Bændablaðið - 29.01.2015, Page 15
15Bændablaðið | Fimmtudagur 29. janúar 2015
Ríflega 40 þúsund gestir heimsóttu
Byggðasafn Skagfirðinga á liðnu
ári að því er fram kemur á
heimasíðu safnsins, en þar eru
listuð upp ýmis verkefni sem tekist
var á við á liðnu ári.
Þar á meðal var fornleifauppgröftur
á 11. aldar skála á Hamri i Hegranesi
en einnig var skipt út sýningunni
Gersemar og þarfaþing, í sal
Minjahússins á Sauðárkróki, fyrir
geymslusýninguna Hitt og þetta úr
geymslunni.
Þá var haldið áfram viðgerðum
og byggingahandverkskennslu
á Tyrfingsstöðum með Forn-
verkaskólanum, lokið var við að skrá
strandminjar út að austan og þá var
einnig unnið við að skrá og rannsaka
austfirskar minjar. „Við skráðum
2.500 ljósmyndir frá Tyrfingsstöðum
í Sarp,“ segir á vef safnsins.
Haldið var áfram við verkefnið
Eyðibýli og afdalir í samstarfi við
starfsmenn Byggðasögu Skagafjarðar
og fjöldi nýrra staða var kannaður.
Staðir og svæði sem rannsökuð
hafa verið í tengslum við útgáfu
ritsins eru hátt í 80 talsins. Unnið
var að miðaldakirkjurannsóknum
með bandarísku rannsóknarteymi
(SASS), sem safnið er og hefur verið
í samstarfi við.
Byggðasafnið tók þátt í evrópska
samstarfsverkefninu LoCloud í
samstarfi við Minjastofnun Íslands.
En verkefnið miðar að því að
gera smærri söfnum eða öðrum
menningarstofnunum kleift að gera
starfrænt efni aðgengilegt á netinu.
Þá voru gefnar út átta
rannsóknarskýrslur á vegum
byggðasafnsins á liðnu ári og eitt
smárit. /MÞÞ
Lynghálsi, Reykjavík
lifland@lifland.is
Lónsbakka, Akureyri
www.lifland.isSími 540 1100
Lífland söluráðgjöf
kjarnfóður
Lífland býður nú kúabændum að útbúa fóðuráætlun fyrir þá, byggða á
greiningum heysýna og upplýsingum um hjörðina á hverju búi.
Lífland hefur um árabil verið í fararbroddi með fjölbreytt úrval
kjarnfóðurtegunda fyrir kúabændur.
Lífland kynnir nú fjórar nýjar kjarnfóðurtegundir
Sparnyt er ein af
vinsælustu kjarnfóðurtegundum
Líflands og f st nú án erfðabreyttra
hráefna.
Kostur 16
Kostur 19
Kostsblöndurnar innihalda meðal annars
sojahýði, sykurrófur og C:16 fitusýrur. Með
réttu gróffóðri geta þessi hráefni hækkað
fituhlutfall og aukið nyt.
Efstubraut, Blönduósi
Mikið um að vera hjá Byggðasafni Skagfirðinga:
Ríflega 40 þúsund gestir
í heimsókn á liðnu ári
Umferðin um Víkurskarð austan
Akureyrar jókst um 8,6 prósent í
fyrra en það jafngildir því að um
100 fleiri bílar fóru um skarðið að
meðaltali á degi hverjum allt árið
miðað við árið á undan.
Að meðaltali fóru tæplega 1.230
bílar á dag um Víkurskarð. Mest
varð aukningin í sumarumferðinni
en þá fóru að meðaltali daglega
2.155 bílar um skarðið.
Niðurstöður umferðartalningar
um Víkurskarð fyrir árið 2014 liggja
nú fyrir og er frá þeim sagt á vefsíðu
Vegagerðarinnar. Alls fóru tæplega
450 þúsund ökutæki um Víkurskarð
á liðnu ári, sem er nokkur fjölgun
frá árinu á undan þegar ökutækin
voru um 413 þúsund talsins, eða um
37 þúsund færri. Aukningin nemur
um 8,6%. Hún samsvarar því að um
100 fleiri ökutæki hafi farið daglega
yfir skarðið í fyrra miðað við árið
á undan.
Þetta er þriðja mesta
árdagsumferð frá upphafi að því er
fram kemur á síðu Vegagerðarinnar.
Nýtt met var hins vegar slegið
í sumardagsumferðinni en aldrei
hafa fleiri bílar farið um skarðið
á tímabilinu frá og með júní til og
með september eða 2.155 bílar á
sólarhring að meðaltali. Rúmlega
8% samdráttur varð hins vegar í
vetrardagsumferðinni vegna mun
minni umferðar fyrstu 3 mánuði
ársins 2014.
Víkurskarð:
Umferð jókst
um 8,6%