Morgunblaðið - 08.08.2015, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 08.08.2015, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 2015 Göngugreining Pantaðu tíma í síma 5173900 Orkhúsinu / Suðurlandsbraut 34 / 517 3900 Vandamál sem göngugreining Flexor getur hjálpað til við að leysa eru til dæmis: • þreytuverkir og pirringur í fótum • verkir í hnjám • sársauki eða eymsli í hælum (hælspori, „plantar fasciitis“ o.fl.) • beinhimnubólga • óþægindi eða verkir í baki og/eða mjöðmum • verkir í tábergi og/eða iljum • hásinavandamál • óþægindi í ökklum • þreytu- og álagsverkir hjá börnum og unglingum BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Leiðin inn að Lakagígum var opnuð óvenju seint í ár, undir lok júní. Samt er búist við að svipaður fjöldi ferða- manna fari um Laka í sumar og síð- ustu ár, um 8-10 þúsund manns. Lakagígar voru friðlýstir 1971. Þeir urðu hluti af Skaftafells- þjóðgarði árið 2004, við seinni stækk- un þjóðgarðsins, og svo hluti af Vatnajökuls- þjóðgarði við stofnun hans 2008. Snorri Bald- ursson, þjóð- garðsvörður á vestursvæði Vatnajökuls- þjóðgarðs, með aðsetur á Kirkju- bæjarklaustri, segir umferð um þann hluta þjóðgarðsins sem tilheyrir há- lendinu ekki hafa aukist í takt við fjölgun ferðamanna á Íslandi. Margt hefur áhrif á umferðina „Umferðin í Skaftafelli virðist hins vegar fylgja fjölgun ferðamanna. Það sama gildir um aðra aðgengilega staði þjóðgarðsins, eins og Ásbyrgi og Dettifoss. En hálendið virðist ekki fylgja þessari þróun, einhverra hluta vegna. Skýringarnar eru sennilega margar. Lakagígar eru langt inn í landi, eða um 49 km, og vegurinn er vondur. Ferðin fram og til baka tek- ur 3-4 tíma. Það fer því alveg dagur í ferðina. Það er ekki hægt að koma við í Lakagígum á leiðinni, eins og er til dæmis hægt að gera í Skaftafelli. Árnar geta líka verið varasamar. Það er því ýmislegt sem spilar inn í. Það var kalt í fyrrasumar og í sumar, þótt það sé þurrara í sumar. Þetta sumar var sérstakt að því leyti að hálendisvegir voru opnaðir afar seint. Lengi vel var aðeins opið vestanmegin á leiðinni að Laka, þ.e.a.s. það þurfti að fara um Blágil og Hnútu að Laka. Það var lokað að Laka frá Galta. Það olli vandræðum við landvörslu. Við gerum ráð fyrir að fólk byrji á því að koma að fjallinu Laka og að áningarstaðnum sem þar er og að það haldi svo áfram rang- sælis um gígana. Þess vegna erum við með mesta landvörslu við Laka og leggjum áherslu á að landverðir taki þar á móti öllum og leiðbeini þeim um svæðið. Nú í sumar þurft- um við að skipta svolítið um gír og hafa landvörð fastan við Hnútu, sem er vestasti hluti gígaraðarinnar. Eftir að leiðin var opnuð hefur um- ferðin yfir ferðamannatímann verið meiri hvern dag en síðustu ár. Um- ferðin hefur dreifst meira síðustu ár.“ Gætu þurft fleiri landverði Að sögn Snorra hófst regluleg landvarsla á svæðinu við Lakagíga í núverandi mynd árið 2005, þegar fyrsti landvörðurinn, Kári Krist- jánsson, kom til starfa á heilsárs- grunni. Áður hafði Skaftárhreppur sinnt landvörslu við gígana síðan í upphafi tíunda áratugarins. „Kári tók strax hraustlega til hendinni. Síðan höfum við verið að bæta í uppbygginguna og landvörsl- una. Nú höfum við tvo landverði og þurfum að kanna hvort þörf sé á þriðja landverðinum þegar það eru svona skrítin sumur. Þegar leiðin opnaði í sumar misstum við þetta svolítið úr böndunum. Þá var fólk að koma að gígunum án þess að hafa hitt nokkurn mann. Þess vegna fer það að haga sér eins og því dettur í hug og vaða yfir gígana og yfir mos- ann. Það hefur þó ekki verið vanda- mál svona heilt yfir. Auðvitað er allt- af einn og einn sem æðir af stað og hlýðir engum fyrirmælum. Við höf- um tekið eftir því að það er svolítið mismunandi eftir þjóðernum hvernig fólk hagar sér. Sumir taka öllum leið- beiningum vel. Aðrir vilja gera það sem þeim dettur í hug og átta sig ekkert á því að þeir eru að skemma mikið með því að vaða svona yfir. Náttúran í gígunum, mosinn og vik- urinn, er svo viðkvæm og auðsær- anleg. En almennt myndi ég segja að umgengni í Lakagígunum sé góð. Í raun hefur ástandið batnað mikið eftir að Skaftafellsþjóðgarður og svo Vatnajökulsþjóðgarður tóku við. Þegar landvörður tók fyrst til starfa var gengið og ekið út um allt.“ Loka villustígum „Við höfum smám saman verið að stýra umferðinni betur inn á ákveðnar gönguleiðir og loka öðrum gönguleiðum, sérstaklega villustíg- um upp á gígana, með því að flytja til mosa,“ segir Snorri. Spurður hvernig umferðin verði á svæðinu ef spár rætast um að hingað komi tvær milljónir erlendra ferða- manna innan nokkurra ára segir Snorri ljóst að mikil aukning í aðsókn á Lakasvæðið muni kalla á aðgerðir. „Það er klárt mál að Lakagígar geta ekki tekið á móti öllum þeim ferðamönnum sem hugsanlega myndu vilja fara þarna upp eftir, ef það væri mjög gott aðgengi. Ef ferðamannastraumurinn fer að aukast verulega úr því sem verið hef- ur undanfarin ár þarf að grípa til ein- hverra enn harðari ráðstafana, til dæmis að setja á algera einstefnu í kringum gígana og jafnvel fara að keyra fólk um gígana eins og gert er í þjóðgarðinum Timanfaya á spænsku eyjunni Lanzarote, þar sem er eldfjallaþjóðgarður. Þangað kem- ur upp undir milljón manns á ári. Þar fær fólk ekki að ganga sjálft heldur er því ekið um á rútum og fær aðeins að fara út á ákveðnum stoppistöðum. Ef ásóknin fer að verða verulega meiri en hún er nú þurfum við að grípa til einhverra slíkra ráðstafana. Það má segja að það veiti ákveðna vörn að hafa veginn svona lélegan. Það er þó kannski ekki rétta umferðarstýringin. Það er enda í því fólgin ákveðin mismunun ef aðeins fólk sem á jeppa kemst upp að Laka. Það hafa komið upp hugmyndir um að gera veginn upp að Galta, þar sem vegurinn kvíslast, sæmilega greið- færan, jafnvel fyrir fólksbíla, og að taka þar við fólki og hafa rútuferðir um gígana, skipulegar áætlunar- ferðir. Þá myndi rúta keyra um gíg- ana á tveggja tíma fresti. Það eru ýmsir svona möguleikar í stöðunni en við höfum ekki þurft að grípa til þeirra. Við höfum lengi rætt við Vegagerðina um að bæta veginn en það hefur ekki gengið eftir,“ segir Snorri. Takmarkanir á Laka í skoðun  Talið að jafn margir skoði Lakagíga í sumar og síðustu ár þótt leiðin hafi opnað óvenju seint í ár  Þjóðgarðsvörður segir að ef umferðin haldi áfram að aukast muni þurfa mikla umferðarstýringu Ljósmynd/Zoë Robert Náttúrufegurð Myndin er tekin af fjallinu Laka síðasta föstudagseftirmiðdag. Eins og myndin sýnir eru Lakagígar mosavaxnir. Ágangur ferðafólks utan merktra leiða getur drepið mosann. Blaðamaður taldi um 30 jeppa á leiðinni frá Blágiljum og langleiðina að Kirkjubæjarklaustri milli 9 og 14 sl. laugardag. Katrín Pálmadóttir hefur síðustu þrjú ár starfað sem landvörður í Skaftafelli og Laka. „Svæðið í Laka er viðkvæmt. Það er ekki búið undir svona mikla umferð. Það er ætlast til þess að fólk aki ákveðinn hring þegar það kemur á svæðið. Ef það gerir það kemur það að bílastæði við Laka- fjallið þar sem upplýsingar eru veittar um svæðið. Svo getur fólk ekið hringinn til baka. Nú finnum við fyrir því að þetta fyrirkomulag gengur ekki lengur. Það er greini- legt að margir vita ekki af göngu- leiðum, eða að svæðið sé mjög við- kvæmt og að ekki skuli ganga utan slóða til að valda ekki skemmdum. Það þarf að bæta þetta.“ Katrín segir mosann á Laka vera sérstöðu svæðisins. „Ef stigið er á mosa í gígunum drepst hann strax. Það myndast fótspor. Í heildar- myndinni er það ekki gríðarlegur missir fyrir náttúruna. Það er hins vegar ljótt ásýndar og leiðinlegt ef hægt er að komast hjá því. Það er hægt að stýra umferðinni þannig að fólk á að geta upplifað svæðið með því að ganga á merktum leið- um. Það er ýmist misskilningur eða tillitsleysi sem veldur stöðugt meiri skemmdum.“ Spurð hvort ekki þurfi að hafa fleiri í þessari upplýsingagjöf segir Katrín að vissulega mættu vera fleiri landverðir á sumum stöðum. „Þjóðgarðsmörkin liggja í hrauninu og er gígaröðin því innan þeirra. Fólk ekur lengi á vegum á hálendi áður en það kemur inn í þjóðgarð. Það er mikið um utan- vegaakstur. Þegar fólkið er komið upp í Laka er dálítið seint að byrja með fræðslu um hvaða reglur eiga að gilda á hálendinu, hvernig eigi að keyra á vegunum og svo fram- vegis,“ segir Katrín. Eitt spor getur drepið mosann LANDVÖRÐUR SEGIR SUMA FERÐAMENN SKEMMA GRÓÐUR Landvörður Katrín Pálmadóttir. Snorri Baldursson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.