Morgunblaðið - 08.08.2015, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 08.08.2015, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 2015 Vertu vinur okkar á facebook www.facebook.com/weledaísland Weleda birkisafinn er bragðgóður drykkur sem örvar vatnslosun og styður við náttúrulega út- hreinsun líkamans, birkisafinn léttir á líkamanum, losar bjúg og byggir hann upp. Það er mikilvægt fyrir líkamalega vellíðan. Í samhljómi við mann og náttúru. Lesið meira um lífrænar vörur á weleda.is Útsölustaðir Weleda eru apótek og heilsuverslanir um allt land. Vilt þú létta á líkamanum eftir grillveislurnar! Haust/Vetur 2015 Glæný sending frá DIMMALIMM Laugavegi 53 | Sími 552 3737 | www.dimmalimmreykjavik.is Opið mán.–fös. 10–18, lau. 10–17 Sendum frítt um land allt Iana Reykjavík Útsöluslár 60% afsláttur STANGVEIÐI Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Laxveiðin hefur víða verið ævin- týralega góð síðustu vikur og laxinn gengur enn af krafti í árnar. Met- veiði er þegar komin í Blöndu en þar veiddist þrjú þúsundasti laxinn í fyrradag. Meðalveiði á stöng þar í síðustu viku, þegar 734 löxum var landað, var hátt í átta laxar en þar sem best veiðist á neðsta svæðinu má segja að margir veiðimenn þar lendi í moki. Mesta veiði í Blöndu síðustu áratugi er 2.654 laxar sum- arið 2010 þannig að þegar Blöndu- virkjun mun fara á yfirfall, og áin verða óveiðandi, mun miklu meira hafa verið veitt af laxi í henni. Samkvæmt samantekt Þorsteins Þorsteinssonar á Skálpastöðum, sem tekur saman veiðitölur Land- sambands veiðifélaga í völdum lax- veiðiám á hverju miðvikudagskvöldi, var laxveiðin í síðustu viku 22 pró- sentum yfir meðalveiði. Þorsteinn segir aðeins hafa dregið úr veiði á Vesturlandi undanfarið en í Húnavatnssýslunum er hún áfram frábær. Í Miðfjarðará veiddust til að mynda 684 laxar í liðinni viku á tíu stangir, hátt í tíu laxar á stöng á dag. „Fáránlega góð“ veiði á Ásum En talandi um frábæra veiði þá er áhugavert að líta til Laxár á Ásum. Í þessari litlu veiðiperlu, þar sem veitt er á aðeins tvær stangir, hafði yfir 900 löxum verið landað í gær. Í lið- inni viku veiddust 250 – nær átján laxar á stöng á dag. „Jú, hér svífa allir um á skýi,“ svarar Arnar Jón Agnarsson sölu- stjóri leigutaka Laxár, Salmon tails, og leiðsögumaður við ána, þegar spurt er að því hvort veiðimenn séu ekki kátir við ána. „Það er mjög mikið af fiski í ánni og laxinn er enn að ganga af fínum krafti. Við höfum ekki séð jafn mikið magn af fiski í Laxá síðan við tókum við henni. Ekki einu sinni sumarið 2013, sem var frábært, enda verður þetta mun betra. Enn er rúmur mánuður eftir af tímabilinu og veiðin á eftir að enda í tólf til þrettán hundruð.“ Agnar segir laxinn veiðast í öllum hyljum. „Og allir frægustu hyljir ár- innar eru stútfullir af fiski.“ Hann segir þessa góðu meðal- veiði, hátt í tuttugu laxa á stöng, ekki segja alla söguna. „Sum hollin hafa verið rólegri en önnur. En jú, með sæmilegri ástund- un hafa veiðst allt að tuttugu laxar á stöng á dag. Og það þrátt fyrir að hrikalega slæmt veður hefur verið undanfarið. Hörkurok og lofthitinn ekki nema sex til átta gráður. Lax- inn hefur því ekki byrjað að taka fyrr en vatnið hlýnar aðeins, milli klukkan níu og tíu og svo hefur tak- an stoppað aftur fyrir klukkan níu á kvöldin. Við spyrjum okkur hvernig veiðin hefði eiginlega verið hefðu að- stæður verið betri!“ Hann hlær. „Við höfum verið mjög heppnir með veið- ina hér í Laxá síðustu þrjú ár, meira að segja í fyrra þar sem veiðin var víða slæm. En nú er góð veiði alls staðar og hér er hún fáránlega góð.“ Arnar segir að á morgnana veiðist vel á litla keiluhausa en annars séu laxarnir að taka smáflugur og gáru- túpur reynist vel. „Nú eru hér algjörar draumaað- stæður, gott vatn, mikið af fiski sem tekur vel og ánægðir veiðimenn. Eina vandamálið er að menn þurfa að vera í fernum peysum og þrenn- um ullarsokkum til að endast vakt- ina vegna kulda. Það er gaman að í hverjum ein- asta hyl sem menn kasta í er eitt- hvað líf og þeir setja í laxa og landa oft í þeim öllum. Það er stanslaus og jöfn veiði. Þetta er ævintýralegt. Það var settur á kvóti þegar við tókum við, tveir laxar á stöng á dag, og það skilar sér í að það er miklu meira af fiski þegar líður á sumarið.“ Sá stærsti í sumar Ekkert lát er á stórlaxaveiði í Laxá í Aðaldal. Í vikunni veiddi Bjartmar Pétursson við Laxatanga á svæðum Laxárfélagsins stærsta lax sumarsins. Var það 110 cm hængur sem var veginn 27 pund í háfnum. Tók hann fluguna Dimmblá númer 8. Í samtali við Mbl.is sagði Bjartmar laxinn hafa verið gríðar- lega sterkan og að viðureignin hafi tekið rúma klukkustund. Í Svalbarðsá í Þistilfirði, þar sem veitt er á þrjár stangir, var sann- kallað metholl að veiðum í vikunni. Eftir rúmlega fjóra veiðidaga af sex var búið að landa eitt hundrað löx- um, góðri blöndu af smálaxi og stórum Þistilfjarðardrekum. Allt sumarið í fyrra gaf áin 403 laxa. „Hér svífa allir um á skýi“  Laxveiðin er góð um land allt og 22 prósentum yfir meðalveiði síðastliðna viku  Yfir 3000 laxar hafa veiðst í Blöndu og er það metveiði  Nær átján laxa meðalveiði á stöng í Laxá á Ásum Morgunblaðið/Einar Falur Stórfiskur Veiðimaður klappar 82 cm nýgenginni hrygnu áður en hún syndir aftur út í strauminn í Laxahyl í Húseyjarkvísl. Góð veiði hefur verið í ánni. Aflahæstu árnar Heimild: www.angling.is* Tölur liggja ekki fyrir Blanda (14) Miðfjarðará (10) Ytri-Rangá & Hólsá (20) Norðurá (15) Þverá-Kjarrá (14) Langá (12) Haffjarðará (6) Eystri-Rangá (18) Laxá á Ásum (2) Hítará (6) Grímsá og Tunguá (8) Víðidalsá (8) Laxá í Aðaldal (18) Laxá í Kjós (8) Vatnsdalsá (6) Veiðivatn (Stangafjöldi) Veiði Á sama tíma í fyrra Á sama tíma 2013 Staðan 5. ágúst 2015 1563 860 843 733 851 225 567 1306 618 272 302 324 518 322 367 2113 1938 1865 2564 2253 1551 1495 1733 672 * 997 445 606 603 629 2997 2527 2415 2115 1460 1384 1115 905 870 713 696 680 667 644 590 Stærstur Bjartmar Pétursson með 110 cm, 27 punda laxinn í Aðaldal.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.