Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2014, Síða 30
Helgarblað 5.–8. desember 201430 Fólk Viðtal
Spilling ekki mikið minni
en í Búlgaríu – en öðruvíSi
n Björgólfur Thor Björgólfsson ræðir um einkavæðingu bankanna, hrunið, spillinguna og upprisuna
B
jörgólfur Thor Björgólfs
son, tapaði 99 prósent
um af 400 til 500 millj
arða króna eignum sínum
í hruninu 2008. Frá þessu
segir hann í nýrri bók sem kom
in er út á ensku en er væntanleg á
íslensku snemma næsta árs. DV
birti fyrir viku brot úr einum kafla
bókarinnar (Billions to Bust – and
Back) þar sem fjallað er um ævin
týralegan rekstur og uppgang
drykkjarvöru og bjórframleiðslu
sem Björgólfur Thor, faðir hans og
fleiri settu á fót í Pétursborg í Rúss
landi á tíunda áratug síðustu aldar.
Björgólfur Thor hefur nú aftur
komið undir sig fótunum í krafti
tveggja prósenta eignar sinnar í
lyfjafyrirtækinu Actavis – sem nú
er mikið að vöxtum – og helmings
eignarhlutar í pólska síma og fjar
skiptafyrirtækinu Play, sem er nú
meðal stærstu síma og fjarskipta
fyrirtækja þar í landi. Lýsingarnar í
bókinni bera með sér að hann hafi
átt margt undir góðu samkomu
lagi við Deutsche Bank, helsta
lánveitanda Actavis og Novator.
Með samkomulagi við Deutsche
Bank og Watson Pharmaceuticals,
bandarískan kaupanda Actavis, er
að sjá sem Björgólfi hafi tekist að
standa við skuldbindingar sínar
gagnvart lánardrottnum.
Einkavæðingin sveigð
að þörfum S-hópsins
Við lestur bókarinnar vöknuðu
nokkrar spurningar sem DV þótti
tilefni til að leggja fyrir Björgólf
Thor og fá nánari skýringar. Ein
þeirra snertir umfjöllun hans
um kaup Samson á ráðandi hlut
í Landsbankanum þegar hann
var einkavæddur árið 2002/2003.
Fyrir liggur samþykkt Alþingis frá
því í nóvember 2012 um rann
sókn á einkavæðingu bankanna
sem margir telja vera helstu orsök
bankahrunsins.
„Því ekki að rannsaka einkavæð
ingu bankanna,“ segir Björgólfur
Thor. „Ég gagnrýndi hana með
hinum og þessum rökum, benti
meðal annars á ógagnsæi og fleira.
Þannig að ég sé ekkert því til fyrir
stöðu að taka upp þráðinn og rann
saka einkavæðinguna. Ég er svo
sem ekkert að velta þessu mikið
fyrir mér nú orðið. En mér fannst
margt skrítið við þetta og stend við
það. Eðlileg vinnubrögð í viðskipt
um voru ekki höfð í heiðri. Þegar
við buðum í Landsbankann var far
ið að róa í okkur. Nei, nei ekki bjóða
í Landsbankann. Bjóðið frekar í
Búnaðarbankann. En við svöruð
um, að við værum búnir að bjóða
og viðskiptin snerust um hann.
Þá allt í einu var farið að fikta með
að slíta VÍS tryggingafélagið, eina
stærstu eign Landsbankans, út úr
honum og hún sett í hendurnar á
einhverju liði sem notaði þetta svo
til að kaupa annan banka. Þetta var
fáránlegt. Þessu má líkja við eftir
farandi: Þú átt tvo krakka og ann
ar þeirra kemur heim og segist
ætla að kaupa flotta takkaskó af
því að hann er er búinn að vinna
sér inn einhverja peninga. Þá kem
ur litli bróðir og segir: „Ég verð að
fá að kaupa eitthvað líka.“ Ætlar þú
þá að segja við þann litla að hann
hafi ekki unnið sér inn neinn pen
ing eins og sá stóri eða ætlar þú að
segja að sama verði yfir þá báða
að ganga. Ef við tökum tillit til litla
bróður verðum við að smíða kerfið
utan um þetta upp á nýtt. Samning
ur um innlimun Kaupþings á Bún
aðarbankanum var gerður löngu
áður en hann var tilkynntur. Þegar
ég kom að söluferli bankanna var
ég búinn að vera nálægt einkavæð
ingu í austanverðri Evrópu. Þar
var alltaf aðalmálið að fá erlenda
fjárfesta með nýja erlenda pen
inga inn í kerfið. Við hugsuðum að
þannig hlyti það einnig að vera á
Íslandi. Við hugsuðum sem svo að
við værum að þessu leyti erlendir
fjárfestar með erlenda peninga
frá Heineken og værum tilbún
ir að koma með þá inn í kerfið. Já,
það er fínt sögðu menn, en byrj
uðu um leið að endurhanna kerf
ið kringum þetta til að gera öðrum
hópi kleift að kaupa banka. Eftir
það var allt einkavæðingarferlið
hnoðað saman í kring um Shóp
inn til þess að gera honum kleift að
eignast þetta. Einkavæðingarferlið
varð fyrir vikið mjög gallað og lé
legt fyrir íslenska ríkið. Ríkið hefði
getað fengið miklu betra verð fyr
ir Búnaðarbankann með því að
selja hann eftir eitt eða tvö ár. Það
hefði getað gert miklu meiri kröf
ur til dæmis um erlent fjármagn og
erlenda banka sem bakhjarla ef um
lán væri að ræða, allt til að auka er
lent innflæði á fjármagni til Íslands
í stað þess að búa það til heimafyrir
og efna í stóra skuldabólu.“
Vildum ekki kaupa ónýt lán
Björgólfur Thor og Samson gerðu
fyrirvara um kaupin á Landsbank
anum vegna útlána sem þeir töldu
verðlaus og ónýt. Kaupanda og selj
anda greindi á um 700 milljónir eða
svo. Ekki hefur verið leitt í ljós hvort
kaupendur Búnaðarbankans gerðu
einnig slíkar kröfur um að færa nið
ur kaupverð ef í ljós kæmi eitthvað
svipað í þeim viðskiptum.
Björgólfur segir að ætlunin hafi
verið að kaupendur greiddu um
samið verð. „Okkar tilboð var skýrt:
Við borgum þetta verð fyrir hvern
hlut miðað við að eignir bankans
séu þær sem Landsbankinn og rík
ið halda fram. Alþjóðlegt endur
skoðunarfyrirtæki okkar sagði á
móti: Þetta er ekki rétt mat. Hér eru
verðlausar eignir, þessi tilteknu lán
eru ónýt. Við sögðum við fulltrúa
ríkisins að taka yrði tillit til þessa
því við ætluðum ekki að borga fyrir
hluti sem væru ekki til. Menn voru
voðalega mæðulegir yfir þessum
kröfum og við sögðum gott og vel;
kannski eru þetta borgunarmenn
fyrir sínum lánum eða þá að ríkið
borgar þá bara þessi lán. Ef einhver
borgar þessi lán þá stöndum við við
okkar og borgum fullt verð. Ef ekki,
þá erum við að kaupa gallaða vöru
sem við borgum ekki fullt verð fyrir.
Við töldum að það yrði að koma
fram í næsta uppgjöri hvort þessi
tilteknu lán væru ónýt eða ekki. Ef
þau reyndust vera í lagi myndum
við borga fullt verð. Þarna varð til
einhver pólitísk hringavitleysa og
menn fóru að tala um afslátt. Þetta
var ekki spurning um neitt slíkt. Við
Jóhann Hauksson
johannh@dv.is
Ólgusjór Björgólfur
Thor um klíkuskap og
spillingu: „Þetta er
ekki verra á Íslandi en
í Búlgaríu. En þetta er
ekki mikið betra.“
„Þá allt í einu var
farið að fikta með
að slíta VÍS trygginga-
félagið, eina stærstu eign
Landsbankans, út úr hon-
um og hún sett í hend-
urnar á einhverju liði sem
notaði þetta svo til að
kaupa annan banka.
Actavis Actavis er nú stór alþjóðlegur lyfj-
arisi sem Björgólfur Thor á aðeins um tveggja
prósenta hlut í eftir 15 ára uppbyggingu. Hann
á hins vegar helmingshlut í Play, einu stærsta
síma- og fjarskiptafyrirtæki Póllands.
Verslanir á Laugavegi 182 og í Smáralind · sími 512 1300 · epli.is
Solo2
Studio 2.0