Bændablaðið - 29.01.2015, Blaðsíða 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 29. janúar 2015
Niðurstöður skýrsluhaldsársins
í mjólkurframleiðslunni 2014
hafa verið reiknaðar og voru
birtar á vef Ráðgjafarmiðstöðvar
landbúnaðarins, www.rml.is,
þann 23. janúar sl. Hér á eftir
verður farið yfir helstu tölur úr
uppgjörinu.
Þeir framleiðendur sem skiluðu
upplýsingum um afurðir kúa sinna
á nýliðnu ári voru 579 en á árinu
2013 voru þeir 584. Niðurstöðurnar
eru þær helstar að 23.861,3 árskýr
skiluðu 5.721 kg nyt að meðaltali.
Það er hækkun um 100 kg frá árinu
2013 en þá skiluðu 22.509 árskýr
meðalnyt upp á 5.621 kg. Að þessu
sinni voru meðalafurðir mestar í
A-Skaftafellssýslu 6.302 kg eftir
árskú. Þar með hafa A-Skaftfellingar
velt Skagfirðingum úr toppsætinu
en á árinu 2013 voru meðalafurðir
mestar þar eða 5.976 kg eftir árskú.
Meðalbústærð í árskúm talið jókst
umtalsvert milli ára, eða úr 38,5
í 41,2. Meðalbústærð reiknuð í
skýrslufærðum kúm var nú 54,2 kýr
en 2013 reiknuðust þær 52,8.
Ástæður þessarar miklu
stækkunar búa þarf vart að orðlengja
um. Á árinu var aukning í sölu á
mjólk og mjólkurafurðum með
ólíkindum og mjólkuriðnaðurinn
greiddi fullt afurðastöðvaverð fyrir
alla innlagða mjólk. Bændur voru
hvattir til framleiðslu, og eru enn,
og afleiðingin varð mikil aukning í
innvigtun auk þess sem mikið dró úr
förgun kúa. Á þessu ári er svo ekki
útlit fyrir annað en að enn þurfi að
bæta í þar sem greiðslumark mjólkur
var aukið um 15 milljónir lítra, úr 125
millj. í 140 millj. Með hliðsjón af því
að heildarmjólkurframleiðsla síðasta
árs nam ríflega 133 millj. lítra er ljóst
að til þess að fylla greiðslumarkið
þarf enn að auka framleiðsluna um
7 millj. lítra. Hvernig til tekst kemur
í ljós á komandi mánuðum en ljóst
er að sú aukning verður ekki borin
uppi af fjölgun gripa og seinkun á
förgun í sama mæli og var á síðasta
ári. Okkur er því að öllum líkindum
nauðugur einn sá kostur að auka
afurðir á hvern grip.
Mestar meðalafurðir voru í
Austur-Skaftafellssýslu
Þegar litið er á niðurstöður
eftir svæðum kemur í ljós að í
A-Skaftafellssýslu eru meðalafurðir
mestar, 6.302 kg eftir árskú og
er afurðaaukning þar milli ára
ein 334 kg á árskú. Í öðru sæti
eru Skagfirðingar með 5.932 kg
eftir árskú og þriðja sætið verma
Snæfellingar en þar skilaði árskýrin
að meðaltali 5.925 kg. Stærst voru
búin í Eyjafirði, 51,4 árskýr en
minnst í Vestur-Skaftafellssýslu
25,1 árskú.
Mestar afurðir á einstökum búum
árið 2014 voru á Brúsastöðum í
Vatnsdal
Mest meðalnyt eftir árskú á nýliðnu
ári, 2014, var á búi Brúsa ehf. á
Brúsastöðum í Vatnsdal, A-Hún.,
7.896 kg á árskú. Það bú var
einnig með mestar meðalafurðir á
árinu 2013. Annað búið í röðinni
árið 2014 var Félagsbúið í Ytri-
Skógum undir Eyjafjöllum, Rang.
en þar var nytin 7.832 kg eftir
árskú. Þetta bú var hið þriðja í
röðinni árið áður. Þriðja í röðinni
við uppgjörið nú var bú Kristjáns
Hans Sigurðssonar í Lyngbrekku 2
á Fellsströnd í Dalasýslu en þar var
meðalnyt árskúnna 7.807 kg. Í fjórða
sæti var bú Péturs Friðrikssonar á
Gautsstöðum á Svalbarðsströnd
í Eyjafirði þar sem meðalafurðir
árskúnna voru 7.744 kg. Fimmta
búið var Félagsbúið á Espihóli í
Eyjafirði en meðalnytin þar var
7.701 kg eftir árskú. Að öðru leyti
vísast í meðfylgjandi töflu.
Meirihluti þeirra búa, sem hér
hafa verið talin, fannst á hliðstæðum
lista fyrir ári síðan og þau þeirra
sem ekki voru í 10 efstu sætunum
þá mátti finna fljótlega þar á eftir á
fyrrnefndum listan yfir afurðahæstu
búin árið 2013, þannig að hér
eru þeim sem til þekkja öll nöfn
kunnugleg. Á 31 búi reiknaðist
meðalnyt árskúa yfir 7.000 kg árið
2014 en 26 bú náðu því marki árið
2012.
Laufa nr. 1089 í Flatey mjólkaði
mest
N y t h æ s t a k ý r i n á
skýrsluhaldsbúunum árið 2014 var
Laufa 1089 í Flatey á Mýrum við
Hornafjörð, undan Fróða 96028,
en hún mjólkaði 13.121 kg með
3,33% fitu og 3,19% prótein. Laufa
er fædd í Einholti í Hornafirði þar
sem hún mjólkaði vel fram á sitt
annað mjólkurskeið. Burðartími
Laufu féll að þessu sinni vel að
almanaksárinu en hún bar sínum
áttunda kálfi 19. des. 2013. Laufa
er gríðarmikil mjólkurkýr, fór
hæst í 48,6 kg dagsnyt á liðnu ári
og skráðar æviafurðir hennar voru
68.997 kg um síðustu áramót en sinn
fyrsta kálf átti hún 12. maí 2006, þá
þá rétt ríflega tveggja ára. Önnur
í röðinni árið 2014 var Stytta 336
á Kotlaugum í Hrunamannahreppi,
Árn., undan Öðlingi 03002 en hún
mjólkaði 12.700 kg með 4,19% fitu
og 3,40% prótein. Þriðja nythæsta
kýrin var Drottning 324 í Geirshlíð
í Flókadal í Borgarfirði, undan Fonti
98027, en nyt hennar á árinu var
12.567 kg með 4,69% fitu og 3,30%
prótein. Fjórða nythæsta kýrin var
Agla 361 í Viðvík í Viðvíkursveit í
Skagafirði, dóttir Þrasa 98052 en hún
mjólkaði 12.261 kg með 4,06% fitu
og 3,29% prótein. Fimmta í röðinni
var Ausa 306 í Garðakoti í Hjaltadal
í Skagafirði, undan Þverteini 97032,
en hún skilaði 12.198 kg á árinu með
3,50% fitu og 3,15% prótein. Alls
skiluðu 22 kýr afurðum yfir 11.000
kg, 7 yfir 12.000 kg og þar af ein,
fyrrnefnd Laufa, yfir 13.000 kg. Árið
2013 náðu 8 kýr nyt yfir 11.000 kg.
Mjólkurframleiðendum óskum
við til hamingju með ágætan árangur
og þökkum samstarfið á liðnu ári.
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Ársuppgjör 2014
Uppgjörssvæði Árskýr
Afurðir á
árskú
Fita % Prótein % Heilsárs-kýr
Kýr á
skýrslu
Í skýrslu-
haldi í des.
2014
Skiluðu
skýrslum í
des. 2014
Skiluðu
skýrslum
2014
Skrá kjarn-
fóður
Kjarnf. á
árskú kg
Meðal
bústærð
(árskýr)
Meðal
bústærð
(skýrslu-f.
kýr)
Kjalarnesþing
Borgarfjörður
Snæfellsnes
Dalasýsla
Vestfirðir
Húnavatnssýslur og Strandir
Skagafjörður
Eyjafjörður
Suður-Þingeyjarsýsla
Austurland
Austur-Skaftafellssýsla
Vestur-Skaftafellssýsla
Rangárvallasýsla
Árnessýsla
Samtals
Fjöldi Afurðir
Bú - árslok 2014 Skýrsluhaldarar árskúa kg/árskú
1 Brúsastaðir
2 Ytri-Skógar
3 Lyngbrekka
4 Gautsstaðir
5 Espihóll
6 Hraunháls
7 Sólheimar
8 Lyngbrekka
9 Stóru-Tjarnir
10 Syðri-Bægisá
Afurðahæstu búin að meðaltali á árskú 2014
Ársafurðir Prótein Fita Bú
Kýr Faðir kg
1 1600821-1089 Laufa 13.121 Flatey
2 0336 Stytta 12.700 Kotlaugar
3 0324 Drottning 12.567 Geirshlíð
4 0361 Agla 12.261 Viðvík
5 0306 Ausa 12.198 Garðakot
6 0407 Tröð 12.193 Túnsberg
7 0352 Huppa 12.089 Kálfagerði
8 1637301-0417 11.769 Eystra-Seljaland
9 446 11.717 Geirshlíð
10 0157 Bomba 11.672 Hóll
11 1600821-1294 Flóra 11.613 Flatey
12 724 11.593 Espihóll
13 0646 Ljómalind 11.327 Moldhaugar
14 1345101-1055 Ljómalind 11.294 Ásgarður
15 0182 Bára 11.230 Hagi 1
16 0425 Mykja 11.223 Dalbær
17 1123 Huppa 11.170 Stóra-Ármót
18 0379 Blessun 11.139 Árbær
19 0484 Hekla 11.126 Helgavatn
20 0485 Þruma 11.116 Garðakot
21 0397 Tóta 11.081 Syðri-Bægisá
22 0589 Blesgæs 11.025 Nes
Afurðahæstu kýrnar 2014
Fjöldi Afurðir
Uppgjörssvæði Bú - árslok 2014 Skýrsluhaldarar árskúa kg/árskú
Kjalarnesþing 260111 Miðdalur Guðmundur og Svanborg, Miðdal 25,7 6.757
Borgarfjörður 350191 Eystri-Leirárgarðar Eystri-Leirárgarðar ehf 43,1 7.165
Snæfellsnes 370179 Hraunháls Guðlaug og Eyberg 26,8 7.636
Dalasýsla 380184 Lyngbrekka Kristján Hans Sigurðsson Lyngbrekku 2 11,1 7.807
Vestfirðir 480204 Botn 2 Björn og Svavar 63,2 7.217
Húnavatnssýslur og Strandir 560112 Brúsastaðir Brúsi ehf 49,3 7.896
Skagafjörður 570314 Sólheimar Valdimar Óskar Sigmarsson 33,5 7.546
Eyjafjörður 660104 Gautsstaðir Pétur Friðriksson 71,6 7.744
Suður-Þingeyjarsýsla 660519 Stóru-Tjarnir Stóru-Tjarnir ehf 44,2 7.491
Austurland 761412 Núpur Björgvin Rúnar Gunnarsson 60,7 6.882
Austur-Skaftafellssýsla 770188 Árbær Sæmundur Jón Jónsson 48,2 6.938
Vestur-Skaftafellssýsla 850319 Austurhlíð Guðgeir Sumarliðason 23,7 6.884
Rangárvallasýsla 860103 Ytri-Skógar Félagsbúið 22,0 7.832
Árnessýsla 870934 Gunnbjarnarholt Arnar Bjarni og Berglind 109,9 7.287
Mestar afurðir á hverju svæði
Niðurstöður skýrsluhaldsársins hjá
mjólkurframleiðendum 2014
Guðmundur Jóhannsson
Ábyrgðarmaður í
nautgriparækt
mundi@rml.is
Sigurður Kristjánsson
Skýrsluhald
sk@rml.is