Morgunblaðið - 08.08.2015, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 2015
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Við erum á facebook
20% aukaafsláttur
af allri útsöluvöru
· Opið kl. 10–15 í dag ·
UTSOLU
Engjateigi 5 • Sími 581 2141
VERÐHRUN
60% afsláttur
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn
Stór-
útsalan
í fullum gangi
Enn meiri
verðlækkun
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
Opið í dag
Allt að
70%
afsláttur
Sumaryfirhafnir - Glæsikjólar - Buxur - Bolir - Peysur o.fl
Laugavegi 63 • S: 551 4422
www.laxda
l.is
Síðustu dagar
útsölunnar
Nú er tækifærið að eignast gæða
merkjavöru á einstöku verði
Gleðigangan verður gengin venju samkvæmt í
dag klukkan tvö en hún er hápunktur hinsegin
daga. Verður gengið frá Vatnsmýrarvegi og að
Arnarhóli. Að göngunni lokinni hefst hátíðar-
dagskrá sem stendur til hálfsex.
Míla hefur stillt vefmyndavél sína sem snýr að
Tjörninni þannig að betur verði hægt að fylgjast
með gleðigöngunni í beinni fyrir þá sem ekki
komast í miðborgina en vilja fylgjast með. Búist
er við því að mikill fjöldi fólks leggi leið sína í
miðborgina til þess að fylgjast með göngunni.
Raskanir verða á bílaumferð og margar götur
lokaðar vegna göngunnar en íbúar borgarinnar
og gestir eru beðnir að sýna samstarfsvilja og
umburðarlyndi og hvattir til að nýta sér þjón-
ustu Strætó. Hinsegin dagar benda ökumönnum
á bílastæði gætu reynst laus í mörgum bílastæða-
húsum en þau hafa verið illa nýtt undanfarin ár.
Fjöldi fólks hefur unnið hörðum höndum að undirbúningi hinsegin daga
Búist við fjöldmenni í gleðigönguna í dag
Morgunblaðið/Þórður Arnar
Umsóknarfrestur um embætti
hæstaréttardómara, embætti héraðs-
saksóknara og varahéraðs-
saksóknara rann út í gær.
Stefnt er á að skipa í embætti
hæstaréttardómara frá og með 1.
október næstkomandi eða hið fyrsta
eftir að nefnd um hæfni dómara hefur
lokið starfi sínu. Þrjú sóttu um emb-
ættið, Davíð Þór Björgvinsson pró-
fessor, Ingveldur Einarsdóttir hér-
aðsdómari og Karl Axelsson
lögmaður.
Um embætti héraðssaksóknara
sóttu Björn Þorvaldsson saksóknari,
Bryndís Björk Kristjánsdóttir skatt-
rannsóknarstjóri, Hulda Elsa Björg-
vinsdóttir saksóknari og Ólafur
Hauksson sérstakur saksóknari. Um
embætti varahéraðssaksóknara sóttu
Arnþrúður Þórarinsdóttir saksókn-
ari, Björn Þorvaldsson, Daði Krist-
jánsson saksóknari, Hulda Elsa
Björgvinsdóttir, saksóknari og Kol-
brún Benediktsdóttir saksóknari.
Embætti héraðssaksóknara var
komið á fót með nýsamþykktum
breytingum á lögum um meðferð
sakamála og lögreglulögum. Sam-
hliða stofnun embættisins 1. janúar
2016 verður embætti sérstaks sak-
sóknara lagt niður. Gert er ráð fyrir
að skipað verði í embætti héraðs-
saksóknara frá og með 1. september
2015 og skal hann vinna að undir-
búningi að því að embætti héraðs-
saksóknara taki til starfa 1. janúar
2016. Gert er ráð fyrir því að skipað
verði í embætti varahéraðssaksókn-
ara frá og með 1. janúar 2016.
Þrjár umsóknir bárust um
embætti hæstaréttardómara
Ólafur Þ. Hauksson sækir um embætti héraðssaksóknara
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Þyrlur Landhelgisgæslunnar sinntu
fimm útköllum í gær. Þyrla og varð-
skip voru kölluð út um klukkan
fimm í fyrrinótt til að leita að línu-
skipi djúpt norður af landinu en
skipið hvarf úr sjálfvirkri feril-
vöktun fyrr um nóttina. Skipstjóri
skipsins reyndist hafa gleymt að
ræsa ferilvöktunarbúnað fyrir við-
komandi hafsvæði og slugsaði við að
hlusta á neyðarrásir.
Þegar þyrlan var á leið til baka úr
leitinni var óskað eftir þyrlu í
skemmtiferðaskip um 170 sjómílum
suðaustur af Vestmannaeyjum.
Vegna fjarlægðar frá landi þurfti að
senda tvær þyrlur af stað. Skömmu
síðar kom aðstoðarbeiðni frá öðru
skemmtiferðaskipið vestur af Garð-
skaga sem önnur þyrla Gæslunnar
sinnti. Þá var sjúklingur við Þrast-
arlund sóttur á þyrlu og um kl. 16.30
sótti hún einstakling sem hafði fallið
af hjóli á Skagaströnd.
Fimm þyrluútköll
Umferð á höfuðborgarsvæðinu
jókst um 7,4% milli júlímánaða í ár
og í fyrra. Þetta er mesta aukning
milli júlímánaða frá því árið 2007.
Aldrei hafa fleiri ökutæki mælst í
júlímánuði en alls fóru rúmlega 140
þúsund ökutæki daglega um mæli-
sniðin þrjú hjá Vegagerðinni.
Nú hefur umferðin um höfuð-
borgarsvæðið aukist um 3,3%, það
sem af er ári, miðað við sama tíma-
bil á síðasta ári. Þetta er nákvæm-
lega sama staða og var uppi á síð-
asta ári, en þá hafði umferðin
einmitt aukist um sama hlutfall
miðað við árið 2013, segir á vef
Vegagerðarinnar.
Aukin umferð á höf-
uðborgarsvæðinu