Bændablaðið - 29.01.2015, Page 27
27Bændablaðið | Fimmtudagur 29. janúar 2015
Umsókn um orlofsdvöl
Undirrituð/Undirritaður sækir hér með um:
Umsóknina skal senda fyrir 20. mars nk.
rafrænt á netfangið ho@bondi.is
eða á póstfang Bændasamtaka Íslands:
Bændahöllin v/Hagatorg,
107 Reykjavík, merkt Orlofsdvöl sumarið 2014
Sumarið 2015
Nafn umsækjanda Kennitala
Heimilisfang Símanúmer
Undirskrift félaga og dagsetning
Póstnúmer og staður
Hefur þú áður fengið úthlutað orlofsdvöl í
sumarhúsi hjá Bændasamtökunum?
Já Nei
Orlofsdvöl að Hólum - Tímabilið:
Orlofsdvöl á Flúðum - Tímabilið:
Hér að neðan er að finna umsóknareyðublað um orlofsdvöl í húsunum að Hólum í
Hjaltadal og á Flúðum, Hrunamannahreppi sumarið 2015. Það gildir fyrir félaga í
búnaðarsamböndum og/eða búgreinafélögum sem eiga aðild að BÍ – Frestur til að skila
inn umsóknum rennur út 20. mars 2015.
Steinull til sölu
Til sölu ca. 250m2 af 40 og 80mm notaðri þaksteinull
(pressuð) sem fjarlæg var úr þaki nýlega. Einhver
bleyta gæti verið í ullinni og hluti hennar er tilskorinn.
Upplagt til einangrunar atvinnuhúsnæðis – selst ódýrt.
Upplýsingar í síma 660 3364.
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
Pöntun á netinu á bbl.is
Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi:
Alls hafa 1140 gestir tekið þátt
í að sauma Vatnsdælurefilinn
Vinna við gerð refils á vegum
Heimilisiðnaðarsafnsins á
Blönduósi gengur vel, en í lok
nýliðins árs var búið að sauma
um 11 metra af honum.
Alls hafa 1.140 gestir safnsins
tekið þátt í verkefninu og liggja að
baki samtals 1.854 vinnustundir og
30 mínútur.
„Sumir gestir koma auðvitað
oftar en aðrir en í heildina stenst
þetta væntingar. Það er mjög
ánægjulegt hversu margir hafa
áhuga á að setja spor sín í refilinn
og um leið leyfa honum að
mjakast áfram,“ segir Jóhanna
E. Pálmadóttir í pistli sínum á
Húnahorninu.
Fram kemur að í upphafi hafi sú
ákvörðun verið tekin að refillinn ætti
sér sitt eigið líf, þ.e. að framvindan
stjórnaðist af áhuga gesta. Stundum
eru margir á safninu og stundum
enginn.
„Aðalatriðið er að njóta hans
meðan á þessu stigi stendur því
eftir að hann er fullkláraður, verður
hann lokaður á bak við gler og því
ekki lengur aðgengilegur á svona
nálægan hátt,“ segir Jóhanna.
Á hverju ári koma nemar frá
textílskólanum Håndarbejdes
Fremmes UCC í Kaupmannahöfn
og vinna þeir að reflinum, fjórar
konur eru í hópnum sem kom nú
eftir áramót og þá koma þrjár til
viðbótar í júní næstkomandi.
Verkefnið Vatnsdæla á refil
hefur staðið yfir undanfarin misseri.
Verkinu miðar vel eins og fram
kemur í frásögn Jóhönnu, en dönsku
nemarnir vinna nú að undirbúningi
þriðju teikningu hans og er þar
komið við sögu að Ingimundur
gamli og hans fólk leggur leið sína
til Íslands. „Hingað til höfum við
bara verið í Noregi,“ segir Jóhanna
í pistli sínum.
Á vorönninni verður safnið
opið á miðvikudögum, milli kl. 13
og 17 og eru allir sem áhuga hafa
velkomnir. Að öðru leyti er opið eftir
samkomulagi þar til sumaropnunin
byrjar 17. júní næstkomandi. /MÞÞ
fjórar konur eru í hópnum sem kom nú eftir áramót.