Morgunblaðið - 08.08.2015, Blaðsíða 27
UMRÆÐAN 27
Messur á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 2015
ÞÓR HF
Reykjavík:
Krókháls 16
110 Reykjavík
Sími 568-1500
Akureyri:
Lónsbakka
601 Akureyri
Sími 568-1555
Vefsíða:
www.thor.is
Réttu tækin fyrir verktaka
Wacker Neuson
Beltavagnar upp í 3 tonn og hjólavagnar
(dumperar) upp í 10 tonn. Allt sem viðkemur
jarðvegsvinnu.
Wacker Neuson
Smágröfur og beltagröfur frá
800 kg upp í 15 tonn.
Hjólagröfur upp í 10 tonn.
Erummeð sýningarvélar í sýningarsal okkar að Krókhálsi 16
í Reykjavík. Kíkið við - sjón er sögu ríkari!
Eitt þekktasta leikbragðskákarinnar er kennt viðvið William Davies Ev-ans, kaptein í breska sjó-
hernum á því tímabili við upphaf 19.
aldar þegar Napóleóns-stríðin voru
ekki á enda kljáð. Í frístundum sat
hann og tefldi á uppihaldskrá sinni í
London, beitti bragði sínu við hvert
tækifæri og vann margan frækileg-
an sigur. Til er í handriti skák sem
hann tefldi og vann í 20 leikjum gegn
landa sínum Alexander McDonnell.
Sá varð síðar frægur fyrir maraþon-
einvígi sem hann háði síðar í London
við Frakkann La Bourdonnais. Ev-
ans-bragð sprettur upp úr Ítalska
leiknum: 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bc4
Bc5 og nú 4. b4!? Besta leið svarts
hefur löngum verið talin sú að hirða
b4-peðið og gefa það síðan aftur við
hentugt tækifæri. Fischer og Kasp-
arov tefldu stundum Evans-bragð,
sá fyrrnefndi í léttari skákum, en
frægt varð þegar Kasparov vann
Anand í aðeins 25 leikjum á skák-
móti í Ríga árið 1995. Það vill nú
samt verða svo með unnendur gam-
bíta að þeir eiga stundum erfitt með
að fóta sig í flóknum stöðum, t.d.
þegar þeir hafa leiðst út í að henda
miklum liðsafla „fyrir borð“. Í dag
vandast málið fræðilega með „skák-
reikna“ beintengda við gagnagrunna
sem meta stöðurnar á örskots-
stundu. En samt hafa gambítarnir,
t.d. kóngsbragð, skólað til marga öfl-
uga stórmeistara og nægir að nefna
Boris Spasskí og Jón L. Árnason.
Á skákmóti sem lauk í Dortmund í
Þýskalandi á dögunum vann Fa-
biano Caruana öruggan sigur eftir
mikinn sprett þar sem hann vann
fimm skákir í röð og varð að lokum
1½ vinningi á undan næsta manni,
Filippseyingnum Wesley So. Í einni
af sigurskákunum kom Evans-bragð
við sögu. Sennilega hefur andstæð-
ingur hans, Nisipeanu frá Georgíu,
ætlað að koma Caruana á óvart en
Ítalinn, sem brátt mun tefla fyrir
Bandaríkjamenn, reyndist öllum
hnútum kunnugur. Í skýringum sem
hann gerði við skákina komst hann
svo að orði að frá sínum sjónarhóli
væri bragð Evans búið að vera. Ein-
hvern veginn flögrar að manni að
Caruana hafi kynnt sér skákir sem
Hannes Hlífar Stefánsson tefldi fyr-
ir allmörgum árum.
Dortmund 2015; 7. umferð:
Dieter Nisipeanu – Fabiano
Caruana
Ítalskur leikur – Evans-bragð
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bc4 Bc5 4.
b4 Bxb4 5. c3 Ba5 6. d4 d6 7. Db3
Dd7
Þessi og næsti leikur svarts halda
stöðunni saman. lakara er 7. … De7
vegna 8. d5 þó að svartur geti barist
áfram með 8. … Rd4!
8. dxe5 Bb6 9. a4 Ra5 10. Da2
Rxc4 11. Dxc4 Re7 12. Ba3
Þekktur staður fyrir biskupinn í
Evans-bragði en skapar engin
vandamál.
12. … 0-0 13. 0-0 He8
Í skýringum sínum telur Caruna
að enn betra hefði verið að leika 13.
… Rg6 og eftir 14. exd6 cxd6 15.
Hd1 Dg4! hóti svartur m.a. 16. ….
Rf4.
14. exd6 cxd6 15. Hd1 Dc6 16.
Rbd2 Be6 17. Dxc6 Rxc6 18. Bxd6
Had8 19. Bb4 Hd3!
Svartur hefur gefið peð um stund-
arsakir en menn hans standa vel.
20. a5 Bc7 21. Rf1 Hxd1 22. Hxd1
Rxa5 23. Rd4 Rc4 24. Rxe6 Hxe6 25.
Hd7 Hc6 26. Rg3 g6!
Svarta staðan er alltaf betri vegna
þess hve illa biskupinn á b4 stendur.
Áður en svartur ræðst til atlögu loft-
ar hann út og hindrar för riddarans
til f5 í leiðinni.
27. Re2 a5 28. Rd4?
Hann varð að leika 28. Be7.
28. … axb4 29. Rxc6 b3 30. Hxc7
Rd6!
Magnaður lokahnykkur, b3-peðið
rennur upp í borð þó að hvítur sé
hrók yfir.
Endalok Evans-bragðs
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Aðventkirkjan í Reykjavík | Biblíufræðsla
laugardag kl. 11. Guðsþjónusta kl. 12.
Ræðumaður er Lilja Ármannsdóttir. Barna-
og unglingastarf. Sameiginlegur málsverður
eftir samkomu.
Aðventkirkjan í Vestmannaeyjum | Guðs-
þjónusta laugardag kl. 12. Bein útsending
frá Reykjavíkursöfnuði.
Aðventsöfnuðurinn á Akureyri | Biblíu-
rannsókn laugardag kl. 11. Guðsþjónusta kl.
12. Barnastarf.
Aðventsöfnuðurinn á Suðurnesjum | Bibl-
íufræðsla laugardag kl. 11. Guðsþjónusta kl.
12.
Aðventsöfnuðurinn í Árnesi | Biblíu-
fræðsla laugardag kl. 10. Guðsþjónusta kl.
11. Ræðumaður er Elías Theódórsson.
Barna- og unglingastarf.
Aðventsöfnuðurinn í Hafnarfirði | Guðs-
þjónusta laugardag kl. 11. Ræðumaður er
Stefán Rafn Stefánsson. Biblíufræðsla kl.
11.50. Barna- og unglingastarf. Umræðuhóp-
ur á ensku. Súpa og brauð eftir samkomu.
Árbæjarkirkja | Helgistund kl. 11. Sr. Þór
Hauksson þjónar fyrir altari og prédikar.
Organisti er Guðmundur Ómar Óskarsson.
Félagar úr kirkjukórnum leiða almennan
safnaðarsöng. Kirkjukaffi á eftir.
Áskirkja | Áskirkja er lokuð til 18. ágúst
vegna sumarleyfa sóknarprests og starfs-
fólks. Næsta almenna messa verður sunnu-
daginn 23. ágúst. Sjá nánar á askirkja.is.
Bústaðakirkja | Guðsþjónusta kl. 11. Fé-
lagar úr Kór Bústaðakirkju syngja undir
stjórn Jónasar Þóris kantors. Messuþjónar
aðstoða og prestur er Pálmi Matthíasson.
Molasopi og hressing eftir messu.
Dómkirkja Krists konungs, Landakoti |
Messa kl. 10.30, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á
ensku. Virka daga kl. 18, og mánud., miðvi-
kud. og föstud. kl. 8, laugard. kl. 16 á
spænsku og kl. 18 er sunnudagsmessa.
Dómkirkjan | Messa kl. 11. Karl Sigur-
björnsson biskup prédikar og þjónar fyrir alt-
ari. Dómkórinn syngur og organisti er Eyþór
Franzson Wechner. Minnum á bílastæðin í
kjallara Ráðhússins.
Elliheimilið Grund | Guðþjónusta kl. 14 í
hátíðarsal Grundar. Séra Skúli Ólafsson
þjónar. Tónlist er í umsjón Kristínar Waage
organista og Grundarkórs.
Fella- og Hólakirkja | Helgistund kl. 20.
Sr. Guðmundur Karl Ágústsson þjónar fyrir
altari. Organisti er Guðný Einarsdóttir. Með-
hjálpari er Jóhanna Freyja Björnsdóttir. Kaffi-
sopi eftir stundina.
Fríkirkjan Reykjavík | Fermingarguðsþjón-
usta kl. 14. Séra Hjörtur Magni Jóhannsson
safnaðarprestur þjónar fyrir altari. Söng-
hópurinn við Tjörnina leiðir sönginn við undir-
leik Aðalheiðar Þorsteinsdóttur. Ferming-
arbarn dagsins er Daníel Sverrir
Guðbjörnsson.
Garðakirkja | Sameiginleg messa Garða-
og Bessastaðasókna kl. 11. Sr. Hans Guð-
berg Alfreðsson prédikar og þjónar fyrir alt-
ari. Bjartur Logi organisti leiðir sönginn.
Grafarvogskirkja | Guðsþjónusta kl. 11.
Séra Guðrún Karls Helgudóttir prédikar og
þjónar fyrir altari. Kór kirkjunnar syngur.
Organisti er Hákon Leifsson. Kaffisopi eftir
messu.
Grensáskirkja | Vegna sumarleyfa er
Grensáskirkja lokuð til 13. ágúst. Bent er á
guðsþjónustur í öðrum kirkjum.
Hafnarfjarðarkirkja | Helgistund kl. 11.
Sálmasöngur, ritningarlestur, hugleiðing,
bænagjörð, altarisganga. Organisti er
Douglas Brotchie. Prestur er Þórhildur Ólafs.
Hallgrímskirkja | Messa kl. 11. Sr. Irma
Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir
altari ásamt sr. Leonard Ashford og hópi
messuþjóna. Félagar úr Mótettukór Hall-
grímskirkju syngja. Organisti er Hörður Ás-
kelsson. Sögustund fyrir börnin. Alþjóðlegt
orgelsumar: Tónleikar laugardag kl. 12 og
sunnudag kl. 17. Andreas Liebig frá Sviss
leikur. Fyrirbænaguðsþjónusta þriðjudag kl.
10.30. Árdegismessa miðvikudag kl. 8.
Háteigskirkja | Messa kl. 11. Organisti er
Steinar Logi Helgason. Prestur er sr. Helga
Soffía Konráðsdóttir. Samskot dagsins
renna til félagsstarfs flóttamanna í Reykja-
vík.
Hjúkrunarheimilið Eir | Guðsþjónusta kl.
15.30. Séra Vigfús Þór Árnason prédikar og
þjónar fyrir altari. Þorvaldur Halldórsson spil-
ar og syngur létt lög frá kl. 15.
Íslenska Kristskirkjan | Fyrsta samkoma
eftir sumarfrí er kl. 20. Lofgjörð og fyrir-
bænir. Ólafur H. Knútsson prédikar. Einnig
verður heilög kvöldmáltíð.
Kópavogskirkja | Guðsþjónusta kl. 11.
Langholtskirkja | Guðsþjónusta kl. 11. Sr.
Guðbjörg Jóhannesdóttir og Jón Stefánsson
organisti. Athugið að sunnudagaskólinn
hefst ekki fyrr en í september.
Laugarneskirkja | Regnbogamessa kl. 17.
Messan er hluti af dagskrá Hinsegin daga
og haldin í samstarfi við grasrótarsamtökin
Hinsegin í Kristi og Laugarnessöfnuð.
Messukaffi að lokinni samverustund.
Lágafellskirkja | Guðsþjónusta kl. 20. Org-
anisti er Arnhildur Valgarðsdóttir. Prestur er
Skírnir Garðarsson.
Neskirkja | Messað kl. 11. Kristín María
Jónsdóttir situr við hljóðfærið og leiðir söng
kórfélaga. Kaffi og sætabrauð að messu lok-
inni. Prestur er Skúli S. Ólafsson.
Salt kristið samfélag | Samkoma kl. 17 í
Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58-60, 3.
hæð. Ræðumaður er Baldur Ragnarsson.
Túlkað á ensku.
Selfosskirkja | Messa kl. 11. Halldóra Þor-
varðardóttir prófastur setur prestana Ninnu
Sif Svavarsdóttur og Guðbjörgu Arnardóttur
inn í embætti. Kaffiveitingar að athöfn lok-
inni. Kirkjukór Selfosskirkju syngur, organisti
er Jörg E. Sondermann.
Seljakirkja | Kvöldguðsþjónusta kl. 20. Sr.
Ólafur Jóhann Borgþórsson prédikar, félagar
úr Kór Seljakirkju leiða safnaðarsöng. Organ-
isti er Tómas Guðni Eggertsson. Altaris-
ganga.
Seltjarnarneskirkja | Helgistund kl. 11. Sr.
Árni Svanur Daníelsson þjónar. Kaffisopi eft-
ir athöfn.
Skálholtsdómkirkja | Messa kl. 11. Sr.
Egill Hallgrímsson sóknarprestur annast
prestsþjónustuna. Organisti er Jón Bjarna-
son.
Þingvallakirkja | Messa kl. 14. Í tilefni af
heimsókn góðra gesta frá Þýskalandi fer
messan að þessu sinni öll fram á þýsku,
jafnt messusöngur, lestrar og prédikun. Flori-
an Herrmann þjónar fyrir altari, Lothar Muell-
er prédikar og Wolfgang Tretzsch leiðir söng.
Umsjón hefur Kristján Valur Ingólfsson
vígslubiskup í Skálholti. Bílastæði eru við
Flosagjá og á Valhallarreit.
Orð dagsins:
Jesús grætur yfir Jerú-
salem.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Laugarneskirkja.
(Lúk. 19)
—með morgunkaffinu