Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2014, Qupperneq 52
Helgarblað 5.–8. desember 2014
95. tölublað 104. árgangur Leiðbeinandi verð 659 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Ég gefst
upp eins
og skot!
Bjölluhljómur
í borgarráði
n Dagur B. Eggertsson, borgar
stjóri Reykjavíkur, mætti á borgar
ráðsfund á fimmtudag klæddur
í skrautlega jólapeysu. Það var
sirkuskonan Margrét Erla Maack
sem færði honum forláta peysu
frá útlöndum, sem minnir á peysu
úr kvikmyndinni Brigdget Jones.
„Margrét Margrét Erla Maack
toppaði þetta með því að koma
heim með nýkeypta Marc Darcy
peysu, sem er ekki bara með
hreindýri heldur líka bjöllum.
Og það eru orð að sönnu að það
hefur alltaf vantað bjölluhljóm
í borgarráð,“ segir Dagur sem
margir hafa líkt við Marc Darcy, úr
kvikmyndinni, í gegnum tíðina.
Uppgjafaritstjóri
n Illugi Jökulsson, rithöfundur
og útvarpsmaður, heldur á Face
booksíðu sinni uppi harð
skeyttri samfélagsrýni. Hann
hefur ekki mikið álit á ráðn
ingu Ólafar Nordal. Hann lætur
þá skoðun sína í ljós að honum
hugnist að ráðherrar séu sóttir
út fyrir þingflokka, en að þá yrðu
valinkunnir fagmenn að verða
fyrir valinu – ekki „uppgjafapóli
tíkusar“.
Þetta orð fer fyrir brjóstið á
Facebookvinum Illuga, sem
svarar: „Þetta þýðir bara ein
hvern sem hefur gefið pólitík
upp á bátinn,“ segir
hann og skrifar
svo. „Ég er allt
í senn: upp
gjafasjómaður,
uppgjafasendill,
uppgjafaritstjóri,
og margt
annað.“
Björk bauð skot
n Samkvæmt Séð og heyrt skemmti
söngkonan Björk Guðmundsdóttir
sér vel á Prikinu á laugardaginn var.
Í liðnum „Heyrst hefur“ kemur fram
að söngkonan hafi verið í jogging
galla, með hettuna uppi og boðið
gestum og gangandi upp á skot á
barnum. Björk er sennilega frægasti
Íslendingur allra tíma en í markaðs
rannsókn Future Brand sem kynnt
var á sjávarútvegs
ráðstefnunni
fyrir skemmstu
kom í ljós að
þekktasta vöru
merki lands
ins er Björk
en næst komu
Icelandair og
Bláa lónið.
Safnar fyrir jólasveina í gjafavanda
G
runnskólakennarinn Styrmir
Barkarson í Reykjanesbæ hefur
annað árið í röð blásið til söfn
unar fyrir alla þá jólasveina
sem eru í gjafavanda yfir hátíðarnar.
Styrmir, sem í fyrra safnaði yfir þús
und gjöfum, segist ekki standa einn
í þessu því án peningagjafanna, sem
fólk hefur verið að millifæra, væri
ekkert að gerast.
„Verslunareigendur hafa líka
verið svo almennilegir að gefa afslátt
af gjöfum sem ég kaupi en algjört
heiðurssæti á þeim lista fá Þorleifur
og Valgerður hjá Diplo sem flytur inn
LEGO og fleira. Þorleifur hefur gefið
rausnarlega í söfnunina og ég hef svo
notið dyggrar aðstoðar Valgerðar við
að kaupa hjá þeim vörur á frábærum
kjörum,“ segir Styrmir og bætir við að
afslættirnir og þessi frábæru kjör geri
gæfumuninn í að drýgja það fé sem
berst í söfnunina.
„Ég vil nefnilega ekki að neitt barn
verði fyrir því að missa af skógjöf frá
jólasveininum. Þannig að við erum
að tala um yfir fimm hundruð litl
ar gjafir og þetta er bara byrjunin. Ég
reikna með að geta farið með þrjú
hundruð til fimm hundruð smágjafir
til viðbótar í dreifingu,“ segir Styrmir
sem fær Velferðarsjóð Suðurnesja til
að dreifa gjöfunum.
Styrmir segir fólk hafa lagt inn yfir
þrjú hundruð þúsund krónur sem
komi sér vel fyrir söfnunina. En hver
sér um að pakka þessu öllu inn?
„Konan mín og nánasta fjölskylda
hjálpar til við að pakka inn gjöfunum
og sortera þær. Það skiptir líka gríðar
lega miklu máli hvað konan mín er
þolinmóð við mig þegar ég er fjarver
andi að stússast vegna söfnunarinn
ar,“ segir Styrmir og hlær.“ n atli@dv.is
Styrmir Barkarson, grunnskólakennari í Reykjanesbæ, blæs til söfnunar um jólin
Styrmir Barkarson Grunnskólakennar-
inn í Reykjanesbæ safnar fyrir jólasveinum í
gjafavanda. MynD SIGtryGGur ArI