Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2014, Blaðsíða 17
Helgarblað 5.–8. desember 2014 Fréttir 17
embættinu gögn þar um. Svar Sól-
veigar Pétursdóttur við þessu atriði
var á þá leið að þessar upplýsingar
hefðu meðal annars komið fram í við-
tölum við vinnuveitendur. Hins vegar
gat ráðherra ekki lagt fram nein gögn
því til staðfestingar.
Meðal þeirra gagna sem umboðs-
maður hafði fengið frá ráðuneytinu
var afrit af umsókn Sigríðar Bjarkar
rituð á eitt A4 blað. Umboðsmaður
óskaði því eftir upplýsingum um
hvort einhver gögn hefðu fylgt um-
sókninni en svar ráðherra var á þá
leið að svo hefði ekki verið. Hins vegar
hefði ráðuneytið óskað eftir frekari
upplýsingum eftir að umboðsmaður
fór að kanna málið. Í umsókn Sigríðar
hafði komið fram að hún hefði lokið
námi í alþjóðlegum skattarétti frá Há-
skólanum í Lundi vorið 2001.
Ráðuneytið leitaði hins vegar ekki
staðfestingar á þessu fyrr en eftir að
umboðsmaður hóf athugun sína. Í
svörum til umboðsmanns tók ráð-
herra sérstaklega fram að Sigríður
hefði lokið meistaragráðu í Evrópu-
rétti við lagadeild Háskólans í Lundi
vorið 2002 eða eftir að hún hafði verið
ráðin sýslumaður. „Samkvæmt þessu
byggði mat ráðuneytisins á menntun
B [Sigríðar] aðeins á stuttri lýsingu
hennar á heitum námskeiða í um-
sókn sinni til ráðuneytisins án þess að
gerður hafi verið reki að því að upp-
lýsa það atriði frekar,“ sagði í áliti um-
boðsmanns.
Byggt á veikum grunni
Ýmislegt annað varðandi skipunina
kom til álita en niðurstaðan var sú að
dóms- og kirkjumálaráðuneytið hefði
ekki fullnægt rannsóknarskyldu sinni
við mat á menntun, starfsreynslu og
persónulegum eiginleikum umsækj-
enda. Þá hefði ráðuneytið látið undir
höfuð leggjast að gæta þeirra skyldna
sem á því hvíldu um að afla fullnægj-
andi gagna og upplýsinga í skráðu
formi. Umboðsmaður taldi þar með
að ákvörðun um að skipa Sigríði í
embætti sýslumanns hefði ekki verið
byggð á nægjanlega traustum grunni.
„Ég tel ólíklegt að þeir annmarkar
sem ég álít að hafi verið á þeirri
ákvörðun að skipa B [Sigríði] í emb-
ætti sýslumanns á X [Ísafirði] leiði til
ógildingar skipunarinnar að teknu
tilliti til hagsmuna B [Sigríðar]. Þá
eru ekki efni til að ég taki afstöðu til
þess hvort þeir annmarkar eigi að
hafa önnur réttaráhrif,“ sagði meðal
annars í álitinu.
Vildi að UMFÍ borgaði löggæslu
Þrátt fyrir umdeilda skipun hélt Sig-
ríður ótrauð áfram að feta slóðina
sem sýslumaður. Hún hafði ekki ver-
ið lengi í embætti þegar hún vakti
athygli í fjölmiðlum fyrir afar um-
deilda ákvörðun þess efnis að rukka
Ungmennafélag Íslands, UMFÍ, sér-
staklega fyrir löggæslu á unglinga-
landsmóti sem halda átti á Ísafirði
verslunarmannahelgina 2003.
Í frétt DV um málið þann 25. júní
sama ár kom fram að sýslumaður-
inn hefði krafið UMFÍ um 500 þús-
und krónur vegna þessa, en það
væri þriðjungur af heildarkostnaði
við löggæsluna þá þrjá daga sem
mótið stæði yfir. „Við höfum haldið
unglingalandsmót síðan 1992 en
þetta er í fyrsta skipti sem við erum
rukkuð um löggæslukostnað,“ sagði
Sæmundur Runólfsson, fram-
kvæmdastjóri UMFÍ, í samtali við
DV. Hann sagði að landsmót hefðu
verið haldin á vegum félagsins síðan
1907 og að aldrei hefði verið greitt
sérstakt gjald fyrir löggæslu.
„Aldrei lent í svona stælum“
„Við erum sjálf með gæslu á svæðinu
og borgum björgunarsveitum 650
þúsund krónur fyrir hana. Við telj-
um það vera alveg nóg,“ sagði Sæ-
mundur enn fremur. Sigríður Björk
vildi ekki tjá sig um málið við DV en
sagði að hún hefði sent ungmenna-
félaginu skriflegan rökstuðning fyr-
ir ákvörðun sinni. Þrátt fyrir gagn-
rýni talsmanna UMFÍ næstu vikur
og mánuði varð Sigríði ekki hagg-
að. Morgunblaðið fjallaði um mál-
ið þann 2. ágúst en þar kom fram að
UMFÍ hygðist kæra úrskurð sýslu-
manns til ráðherra.
„Við höfum aldrei lent í svona
stælum við yfirvöld áður,“ sagði Sæ-
mundur í samtali við Morgunblað-
ið. „Sýslumaður hótaði því að ef við
myndum ekki fara að kröfum henn-
ar [um að taka þátt í kostnaði við
löggæslu] þá mundi hún senda lög-
regluna á okkur í kvöld [gærkvöld] og
loka skemmtuninni,“ sagði Sæmund-
ur. „Það liggur fyrir ákvörðun sýslu-
manns um að krefja UMFÍ um hluta
af löggæslukostnaði vegna skemmt-
analeyfisskyldra viðburða á ung-
lingalandsmótinu,“ sagði Sigríður
Björk.
Sparsamur sýslumaður
Sigríður vakti þó öllu jákvæðari
athygli í DV ári síðar. „Sigríður Björk
Guðjónsdóttir, sýslumaður á Ísafirði,
rekur embætti sitt með þeim sóma
að árlega sparast milljónir umfram
það sem áætlað var. Á tveimur árum
er rekstrarafgangurinn hjá spar-
sama sýslumanninum orðinn tæp-
ar 5 milljónir króna og það þrátt fyrir
að Sigríður Björk hafi þurft að vinna
niður yfir 4 milljóna króna halla fyrst
eftir að hún tók við embætti,“ sagði
í frétt blaðsins undir fyrirsögninni
„Sparsamur sýslumaður verðlaun-
aður af ríkinu.“
Í þetta sinn var Sigríður tilbúin
að tjá sig um málið. „Það er opið
fjárhagsbókhald hjá okkur og all-
ir starfsmenn geta skoðað það sem
þeir vilja að undanskildum launa-
málum einstakra starfsmanna. Þar
með eru allir ábyrgir,“ sagði Sigríður
sem taldi fullvíst að konur væru hag-
sýnni en karlar og vísaði til annarra
kvenkyns sýslumanna.
Biskup og prestur fermdu
Sigríður og Skúli hafa ekki flagg-
að einkalífi sínu mikið á síðum fjöl-
miðlanna. Þann 12. apríl 2005 birtist
þó áhugaverð frétt um fjölskylduna á
síðum Morgunblaðsins undir fyrir-
sögninni „Aðeins eitt fermingar-
barn.“ Hún fjallaði um fermingu
dóttur þeirra sem fram fór í Bú-
staðakirkju og var vægast sagt með
óhefðbundnu sniði. Dóttirin var
eina fermingarbarnið en faðir henn-
ar presturinn og afi, Ólafur Skúlason
biskup, fermdu hana. Þá tók Sigríður
Björk einnig þátt í athöfninni.
Skúli þjónaði fyrir altari og tón-
aði, en Ólafur flutti predikunina.
„Það var mér mjög mikils virði,“
til hæstu metorða á vængjum flokksins
n Líf og starf lögreglustjórans n Iðulega gagnrýnt hvernig staðið hefur verið að skipun Sigríðar Bjarkar í embætti n Var með Hönnu Birnu í Sjálfstæðum konum
Fylgjast að Skúli og Sigríður hafa fylgt hvort öðru í embætti víðsvegar um landið.
Hörð gegn ungmennafélagi Sigríður Björk krafðist þess að Ungmennafélag Íslands
borgaði þriðjung löggæslukostnaðar vegna unglingalandsmóts.
„Við höfum
aldrei lent í
svona stælum við
yfirvöld áður
Í tvígang án auglýs-
ingar Sigríður Björk
hefur tvívegis verið
skipuð í embætti
án auglýsingar.
Annars vegar af Birni
Bjarnasyni og nú ný-
verið af Hönnu Birnu
Kristjánsdóttur.