að
lekamálinu. Persónuvernd hefur
krafið hana á skýringa á því hvers
vegna hún sendi aðstoðarmanni
ráðherra persónuupplýsingar úr
rannsóknar og sönnunargögnum
embættis síns á Suðurnesjum. Sig
ríður hefur átt skjótan feril innan
lögreglunnar. Fyrst sem sýslumaður
á Ísafirði, þá aðstoðarríkislögreglu
stjóri, svo lögreglustjóri á Suðurnesj
um og loks á höfuðborgarsvæðinu.
Sigríður er gift Skúla Sigurði Ólafs
syni, syni Ólafs Skúlasonar biskups,
sóknarpresti í Keflavík, og eiga þau
þrjú börn saman. Skipun þeirra í
embætti á Suðuresjum olli mikilli
ólgu innan lögreglu og kirkjusókn
ar á sínum tíma. Hanna Birna skip
aði Sigríði sem lögreglustjóra á höf
uðborgarsvæðinu án auglýsingar, en
þær eru æskuvinkonur, gengu í sama
grunnskóla, og störfuðu saman inn
an Sjálfstæðisflokksins. Viðmælend
ur DV lýsa Sigríði sem miklu hörku
tóli sem eigi það til að fara í felur
undir mikilli pressu.
„Kill them with kindness“
Sigríður fæddist þann 10. júlí árið
1969. Hún er menntaður lögfræðing
ur frá Háskóla Íslands og er með
meistarapróf í Evrópurétti frá Há
skólanum í Lundi. Þá er hún með
diplómagráðu í stjórnun frá Lög
regluskóla ríkisins og í opinberri
stjórnsýslu frá HÍ. Viðmælendur DV
innan lögreglunnar á höfuðborgar
svæðinu segja hana drífandi og dug
mikla. Hún hafi komið inn í nýtt starf
með miklum krafti og leggi mikla
áherslu á aukið jafnrétti innan lög
reglunnar. Þá vilji hún eiga sam
ráð við samstarfsfélaga sína og sem
dæmi hafi hún flutt skrifstofu sína til
þess að vera nær starfseminni.
Aðrir benda á að hún geti verið
næstum yfirdrifið jákvæð á stundum,
og jafnvel þannig að aðrir neyðist til
þess að fylgja henni jafnvel þótt þeir
séu henni ekki sammála. Einn við
mælenda blaðsins talar um að hún
sé svona „kill them with kindness“
týpa. Þá geti hún verið hörð í horn
að taka ef einhver gerir mistök og
hiki ekki við að láta fólk svara fyrir
slíkt. Hins vegar eigi hún erfitt með
að vera undir pressu og eigi það til
dæmis til að hlaupa á flótta undan
óþægilegri fjölmiðlaathygli.
Æskuvinkonur
Sigríður sem er einbirni sleit barns
skónum við götuna Breiðvang í
Norðurbænum í Hafnarfirði. For
eldrar hennar, hjónin Ingunn Þor
steinsdóttir og Guðjón Valdimars
son flugvirki og vopnasali, voru
einungis sextán ára þegar Sigríður
kom í heiminn. Sigríður eyddi öllum
sínum uppvaxtarárum í Hafnarfirði
og fermdist til að mynda í Hafnar
fjarðarkirkju árið 1982.
Hanna Birna Kristjánsdóttir, fyrr
verandi innanríkisráðherra, var ein
af vinkonum hennar í barnæsku.
Þrátt fyrir að þrjú ár skilji þær að,
tókst fljótt með þeim vinskapur enda
ólust þær upp sem næstu nágrann
ar í Norðurbænum og gengu til að
mynda báðar í Víðistaðaskóla. Ljóst
er að mikið traust ríkir þeirra á milli
enn þann dag í dag enda skipaði
Hanna Birna Sigríði sem lögreglu
stjóra höfuðborgarsvæðisins í sumar
án auglýsingar.
Sjálfstæðar konur
Um miðjan tíunda áratuginn tók Sig
ríður Björk virkan þátt í stjórnmál
um. Þær Hanna Birna störfuðu til
að mynda saman innan Sjálfstæðis
flokksins með félagsskapnum Sjálf
stæðar konur og skrifuðu meðal
annars greinar í Morgunblaðið und
ir merkjum hópsins. „Í samræmi við
meginstefnu Sjálfstæðisflokksins er
sjálfstæði og frelsi allra einstaklinga,
kvenna sem karla, grundvallar atriði.
Á þessum grunni vilja Sjálfstæðar
konur að baráttan fyrir jöfnum tæki
færum kynjanna sé háð,“ sagði í
grein sem þær Hanna Birna, Ásdís
Halla Bragadóttir og Jóhanna Vil
hjálmsdóttir birtu í Morgunblaðinu
þann 8. apríl 1995.
Stuttu síðar birtu þær Sigríður
Björk, Áslaug Magnúsdóttir, Elsa B.
Valsdóttur og Lísa Yoder, grein und
ir merkjum Sjálfstæðra kvenna. Þar
mæltu þær gegn tillögu Kvennalist
ans um að lengja skyldi fæðingar
orlof kvenna í níu mánuði: „Sjálf
stæðar konur telja að beiting slíks
úrræðis væri ekki eingöngu gróft brot
á rétti feðra sem uppalendur heldur
jafnframt til þess fallið að gera kon
um erfiðara um vik á vinnumarkaði
og skekkja samkeppnisstöðu þeirra
enn frekar.“
Í þessu samhengi töluðu þær fyr
ir því að bjóða karlmönnum einnig
upp á það að taka sér fæðingaror
lof í stað þess að lengja einungis
fæðingarorlof kvenna. Þær sögðust
þó gera sér grein fyrir því að þessi
þróun yrði hæg. Nálgun Sigríðar og
félaga hennar í Sjálfstæðum konum
var þannig önnur en til að mynda
Kvennalistans. Þær töldu jafnrétti
helst nást með samábyrgð kynjanna
og jöfnu frelsi.
Bæði í lögfræði
Sigríður tók ekki einungis þátt í
kvennabaráttu sjálfstæðiskvenna á
miðjum tíunda áratugnum því eins
og margir ungir hægrimenn þess
tíma var hún höll undir Evrópusam
bandið. Hún tók virkan þátt í stofn
un þverpólitísks félagsskapar sem
setti stefnuna á aðild að Evrópusam
bandinu og var kjörin í aðalstjórn
Evrópusamtakanna á stofnfund
inum í maí 1995. Sigríður og Skúli,
eigin maður hennar, hófu bæði nám
við lögfræðideild Háskóla Íslands að
loknu stúdentsprófi, hann árið 1988
en hún ári síðar. Ólíkt henni lauk
Skúli hins vegar aldrei náminu.
„Ég lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum við Sund 1988 og
var fyrst í lögfræðinámi við Háskóla
íslands. Síðan lenti ég, eins og margir
aðrir, í akademískum hremmingum
en leysti þær með því að fara í guð
fræðinám. Eftir því sé ég ekki,“ sagði
Skúli í samtali við Tímann þann 9.
apríl 1997. Sigríður Björk lauk hins
vegar embættisprófi í lögfræði árið
1993 og hóf sama ár störf hjá emb
ætti ríkisskattstjóra, sem lögfræðing
ur eftirlitsskrifstofu og við lög
fræðisvið tekjuskattsskrifstofu.
Skipuð skattstjóri
Haustið 1995 héldu Sigríður og Skúli,
sem þá áttu tveggja ára dóttur, til
Kaupmannahafnar í nám. Sigríður
lagði stund á framhaldsnám, meðal
annars í skattarétti við Kaupmanna
hafnarháskóla á meðan Skúli stund
aði nám í kennimannlegri guðfræði
og trúarbragðasögu. Að þessu sinni
kláraði Skúli námið en Sigríður ekki.
Þau sneru heim haustið 1996 og strax
við heimkomuna var Sigríður skip
uð skattstjóri Vestfjarðaumdæmis
til fimm ára svo þau fluttust til Ísa
fjarðar. Skúli tók að sér kennslu fyrst
um sinn.
„Ég hef fengist við kennslu í vetur.
Hef kennt í 4. og 10. bekk grunnskóla
Ísafjarðar og þjóðhagfræði við Fram
haldsskóla Vestfjarða. Það er áhuga
vert fyrir prest að starfa að kennslu,
því þannig kynnist maður þverskurði
mannlífsins,“ sagði hann í samtali
við Tímann þann 9. apríl 1997. Skúli
stóð þó ekki lengi í kennslunni. Til
efni viðtalsins var það að hann hafði
hreppt nýtt embætti aðstoðarprests
á Ísafirði. Dóms og kirkjumála
ráðuneytið hafði þá nýlega ákveðið
að veita fjármagni í fasta stöðu að
stoðarprests, stöðu sem hafði ekki
fengist fjármagn fyrir áður og það
þrátt fyrir að lengi hefði verið barist
fyrir því innan Þjóðkirkjunnar.
Vildu til Eyja
Í viðtali við héraðsmiðilinn BB.is í
júlí 1997 sagðist Sigríður vonast til
þess að hún yrði sýslumaður áfram.
„Skattarnir eiga hug minn allan,
þannig að ég veit ekki hvort ég fer
nokkurn tíma úr því kerfi aftur.“ Vorið
1998 sótti hún um embætti sýslu
manns í Vestmannaeyjum og Skúli
um embætti sóknarprests í Vest
mannaeyjum. Sigríður laut í lægra
haldi fyrir öðrum umsækjanda og
Skúli dró umsókn sína til baka. Fjall
að var um málið í Degi þann 10. júní
undir fyrirsögninni „Eini umsækj
andinn dregur sig til baka.“
Þar sagðist Skúli hafa dregið um
sókn sína til baka þar sem Sigríð
ur hefði ekki fengið embætti sýslu
manns. „Það er alltof skammur tími
að vera hér [á Ísafirði] í aðeins eitt
og hálft ár og það er engin ástæða til
þess að fara héðan því fjölskyldunni
hefur líkað afar vel hér. Hér er gott
mannlíf, að ég tali nú ekki um það
fjölbreytta menningarlíf sem hér
er og dafnar. Og úr því þetta Vest
mannaeyjadæmi gekk ekki upp
verðum við hér áfram næstu árin,“
sagði Skúli enn fremur.
Ákveðin að mati ráðuneytis
Sigríður og Skúli voru því áfram á
Ísafirði enn um sinn. Stuttu eftir að
þau eignuðust sitt annað barn sótt
ist Skúli eftir embætti prests með
al Íslendinga í Svíþjóð. Hæfisnefnd
komst að þeirri niðurstöðu að allir
fimm umsækjendur væru hæfir til
að sinna embættinu en að Skúli væri
hæfastur til þess. Fjölskyldan lagði
því land undir fót og hélt til Gauta
borgar þar sem Sigríður lagði meðal
annars stund á nám í sænsku.
Sigríður var þar ytra í febrúar 2002
þegar Sólveig Pétursdóttur, þáver
andi dóms og kirkjumálaráðherra,
skipaði hana í embætti sýslumanns
á Ísafirði. Aftur sneri fjölskyldan til
Ísafjarðar enda langþráður draum
ur um að verða sýslumaður loksins
að verða að veruleika. Málið átti hins
vegar eftir að draga dilk á eftir sér
enda þótti ekki ljóst að Sigríður hefði
verið hæfust þeirra tíu umsækjenda
sem sóttu um embættið.
Þann 12. apríl leitaði einn um
sækjendanna til umboðsmanns Al
þingis til að kanna hvernig staðið
hefði verið að veitingu embættisins.
Hann hafði þá þegar fengið send
an rökstuðning fyrir ákvörðun ráðu
neytisins en þar sagði meðal annars:
„[Sigríður Björk] er ákveðin og á gott
með stjórnun. Hún er metnaðarfull
og nákvæm og fær alls staðar bestu
meðmæli.“
A4-blað dugði
Umboðsmaður óskaði meðal annars
upplýsinga um hvernig ráðuneytið
hefði staðið að rannsókn á þess
um persónulegu eiginleikum Sigríð
ar og bað ráðuneytið um að afhenda
til hæstu metorða á vængjum flokksins
n Líf og starf lögreglustjórans n Iðulega gagnrýnt hvernig staðið hefur verið að skipun Sigríðar Bjarkar í embætti n Var með Hönnu Birnu í Sjálfstæðum konum
Jón Bjarki Magnússon
jonbjarki@dv.is
„Skattarnir
eiga hug minn
allan, þannig
að ég veit ekki hvort
ég fer nokkurn tíma
úr því kerfi aftur.
Lín Design Laugavegi 176 Glerártorgi lindesign.is
Ættartré Grýlu
Dúkar og renningar
Verð frá 4.980 kr