Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2014, Side 38
38 Lífsstíll Helgarblað 5.–8. desember 2014
n Hreinn matur er yfirleitt hollur n Fáðu þér kartöflubáta í stað franskra
N
æringarfræðingar eru ekki
alltaf sammála um hvað sé
hollast fyrir fólk og hvaða
mat ætti að forðast. En sam-
kvæmt næringarfræðingi
hjá NYU Langone Medical Center í
New York er ýmis matur sem talinn
er óhollur alls ekki svo slæmur ef
hann er rétt matreiddur.
1 Hvítar kartöflur
Franskar og
kartöflugratín hafa
gefið venjulegum
kartöflum vont
orðspor. En þær hafa
alltént verið hið nýja
grænkál. Kartöflur innihalda
C-vítamín, B6-vítamín og trefjar (ef
þær eru óskrældar). Til þess að halda
þeim hollum er gott að borða þær
með salsasósu, grilluðum hvítlauk
eða ólífuolíu. Ef þú þráir franskar, er
hægt að grilla kartöflubáta.
2 Hnetusmjör Það er ekki hægt að neita því að hnetu-
smjör er mjög hitaeiningaríkt en
það er sneisafullt af heilsusamleg-
um fitum sem hjálpa til við að vinna
úr mikilvægum vítamínum.
Kaloríurnar eru hins vegar þess
virði, svo lengi sem þú borðar
rétt hnetusmjör. Forðastu að
kaupa tegundirnar sem hafa
lágt fituinnihald því þar er búið
að bæta við sykri, salti og fleiri
aukaefnum í stað fitunnar. Best er
að velja lífrænt
hnetusmjör úr
jarðhnetum,
möndlum eða
kasjúhnetum
sem inniheld-
ur lítið annað
en hneturnar
sjálfar.
3 Smjör Smjör í litlu magni er ekki svo slæmt, sérstaklega ef
sama magn er borið saman við
smjörlíki. Smjör inniheldur meira af
mettuðum fitusýrum en smjörlíki
en nýlegar rannsóknir sýna að það
er ekki eins mikil fylgni á milli þeirra
og hjartasjúkdóma og fólk hélt. Það
þýðir þó ekki að þú eigir að fara að
borða heilu dúnkana af smjöri,
heldur þýðir þetta að þú þarft ekki
að sleppa einhverjum mat því
uppskriftin kallar á smávegis af
smjöri. En ef þú átt þess kost að
setja ólífuolíu í staðinn, þá er það
alltaf betri kostur.
4 Sykur Fólk tengir sykur við matvæli sem innihalda mikið
magn af kaloríum en litla næringu
líkt og kökur og nammi. Hins vegar
breytir líkaminn sykri í glúkósa sem
er mikilvægt eldsneyti fyrir frumur
líkamans. Ávextir innihalda
náttúrulegan sykur en ef mataræði
þitt er nokkuð heilsusamlegt þá er
allt í lagi að bæta við smá hunangi í
teið þitt eða smá sykri í kaffið. Það
sem skiptir máli eru skammtastærð-
ir og best væri að geyma eftirrétti
sem innihalda mikið af sykri fyrir
sérstök tilefni ef þú ert að reyna að
léttast.
5 Heitt súkkulaði Það eru efni í kókó sem hjálpa
líkamanum við að verjast veikindum
og sjúkdómum. Þetta á þó ekki við
um mikið unnið mjólkursúkkulaði og
súkkulaðisíróp. Til að geta notið þess
að drekka heitt súkkulaði er gott að
hita bolla af sojamjólk án sætu eða
léttmjólk og setja svo tvær matskeið-
ar af hreinu kókódufti út í. Hægt er
að bæta við ögn af vanilludropum og
svo smávegis af sykri eða hunangi.
6 Pítsa Ein til tvær sneiðar af pítsu endrum og eins mun
engan drepa, sem eru góðar fréttir
því pítsur færa mörgum ómælda
ánægju. Hins vegar er betra að velja
þunnbotna pítsu, með fullt af
grænmeti og ekki of miklu af osti.
Eins væri gott að borða ekki alla
pítsuna.
7 Popp Bíópopp og venjulegt örbylgjupopp er ekki það
hollasta í heimi en hins vegar ef þú
poppar sjálfur í potti eða poppvél þá
er þetta í góðu lagi þar sem það
getur verið eins lítið og 31 kaloría í
einum bolla. Jafnvel létt saltað
örbylgjupopp getur verið fínt.
8 Kolvetni Svo lengi sem þú borðar mestmegnis heilkorn,
sem finnst til að mynda í heilhveiti-
brauðum og pasta, brúnum hrís-
grjónum og quinoa, þá geta kolvetni
verið heilsusamleg. Þrátt fyrir slæmt
orðspor, þá er heilkornakolvetni full
af trefjum og næringu sem heldur
meltingarkerfinu í lagi, sem á móti
bætir ónæmiskerfið, kemur í veg fyrir
að maður verði útþaninn og jafnvel
minnkar líkurnar á hjartasjúkdóm-
um, krabbameini og sykursýki.
9 Ostur Nýjar rannsóknir sýna að blanda af venjulegum og
fitusnauðum mjólkurvörum líkt og
osti geta lækkað blóðþrýsting, jafnað
blóðsykurinn, hjálpað þér að halda
þyngdinni í lagi og meira að segja
lengt líf þitt.
10 Venjuleg salatsósa Salatsósur sem eru gerðar úr
grænmetisolíum eins og ólífum,
sólbólmum og vínberjafræjum eru
fullar af heilsusamlegri fitu sem
hjálpa líkama þínum að ná
næringarefnum úr öðrum mat og
þar á meðal innihaldi salatsins.
Fitumiklar sósur geta jafnvel gert
salatið heilsusamlegra, sérstaklega
þegar þær eru bornar saman við
fitusnauðar sósur, þar sem það er
oft búið að bæta við salti og sykri í
þær. Hins vegar er gott að forðast
hvítar sósur því þær eru yfirleitt
gerðar úr rjóma eða majónesi. Þær
eru fullar af óhollri fitu og ekki virði
hitaeininganna. n
Gerðu óhollustuna holla
Hnetusmjör Hreint hnetusmjör, án allra
aukaefna, er mjög hollt.
Ekki sleppa
salatdressingu
Þó að maður sé að
taka til í matar-
æðinu er óþarfi að
sleppa öllu.
Helga Dís Björgúlfsdóttir
helgadis@dv.is
„Hlustaðu“ á
eyrun
Eyrun eru ekki aðeins til að heyra
með heldur geta þau gefið vís-
bendingar um heilsufar okkar.
Krumpa á eyrnasnepli
Útlit ytra eyrans getur gefið vís-
bendingar um heilbrigðis hjart-
ans. Í rannsókn frá 1989 sem birt-
ist í Brithes Heart Journal kom
í ljós að einstaklingar sem hafa
krumpu á eyrnasnepli eru líklegri
til að þjást af hjartasjúkdómum.
Vísindamenn eru enn ekki vissir
hvernig þetta tvennt tengist. Þessi
krumpa getur einnig verið merki
um Beckwith-Wiedemann heil-
kennið sem veldur ofvexti.
Eyrnamergur
Í rannsókn frá 2009 sem birtist
í The FASEB Journal kom í ljós
að genið ABCC11, sem vanalega
finnst í fólki í Austur-Asíu, veldur
mikilli svitalykt og miklum blaut-
um eyrnamerg sem svo tengist
auknum líkum á brjóstakrabba-
meini.
Rauð eyru
Eyru eiga til að verða eldrauð.
Þegar roðinn tengist ekki reiði eða
kulda getur hann verið vísbending
um nýrnavandamál. Þetta kemur
fram í Medline Plus.
Syngjandi eyru
Viðvarandi
blístur, suð,
kliður eða
drunur eru
algengir fylgi-
fiskar háværr-
ar tónlistar. Að
sögn vísindamanna við Harvard-
læknaskólann getur hljóðið kom-
ið frá öðru eyra í annað, innan úr
höfðinu eða úr fjarlægð. Ef ein-
kennin eru til staðar lengur en í
sex mánuði getur það verið merki
um krónískt eyrnasuð. Slíkt er
sjaldnast merki um heyrnarleysi
eða alvarleg vandamál.
Lítil eyru
Lítil eyru geta þótt aðlaðandi
en þau geta einnig gert þig við-
kvæmari fyrir exemi og nýrna-
vandræðum. „Einstaklingur með
lítil eyru er vanalega einnig með
þröng eyrnagöng sem eykur lík-
ur á exemi í eyrum,“ segir eyrna-
sérfræðingurinn George Murty
við breska háskólann í Leicester í
viðtali við Daily Mail. Murty segir
einnig að lítil eyru sem staðsett
séu neðarlega á höfðinu, fyrir
neðan augnlínu, geti verið vís-
bending um nýrnavandamál.