Bændablaðið - 29.01.2015, Page 18
18 Bændablaðið | Fimmtudagur 29. janúar 2015
Hestamannafélagið Léttir á Akureyri:
Viðar og Fanndís verðlaunuð
fyrir góðan árangur
Hestamannafélagið Trausti í Bláskógabyggð:
Sögusýningar, hestasýningar og ævintýra-
og húsdýragarður fyrir ferðamenn
Á aðalfundi Hestamannafélagsins
Trausta í Bláskógabyggð í
síðustu viku voru m.a. kynntar
hugmyndir félagsins um að koma
upp þjóðmenningarsetri fyrir
ferðamenn á nýju og glæsilegu
félagssvæði Trausta á Þorkelsvelli
skammt frá Laugarvatni.
Vígt síðasta sumar
Svæðið var vígt síðasta sumar og
er við Gullna hringinn. Íslensk
þjóðmenning, þjóðsögur og
þjóðhættir verður rauði þráðurinn
í setrinu, auk þess sem í boði verða
sögusýningar, hestasýningar og
ævintýra- og húsdýragarður.
„Mér líst ágætlega á þessar
hugmyndir, þarna eru á ferðinni
stórar og miklar hugmyndir með
Þjóðmenningarsetur. Aðkoma
sveitarfélagsins að þessu máli yrði
ef breyta þyrfti deiliskipulagi,“
segir Helgi Kjartansson, oddviti
Bláskógabyggðar, þegar hann var
spurður hvernig honum lítist á
hugmyndina. Formaður Trausta er
Guðmundur Birkir Þorkelsson.
/MHH
Fjölmörg og fjölbreytileg verkefni bíða nýs framkvæmdastjóra Sambands garðyrkjubænda:
Áfram unnið að öflugu
rannsókna- og gæðastarfi
Katrín María Andrésdóttir hóf
störf sem framkvæmdastjóri
Sambands garðyrkjubænda hinn
6. janúar síðastliðinn.
Katrín er alin upp í Skagafirði
og hefur lengst af verið búsett
þar, fyrstu árin í sveit en síðar á
Sauðárkróki. Hún útskrifaðist
sem sjúkraliði frá Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra árið 1988.
Í framhaldi af sjúkraliðanáminu
lauk Katrín María stúdentsprófi og
síðar BS-prófi í viðskiptafræði frá
Háskólanum á Akureyri. Á næstu
misserum er svo stefnan að ljúka
meistaranámi í opinberri stjórnsýslu
frá Háskóla Íslands en Katrín María
vinnur nú að lokaverkefni vegna
þess.
Katrín María segir að
sjúkraliðamenntunin sé í raun
mjög hagnýt til margra hluta.
,,Til dæmis læra sjúkraliðar
sitthvað um líffræði, eðlisfræði og
efnafræði – og það hefur í mínu
tilfelli oft komið sér vel þegar ég
hef verið að vinna með fólki til
dæmis í framleiðslufyrirtækjum.
Ég hef verið svo heppin að fá að
vinna að mjög skemmtilegum
og fjölbreyttum verkefnum. Ég
starfaði til dæmis um árabil sem
atvinnuráðgjafi hjá Samtökum
sveitarfélaga á Norðurlandi vestra,
svo ég hef ágæta reynslu af því að
starfa með litlum og meðalstórum
fyrirtækjum að vöruþróun og
margvíslegum rekstrarverkefnum.
Þar áður var ég svæðisfulltrúi
Rauða kross Íslands á Norðurlandi
og starfaði þá mest á svæðinu frá
Hólmavík til Þórshafnar.“
Margþætt reynsla mun nýtast vel
„Ég var að svipast um eftir starfi og
var svo heppin að stjórn Sambands
garðyrkjubænda var á sama tíma
að leita að framkvæmdastjóra,“
segir Katrín María um tildrög þess
að hún var ráðin til starfa fyrir
garðyrkjubændur. „Þau höfðu
samband við mig og buðu mér til
fundar. Mér leist strax vel á hópinn
og verkefnin og ákvað því að þiggja
gott boð þegar mér bauðst að taka
að mér starfið.
Reynsla mín á sviði garðyrkju er
takmörkuð, en ég hef nær alla ævi
búið í bændasamfélagi og finn mig
mjög vel í samstarfi við bændur.
Ég vona að reynsla mín af ráðgjöf
og samstarfi við lítil og meðalstór
fyrirtæki, vöruþróunarverkefnum
og ýmiss konar rannsókna- og
samstarfsverkefnum geti orðið
gagnleg fyrir garðyrkjubændur
og aðra sem vinna að hagsmunum
garðyrkjunnar á Íslandi.“
Ætlar til fundar við
garðyrkjubændur
,,Mér líst mjög vel á þennan
starfsvettvang og tækifærin blasa
víða við, en ég á vissulega margt
eftir ólært eins og gengur þegar fólk
hefur störf á nýjum vettvangi. Ég
mun á næstu vikum og mánuðum
freista þess að hitta sem flesta
garðyrkjubændur og aðra sem vinna
að málefnum garðyrkjunnar. Fyrstu
vikurnar fara mest í að ganga frá
ýmsum formlegum hlutum og læra
á starfsumhverfið. Ég vil gjarnan fá
að nota tækifærið og þakka þeim sem
ég hef þegar hitt og starfsfólkinu hér í
Bændahöllinni fyrir góðar móttökur.
Hér er mjög notalegur starfsandi.
Við hjá Sambandi garðyrkjubænda
erum, líkt og flestir á þessum árstíma,
að ganga frá uppgjöri síðasta árs
og undirbúa aðalfund. Samband
garðyrkjubænda á 60 ára afmæli
á þessu ári og ég vænti þess að
félagsmenn og aðrir geri sér dagamun
af því tilefni,“ segir Katrín María um
komandi verkefni.
Verkefnin fjölmörg og fjölbreytileg
„Annars eru verkefnin fjölmörg og
fjölbreytileg. Það er mjög ánægjulegt
að vinna með garðyrkjubændum
því þeir eru sífellt að leita leiða til
að auka enn á gæði og hagkvæmni
í framleiðslu sinni og stunda mjög
öflugt rannsókna- og gæðastarf í því
skyni.
Vörumerki Sambands garðyrkju-
bænda, Íslenska fánaröndin, nýtur
verðskuldaðrar virðingar og að baki
því liggur mikil vinna varðandi
gæðastarf og ferla sem unnir eru eftir
gæðahandbók. Ég geri ráð fyrir því
að áfram verði ríkur þáttur í starfi
Sambands garðyrkjubænda að fylgja
því starfi eftir svo og fjölmörgum
öðrum verkefnum sem miða að
þróun vöru og gæða í margvíslegum
skilningi.“ /smh
Viðar Bragason var kjörinn
íþróttamaður Léttis árið 2014 og
Fanndís Viðarsdóttir efnilegasti
knapinn í ungmennaflokki í hófi
sem haldið var nýverið á vegum
Hestamannafélagsins Léttis á
Akureyri.
Þetta er annað árið í röð sem
Viðar er kjörinn íþróttamaður
Léttis. Hann hefur á undanförnum
árum verið að stimpla sig inn sem
einn af bestu knöpum landsins og
hefur á liðnum árum landað stórum
sigrum á hinum ýmsu hrossum,
flestum úr eigin ræktun, segir í frétt
á vefsíðu Léttis.
Eigum eftir að sjá meira til
Viðars og Væntingar
Fram kemur að hæst hafi frægðarsól
Viðars skinið þegar hann náði
frábærum árangri á gæðingnum
Væntingu frá Hrafnagili. „Sigur í
B-flokki gæðinga í Gæðingakeppni
Léttis sem og góður árangur í
töltkeppni Landsmóts hestamanna
á árinu er eftirminnilegur og það
er alveg ljóst að við eigum eftir að
sjá meira til þeirra tveggja saman á
næstu misserum og árum,“ segir á
vefsíðu Léttis. Þá hefur Viðar náð
góðum árangri á öðrum hrossum, en
flest þeirra koma úr eigin ræktun,
hans og eiginkonu hans á Björgum
1 í Hörgársveit.
Margir glæstir sigrar
Fanndís var eins og fram kom
kjörin efnilegasti knapinn í
ungmennaflokki, en hún hefur
náð ótrúlegum árangri, þrátt fyrir
ungan aldur, á hestamannamótum
á liðnum árum, bæði stórum og
smáum og unnið marga glæsta
sigra. Fanndís fór alla leið í úrslit
í ungmennaflokki á Landsmóti á
liðnu sumri, á hryssunni Björgu frá
Björgum og endaði í sjötta sæti.
„Fanndís náði auk þess mjög góðum
árangri á öðrum þeim mótum er hún
tók þátt í og er hún svo sannarlega
góð fyrirmynd ungu kynslóðarinnar
í Létti,“ segir á vefsíðu Léttis.
Viðar Bragason var kjörinn íþróttamaður Léttis árið 2014 á Væntingu frá
Björgum 1 í Hörgársveit. Myndir / Af vef Léttis
Fanndís var kjörin efnilegasti knap-
ungan aldur.
Myndir / smh