Morgunblaðið - 08.08.2015, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 2015
ÁLÞAKRENNUR
Viðhaldslitlar
Þegar hús eru klædd með „viðhaldsfrírri“ klæðningu
er nauðsynlegt að nota „viðhaldsfríar“ þakrennur
Rennurnar frá Grövík Verk í Noregi eru gerðar úr 0.9 mm áli og tærast ekki,
ryðga né brotna. Fyrsta rennan var framleidd árið 1956 og er enn í notkun.
Litir til á lager: Svartar, hvítar, gráar, rauðbrúnar og ólitaðar.
Seljum einnig varmaskiptasamstæður, loftræstistokka og tengistykki.
Smiðjuvegi 4C
Box 281 202 Kópavogur
Sími 587 2202
Fax 587 2203
hagblikk@hagblikk.is
www.hagblikk.is
HAGBLIKK ehf.
FRÉTTASKÝRING
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Ef marka má nýjustu skoðanakann-
anir um fylgi við stjórnmálaflokka
má Björt framtíð sannarlega muna
sinn fífil fegurri. Flokkurinn mældist
með 4,4% fylgi í nýjustu skoðana-
könnun MMR, en hlaut 8,2% at-
kvæða í alþingiskosningunum vorið
2013 og náði sex mönnum á þing.
Flokkurinn var stofnaður 4. febr-
úar 2012 og varð Guðmundur Stein-
grímsson, sem áður hafði verið þing-
maður Framsóknarflokks og síðar
Samfylkingar, formaður Bjartrar
framtíðar.
Samkvæmt samtölum blaðamanns
við óbreytta flokksmenn í Bjartri
framtíð og þingmenn flokksins virð-
ist ríkja mikil óánægja með þá félaga
Guðmund Steingrímsson og Róbert
Marshall, þingflokksformann Bjart-
ar framtíðar og fyrrverandi þing-
mann Samfylkingarinnar, meðal
stórs hluta flokksmanna.
Rifjað er upp að flokkurinn hafi í
skoðanakönnunum komist á mikið
flug, hátt í 20% þegar best lét. Oft
hafi hann mælst í kringum 15%, en
frá því fyrir áramót hafi fylgið dvínað
í hverri skoðanakönnuninni á fætur
annarri og nú sé það í sögulegu lág-
marki, 4,4%, sem myndi þýða að
flokkurinn fengi engan mann kjörinn
á þing, yrði fylgi í næstu kosningum
innan við 5%.
Steypt af stóli?
„Jú, jú, það er mikil gagnrýni sem
dynur á Guðmundi dag hvern. Við
höfum einhvern veginn sofnað á
verðinum og ekki náð að fanga þá at-
hygli og þann hluta í umræðunni sem
við þurfum á að halda. Ég á ekkert
endilega von á því að Guðmundi verði
steypt af stóli sem formaður á aðal-
fundi okkar í september en hann má
klárlega búa sig undir að mæta mik-
illi gagnrýni á fundinum. Við búum
augljóslega við forystukrísu,“ segir
flokksmaður í Bjartri framtíð.
Einn viðmælandi sagði í gær að
þegar Heiða Kristín Helgadóttir,
einn af stofnendum flokksins, vara-
þingmaður og fyrrverandi stjórnar-
formaður Bjartrar framtíðar sagði af
sér í desember síðastliðnum hefði
hún verið búin að margræða og
gagnrýna flokkinn, áherslur og þing-
störf þingmanna hans, án þess að á
hana væri hlustað.
Heiða Kristín hafi notið mjög mik-
ils stuðnings og aðdáunar margra í
flokknum, sem hafi verið misboðið,
þegar hún gafst upp og hætti.
Hún sagði í frétt hér í Morgun-
blaðinu í fyrradag að hún sæi ekki
fyrir sér að óbreyttu að taka sæti
Bjartrar Ólafsdóttur á þingi í haust,
en Björt er komin í fæðingarorlof.
Mikið þurfi að breytast og flokkurinn
þurfi að taka á þeim vanda sem hann
standi frammi fyrir.
Orðrétt sagði Heiða: „Mér finnst
vandi Bjartrar framtíðar vera inni í
Bjartri framtíð, hann er ekki vandi
kjósenda. Vandinn er ekki til kominn
vegna þess að kjósendur skilja ekki
flokkinn heldur er hann vandi for-
mannsins og þeirra sem starfa í
Bjartri framtíð.“
Viðmælendur virðast almennt
sammála um að málefnalega séð sé
góð samstaða í Bjartri framtíð og
eining sé í flokknum, bæði þingflokki
og meðal almennra flokksmanna, um
helstu stefnumál og áherslur. Vanda-
málin séu önnur og af persónulegum
toga. Tvö þeirra stærstu heiti Guð-
mundur og Róbert.
Guðmundur nær ekki í gegn
„En Guðmundur er bara ekki að
ná í gegn og fanga athygli og áhuga.
Þar vantar mikið á, og þótt ég sjái
engan augljósan kandídat til þess að
taka við af honum sem formaður
finnst mér að það eigi tvímælalaust
að ræða það að skipta um kallinn/
kellinguna í brúnni,“ segir óánægður
flokksmaður.
Flokksfólk úr grasrót Bjartrar
framtíðar segist hafa ákveðinn skiln-
ing á því hvers vegna Píratar höfði í
ríkum mæli til óánægðra kjósenda.
Þeir búi yfir ákveðnum frumleika og
hafi sakleysislegt og ferskt yfir-
bragð.
Enginn ferskleiki
„En forystan hjá okkur, sem oftast
heyrist í í fjölmiðlum, þeir Guð-
mundur og Róbert, hefur ekkert
slíkt til að bera. Þeir eru bara fall-
kandídatar úr öðrum stjórnmála-
flokkum og þeim fylgir enginn fersk-
leiki. Það er bara hin sorglega
staðreynd málsins, og því kannski
hægt að segja að Björt framtíð eigi
sér kannski ekki svo bjarta framtíð,
en flokkurinn á tvímælalaust glæsta
fortíð!“ segir óánægð flokkskona sem
telur að frambærilegar flokkskonur
séu hvergi nærri nógu áberandi í
flokknum og nefnir sérstaklega
Brynhildi Pétursdóttur, þingmann
Bjartrar framtíðar, og Heiðu Krist-
ínu Helgadóttur, sem hún segist vilja
sjá aftur í forystusveit flokksins.
Aðrir taka undir þessi orð og spyrja
hvers vegna ekki sé rætt um að
skipta reglulega um formann og for-
mann þingflokks. Þannig myndi
a.m.k. yfirbragð forystusveitarinnar
frískast til muna.
Erum of værukær
Brynhildur Pétursdóttir, þing-
maður Bjartrar framtíðar, sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær að
hún hefði vissar áhyggjur af stöðu
flokksins nú. „Þetta er margslungið
mál. Okkar styrkur í Bjartri framtíð
er að við erum ótrúlega samstíga
hvað varðar stefnu og áherslur. Al-
mennt erum við í flokknum vegna
þess að við aðhyllumst ákveðna hug-
myndafræði. En hinu er ekki að neita
að það er eins og kjósendur hafi bara
gleymt okkur og ég hef vissan skiln-
ing á því. Ég hallast að því að við í
þingflokknum höfum einfaldlega ver-
ið of værukær. Sum okkar hafa
kannski gleymt sér í nefndastarfinu
og vanrækt að vekja athygli á málefn-
unum út á við, sem er vitanlega nauð-
synlegur þáttur í stjórnmálaþátt-
töku.“
Brynhildur kveðst þó telja að Björt
framtíð eigi meira fylgi inni en síðustu
skoðanakannanir bendi til. Flokk-
urinn þurfi að stokka spilin og skoða
hvers vegna þeir sem séu óánægðir
með gömlu stjórnmálaflokkana styðji
Pírata en ekki Bjarta framtíð.
Björt framtíð eða glæst fortíð
Guðmundur Steingrímsson, formaður flokksins, er sagður vera helsta vandamálið Fast á hæla
honum fylgi svo formaður þingflokks Bjartrar framtíðar, Róbert Marshall Augljós forystukrísa
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Hætt saman Guðmundur Steingrímsson og Heiða Kristín Helgadóttir koma af fundi Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar 1. maí 2013.
Guðmundur
Steingrímsson
Róbert
Marshall
Heiða Kristín
Helgadóttir
Brynhildur
Pétursdóttir
Björgunarsveitin Blakkur á Pat-
reksfirði bjargaði í gær tveimur
göngumönnum, karli og konu, sem
höfðu lent í sjálfheldu.
Hugðust þau ganga út með Pat-
reksfirði og upp á fjallgarðinn milli
Patreks- og Tálknafjarðar. Þau
lentu hinsvegar í sjálfheldu og
samkvæmt góðri lýsingu þeirra
virtust þau stödd í Hlíðardal, um
fjórum kílómetrum utan við Pat-
reksfjörð.
Björgunarskipið Vörður sigldi út
fjörðinn og þannig tókst nokkuð
skjótt að staðsetja göngufólkið.
Björgunarmenn gátu því farið beint
að þeim en setja þurfti upp línur
og hífa þau upp þar sem aðstæður
voru ekki með besta móti.
Það tók tíma en göngufólkið fór
að lokinni björgun með björgunar-
sveitarmönnum til byggða.
Göngumenn
í sjálfheldu í
Patreksfirði