Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2014, Page 18
Helgarblað 5.–8. desember 201418 Fréttir
sagði Ólafur. „Þetta var alveg yndis-
legur dagur, og hafa margir haft
orð á því að þessum degi og þessari
stund í Bústaðakirkju muni þeir
aldrei gleyma.“ Ólafur sagði það al-
gera undantekningu að tveir prestar
messi saman. „Það hefur aldrei gerst
mér vitandi að tveir prestar hafi
fermt eitt barn. Það hefur stundum
verið þannig að afar hafa komið inn
í fermingarathöfn hjá öðrum presti
og fermt sitt barn, en þarna vorum
við bara báðir með okkar eina ferm-
ingarbarn.“
Mótmæltu Skúla
Embættisveitingar til handa þeim
hjónum áttu enn eftir að valda usla
þegar Skúli var skipaður sóknar-
prestur í Keflavík. „Mikill meirihluti
sóknarbarna mótmælir vali á nýjum
sóknarpresti,“ sagði í fyrirsögn forsíð-
urfréttar Blaðsins um málið þann 11.
apríl 2006. „Um 75% sóknarbarna,
sextán ára og eldri, í Keflavíkur-
prestakalli hafa skrifað undir lista til
að mótmœla ákvörðun valnefndar
sóknarinnar.
Listinn var sendur kirkjumála-
ráðherra í gœr, en lokaákvörðun er
í hans höndum,“ sagði í fréttinni.
Þá höfðu rúmlega 4.000 manns í
Keflavík farið fram á það við Björn
Bjarnason, dóms- og kirkjumála-
ráðherra, að hann skipaði Sigfús B.
Ingvason í embættið en hann hafði
þá starfað sem prestur í Keflavíkur-
prestakalli í fjöldamörg ár.
Gríðarleg óánægja
Málið var algjörlega í höndum ráð-
herra þar sem ákvörðun valnefndar
var ekki einróma. Björn Bjarnason
vísaði málinu til Karls Sigurbjörns-
sonar, biskups Íslands, sem lagði til
að Skúli yrði fyrir valinu. Þessi varð
niðurstaðan og þrátt fyrir gríðarlega
óánægju sóknarbarna var Skúli skip-
aður í embættið þann 18. apríl 2006.
Skúli færði sig því frá Ísafirði, þar
sem hann hafði verið settur sóknar-
prestur, og til Keflavíkur. Gert var ráð
fyrir því að séra Sigfús myndi þjóna
fyrir altari við innsetningu Skúla
sem sóknarprests en Sigfús var fjar-
verandi.
Skúli tjáði sig um málið í samtali
við Morgunblaðið þann 9. maí sama
ár. „Nú er það mitt að koma að þessari
vinnu af heilindum og auðmýkt,“
sagði hann. Um þá óánægju sem
brotist hafði út vegna skipunar hans
sagði Skúli: „Þetta var ekki gagnrýni á
mig heldur stuðningur við prest sem
þjónað hefur þarna til margra ára og
það kom skýrt fram hjá aðstandend-
um undirskriftasöfnunarinnar. Ég hef
litið á málið í því ljósi.“ Þá sagði hann
að kirkjan gæti lært það af málinu að
miðla upplýsingum með betri hætti.
„Ég hef það á tilfinningunni að margir
hafi haldið að óeðlileg vinnubrögð
hafi verið viðhöfð við þessa ákvörðun
og það sé að hluta til ástæðan fyrir
þeirri reiði sem upp kom.“
Aldrei auglýst
Líklegt er að þeim hjónum hafi ekki
hugnast að búa sitt í hverjum lands-
hlutanum of lengi, hún á Ísafirði og
hann í Keflavík. Þau þurftu ekki að
bíða lengi eftir því að sameinast því
nokkrum mánuðum síðar skipaði
Björn Bjarnason Sigríði til að gegna
embætti aðstoðarríkislögreglustjóra
við embætti ríkislögreglustjóra til
fimm ára frá 1. janúar 2007. Fjöl-
skyldan var því sameinuð á höfuð-
borgarsvæðinu á ný. Skipunin vakti
athygli ekki síst vegna þess að emb-
ættið var aldrei auglýst laust til um-
sóknar. Það leið þó ekki á löngu þar
til enn ein skipunin í embætti átti eft-
ir að valda usla.
Björn Bjarnason skipaði Sigríði
sem lögreglustjóra á Suðurnesjum
árið 2008 í kjölfar umdeildrar
ákvörðunar um að auglýsa stöðu Jó-
hanns R. Benediktssonar, þáverandi
lögreglustjóra, lausa til umsóknar án
nokkurs tilefnis. Jóhann hafði þótt
farsæll í starfi og notið stuðnings á
meðal starfsmanna embættisins.
Víkurfréttir töluðu um einelti í þessu
samhengi og þrír lykilstarfsmenn
sögðu upp störfum vegna málsins.
Félag sem fáir vissu af
Lögreglufélag Suðurnesja brást jafn-
framt við ákvörðun Björns með
harðorðri ályktun um að starfsemi
lögreglunnar þyrfti að vera óháð
duttlungum stjórnmálamanna: „Fé-
lagsmenn í Lögreglufélaginu telja
mikilvægt að hagsmunafélög lög-
reglumanna og aðrir sem láta sig
málið varða taki ákvörðun Björns
til ítarlegrar skoðunar og kanni rétt-
mæti hennar.“
Lögreglustjórafélag Íslands, sem
fáir höfðu vitneskju um að væri
til, sendi hins vegar frá sér álykt-
un þar sem lýst var yfir eindregnum
og óskoruðum stuðningi við dóms-
málaráðherra. Þar sagði jafnframt
að félagið harmaði „þær illskeyttu
og persónulegu árásir sem m.a. ráð-
herra hafi þurft að sæta.“ Fljótlega
komst sá kvittur á kreik að Sigríður
yrði ráðin til starfans enda nyti hún
trausts Björns. Málinu voru gerð skil
á Vísi en þar vildi Sigríður hvorki játa
því né neita hvort hún hygðist sækja
um. Fjórir sóttu um starfið, en Sigríð-
ur var ráðin einungis þremur dögum
eftir að umsóknarfrestur rann út.
Baráttan gegn mansali á
oddinn
Nú var fjölskyldan sameinuð í
Reykjanesbæ. Sigríður setti barátt-
una gegn mansali og heimilisof-
beldi strax á oddinn. „Við þurfum
á öllum þeim meðölum að halda
sem hægt er að fá til þess að berj-
ast gegn mansali. En við þurfum
líka að fá fleiri tæki í verkfærakass-
ann okkar,“ sagði hún á opnum fundi
um aðgerðir gegn mansali á Hótel
Borg þann 30. október 2009. Meðal
þeirra tækja sem hún nefndi voru
forvirkar rannsóknarheimildir til
handa lögreglunni, en Björn Bjarna-
son, sem skipaði þau hjón í embætti
á Suðurnesjum, hefur einmitt lengi
verið talsmaður þess að lögreglan fái
slíkar heimildir.
Sigríður sagði að eitt af vanda-
málunum sem lögreglan stæði
frammi fyrir væri að ekki mætti fram-
kvæma húsleit né skoða tölvur eða
bankareikninga þegar grunur léki á
að fremja ætti glæp, heldur einung-
is þegar búið væri að fremja hann.
Þá sagði hún að upplýsinga- og vit-
undarvakning væri lykilatriði í því að
stemma stigu við mansali og hrósaði
sérstaklega frjálsum félagasamtökum
á borð við Stígamót í því samhengi.
Trúði ekki Guðrúnu Ebbu
Forsíðuviðtal Sigríðar Daggar
Auðunsdóttur við Sigríði Björk í Nýju
Lífi þann 29. mars 2012 vakti mikla
athygli, ekki síst þar sem fram kom
að hún trúði ekki frásögn Guðrúnar
Ebbu Ólafsdóttur, systur eiginmanns
hennar, um að faðir þeirra, Ólafur
Skúlason biskup, hefði ítrekað brotið
gegn henni kynferðislega í barnæsku.
„Ég er búin að vera meira en 20
ár í fjölskyldunni og ég á bara góðar
minningar um tengdaföður minn,“
sagði Sigríður og tók undir með
eigin manni sínum sem hafði talað
um bældar minningar í þessum efn-
um. Þá sagði hún málið hafa reynt
mikið á dóttur sína sem hefði alltaf
verið mikil afastelpa. „Við verðum að
treysta á réttarríkið og það að fólk sé
saklaust þar til sekt þess hefur verið
sönnuð,“ sagði Sigríður enn fremur.
Hugnast hasarinn
„Ég held að það sé hasarinn í lög-
gunni sem höfðar til mín. Það er
alltaf eitthvað gerast og nýjar áskor-
anir,“ sagði Sigríður Björk sem tjáði
sig einnig um baráttuna við vélhjóla-
samtök á borð við Hells Angels í við-
talinu. Samfélagið ætti ekki að falla
fyrir þeirri ímynd að þessir menn
væru saklausir feður á vélhjólum.
„Við viljum gjarnan finna leið-
ir til þess að banna þessa starfsemi,“
sagði Sigríður sem tók meðal annars
fram að húðflúrstofur, fæðubótarefni
og blandaðar bardagalistir (MMA)
væru á meðal þess sem þessir menn
hefðu sérhæft sig í. „Við þurfum að
berjast gegn þessu sem samfélag,
þetta er samfélagsógn.“ Þá benti hún
á að blaðamannastéttin gæti hjálpað
til við að upplýsa starfsemi glæpa-
gengja. „Einnig gætu veitingamenn
hugsanlega tekið sig saman og neit-
að að afgreiða menn sem klæddir
væru í vesti merkt vélhjólagengjum
eða væru merktir þeim á einhvern
hátt.“
Þægilegt að vera ekki þekkt
Á persónulegri nótum sagðist Sig-
ríður Björk ekki vera þekkt andlit í
Keflavík. „Þegar ég var sýslumaður
á Ísafirði þekktu mig allir og það
var bara jákvætt og neikvætt […] Af
einhverjum ástæðum þá er ég ekki
þekkt hérna í umdæminu og mjög
fáir vita hvernig ég lít út. Mér hef-
ur fundist það mjög þægilegt enda
hef ég enga þörf fyrir athygli […] Það
eru mjög margir sem spyrja hvort
ég sé ekki perstsfrúin. Ég held að ég
sé frekar þekkt fyrir það en hitt.“ Þá
sagðist hún telja að konur í valda-
stöðum fengju harðari gagnrýni en
karlar. „Þegar þú ert ung og fersk og á
uppleið þá nýturðu mikillar velvildar
frá samfélaginu og samstarfsmönn-
um. Þegar þú ert komin á ákveðinn
aldur og ert fastari fyrir en ekkert
umfram það sem karlmaður væri,
leyfist konum minna.“
Herör gegn fölsuðum skilríkjum
Sigríður kom einnig inn á mansals-
málin í viðtalinu en þá hafði
fyrsta mansalsmálið komið upp
á Suðurnesjum. Hún sagðist hafa
áhyggjur af þeim ógnunum sem
beitt hefði verið gagnvart vitnum í
slíkum málum. „Þetta eru mjög erfið
mál, ekki bara hér heldur alls stað-
ar í heiminum vegna þess að fórnar-
lambið vill stundum ekki einu sinni
viðurkenna að það sé fórnarlamb og
áttar sig jafnvel ekki á því.“ Sigríður,
sem hefur setið í stjórn Frontex,
landamærastofnunar Evrópu, hefur
talað um frekara vegabréfaeftirliti í
þessu samhengi.
Á fyrrgeindum fundi um aðgerðir
gegn mansali á Hótel Borg þann 30.
október 2009 lagði hún til að mynda
áherslu á að eitt af því sem flestöll
fórnarlömb mansals ættu sameigin-
legt væri að þau ferðuðust á fölsuð-
um skilríkjum. „Það þýðir að ef við
eflum eftirlitið með skilríkjum þá
eru meiri líkur til þess að við finnum
fórnarlömb mansals.“
Hörð afstaða til flóttafólks
Sigríður hefur einmitt sætt gagnrýni
vegna harðrar afstöðu til flóttafólks
sem ferðast um á fölsuðum skilríkj-
um. Sem lögreglustjóri Suðurnesja
lýsti hún yfir vilja til þess að halda
áfram að refsa flóttafólki fyrir framvís-
un falsaðra skilríkja. Þetta kom fram í
umsögn Sigríðar við þingsályktunar-
tillögu um undirbúning frumvarps til
útlendingalaga þar sem stefnt var að
því að hætta slíkum refsingum.
Talskona flóttamannahjálpar
Sameinuðu þjóðanna hefur gagn-
rýnt íslenska ríkið fyrir að fara ítrek-
að á svig við 31. grein flóttamanna-
samningsins sem Ísland er aðili að
en ákvæðið kveður á um bann við
því að hælisleitendum sé refsað fyrir
ólöglega komu til landsins. Í umsögn
sinni hélt Sigríður því hins vegar
fram að íslenska ríkið væri ekki að
brjóta flóttamannasamninginn með
því að fangelsa hælisleitendur.
Aftur án auglýsingar
Sem fyrr segir skipaði Hanna Birna
Sigríði í embætti lögreglustjórans á
höfuðborgarsvæðinu án auglýsingar.
Stefán Eiríksson hafði sagt starfi sínu
sem lögreglustjóri lausu í kjölfar af-
skipta ráðherrans af rannsókn leka-
málsins, en umboðsmaður Alþing-
is hefur málið nú til skoðunar. Eitt af
því sem virðist hafa breyst við komu
Sigríðar í lögreglustjórastólinn er að
upplýsingamiðlun embættisins til
fjölmiðla virðist ábótavant.
Þannig má nefna að blaðamenn
DV hafa ítrekað leitað viðbragða Sig-
ríðar vegna ýmissa mála en engin
svör fengið. Þessu var öðruvísi háttað
í tíð forvera hennar sem svaraði iðu-
lega spurningum blaðamanna. Ýms-
ir fjölmiðlar hafa svo reynt að ná tali
af Sigríði vegna aðkomu hennar að
lekamálinu en hún hefur að mestu
neitað því að svara spurningum. Um-
mæli hennar í samtali við fréttastofu
RÚV vegna málsins vöktu athygli: „Ég
er með átján ára flekklausan feril. Þið
eruð að draga mig niður.“
Skipun Sigríðar í embætti hefur
fallið í skuggann af lekamálinu enda
átti hún í tölvupóst- og símasam-
skiptum við Gísla Frey Valdórsson,
um málefni hælisleitendans Tonys
Omos sama dag og upplýsingar úr
mansalsrannsókn lögreglunnar á
Suðurnesjum birtust í fjölmiðlum.
Upplýst hefur verið að hún sendi
persónuupplýsingar úr rannsóknar-
og sönnunargögnum embættisins
með tölvupósti á Gísla Frey en lög-
reglustjórar landsins furðuðu sig
á vinnubrögðunum í samtali við
Fréttablaðið.
Unnið á tölvu Öldu
Lögreglustjórafélag Íslands brást við
með ályktun þar sem fjölmiðlar voru
sakaðir um að gera samskiptin tor-
tryggileg. Síðar upplýsti DV að til-
kynningin hefði verið sett saman á
vinnutölvu náins samstarfsmanns
Sigríðar, Öldu Hrannar Jóhanns-
dóttur, setts aðstoðarlögreglustjóra
á höfuðborgarsvæðinu. Sigríður setti
Öldu Hrönn í embættið í stað Harðar
Jóhannessonar sem var settur
tímabundið yfir verkefnastjórn hjá
ríkislögreglustjóra í staðinn. Hörður
var einn nánasti samstarfsmaður
Stefáns á meðan hann fór fyrir fram-
kvæmd lögreglurannsóknarinnar á
lekamálinu.
Talað hefur verið um valdatafl inn-
an lögreglunnar í þessu samhengi og
herma heimildir DV að ekki séu allir
á eitt sáttir með vinnubrögð Sigríðar.
Hún er nú sögð vinna afar náið með
ríkislögreglustjóra að verkefnum sem
eiga að heyra undir lögregluembættið
á höfuðborgarsvæðinu. Þá er Theó-
dór Kristjánsson, aðstoðaryfirlög-
regluþjónn og bróðir Hönnu Birnu,
sagður hennar helsti ráðgjafi. Ein af
þeim spurningum sem hafa vakn-
að í ljósi þess að símanotkun Hönnu
Birnu var ekki skoðuð við rannsókn
lekamálsins er hvort æskuvinkonurn-
ar Hanna Birna og Sigríður hafi rætt
saman um málefni Tonys Omos dag-
ana fyrir lekann. Þær hafa báðar sagt
að þær minnist þess ekki.
DV hefur leitað svara við þessari
spurningu hjá innanríkisráðu-
neytinu en engin svör fengið. n
„Mikill
meirihluti
sóknarbarna mót-
mælir vali á nýjum
sóknarpresti
Birni þakkað Fulltrúar frá Lögreglustjórafélagi Íslands gengu á fund Björns Bjarnasonar hinn 28. janúar 2009 og þökkuðu honum stuðn-
inginn, skömmu eftir að hann hafði skipað Sigríði Björk í embætti lögreglustjóra á Suðurnesjum. Á myndinni má sjá, með Birni, Sigríði Björk,
Ólaf Helga Kjartansson, þáverandi sýslumann á Selfossi, og Ólaf K. Ólafsson, sýslumann í Stykkishólmi.
Små Rollinger á Íslandi
Himneskar ullarvörur
Enginn kláði -
bara yndisleg mýkt
50% Merino ull
50% Bómull