Morgunblaðið - 08.08.2015, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 08.08.2015, Blaðsíða 31
MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 2015 ✝ Sigríður Odds-dóttir fæddist á Reyðarfirði 16. febrúar 1924. Hún lést á Landspít- alanum í Fossvogi 25. júlí 2015. Hún var dóttir hjónanna Odds Bjarnasonar póst- meistara, f. á Kollaleiru í Reyð- arfirði 12. desem- ber 1886, d. 25. mars 1975, og Guðrúnar Jónsdóttur, f. í Sóma- staðagerði á Reyðarfirði 29. september 1888, d. 8. desember 1960. Systir Sigríðar er Pálína Oddsdóttir, f. á Reyðafirði 30. maí 1930. Sigríður giftist 12. apríl 1955 Eiríki Hafsteini Sölvasyni hús- gagnasmiði, f. 12. apríl 1928 í Efri-Miðvík í Aðalvík. For- eldrar hans voru Sölvi Þor- bergsson, f. 23. mars 1895, d. 11. nóvember 1960, og Sigur- lína Guðrún Guðmundsdóttir, f. 9. desember 1901, d. 21. nóvember 1990. Sigríði varð ekki barna auðið. Sigríður og Haf- steinn héldu heim- ili með foreldrum Sigríðar, Oddi og Guðrúnu, að Dun- haga 11 í Reykja- vík þar til þeir féllu frá. Eftir gagnfræða- próf fór Sigríður að vinna við símstöðina á Reyðarfirði og átti reyndar eftir að verja allri sinni starfsævi hjá Póst- og síma- málastofnun. Fjölskyldan flutti frá Reyðarfirði til Reykjavíkur 1950 og starfaði Sigríður þá í Landsímahúsinu við Austurvöll, lengst af við símaskrána, og sá þar um að skrá ný og breytt símanúmer og undirbúa skrána fyrir prentun. Að ósk Sigríðar fór útför hennar fram í kyrrþey þann 5. ágúst 2015. Á kveðjustund er svo óend- anlega margt að þakka. Allt mitt líf hefur Úa (Sigríður), móður- systir, verið hluti af tilveru minni. Mér er sagt að Úa hafi tekið ástfóstri við mig frá fæð- ingu og eitt er víst að ást hennar og umhyggja í minn garð og allra minna átti eftir að vara allt hennar líf. Ætíð var hægt að leita til þeirra Hadda ef eitthvað bjátaði á og hún hafði lag á því að leysa öll vandamál, með bros á vör. Synir okkar Leifs, Krist- ján og Magnús, nutu ekki síður góðs af elsku hennar og ekkert fannst henni skemmtilegra en að eyða tíma sínum með drengjun- um og hún var óspör á þann tíma. Þau Haddi héldu heimili með móðurafa mínum og ömmu þar til þau féllu frá og Úu þótti þessi sambúð alveg sjálfsögð og aldrei heyrði ég hana tala um neina árekstra. En svona var hún bara gerð; örlæti hennar og um- hyggja fyrir ættingjunum átti sér engin takmörk. Allt lék í höndunum á henni. Hún var svo vel skipulögð og verklagin, að þótt hún stæði í stórræðum virtist mér það alltaf svo einkennilega áreynslulaust. Þrátt fyrir langa vinnudaga hjá Símanum var öllum störfum heima fyrir sinnt fullkomlega og manni fannst að það hlytu að vera fleiri klukkustundir í sólar- hringnum hjá henni en okkur hinum. Fyrir utan allt annað þá var Úa svo ótrúlega nett og „eleg- ant“ og notaði skó númer 35! Þegar ég var lítil stelpa fannst henni ekkert eðlilegra en að ég fengi að prófa samkvæmiskjól- ana hennar, gramsa í skartgripa- skríninu og ganga um í háhæl- uðu skónum. Mér leið auðvitað eins og heimsdömu. Við frænk- urnar fórum reyndar í eitt sinn tvær saman í reisu til London og mátti ekki á milli sjá hvor naut sín betur í stórborginni. Ótalin eru þá ferðalög okkar fjölskyld- unnar bæði austur og vestur um haf og dásamlegar samveru- stundir í sumarbústaðnum ná- lægt Elliðavatni. Móður minni, Pálínu, er þung- bært að kveðja systur sína, en þær voru einstaklega nánar og samhentar alla tíð. Við munum öll gera okkar besta til þess að styðja hana og Hadda í sorginni. Oddrún Kristjánsdóttir. Ef einhver spyr mig hvernig ég og Úa séum skyld, þá segi ég oftar en ekki að hún sé amma mín. Mér finnst frænka ekki vera nógu lýsandi hversu náin við vorum. Það eru ekki allir svo heppnir að eiga þrjár ömmur, en við bræðurnir erum einir af þeim. Frá því að við komum í heiminn höfum við átt ömmu- systur sem var okkur sem amma. Úa og Haddi, ásamt ömmu minni og afa, gerðu rosalega mikið með okkur bræðrunum. Við ferðuðumst saman um landið á sumrin og áttum margar skemmtilegar ferðir í „gömlu sveit“, þar sem þau voru með bú- stað. Þaðan eigum margar góðar minningar með þeim öllum. Úa, Haddi, afi og amma léku þar við okkur, fóru í „yfir“ með okkur og fleiri leiki. Eftir stuðið gæddum við okkur á flatkökum með kæfu, skonsum með rabarbarasultu og kannski einni köku, allt heima- gert af Úu og ömmu. Hún Úa var nefnilega alveg svakalega góð húsmóðir. Þegar ég var ungur var uppáhaldsmat- urinn minn fiskigratínið hennar Úu. Seinna þróaði ég þó með mér fiskiofnæmi en þá varð uppáhaldið mitt kjötbollurnar hennar Úu (ásamt bestu kart- öflumús í heimi). Þegar maður minnist á mat, þá verður maður að nefna matinn hjá henni og Hadda á jóladag. Það var ekkert venjulegt matarboð. Við mætt- um um kaffileytið og fengum svaðalegt hlaðborð af kræsing- um. Svo voru gestirnir bara látn- ir slaka á, kíkja í blöðin eða spila spil. Svo um kvöldmatarleytið þá var borið fram margrétta máltíð sem myndi sæma sér vel á jóla- hlaðborði! Eftir það var svo spil- að bobb, vist eða manni eða eitt- hvað af þeim spilum sem einhver fékk í jólagjöf. Ótrúlegur dugn- aður. Það sem stendur samt uppúr er hvað hún Úa var ótrúlega barngóð. Ég get varla ímyndað mér eitt skipti sem hún sagði nei við mann. Hún var alltaf til í að gera eitthvað með okkur. Svo var hugulsemin mikil. Til að mynda þegar við vorum yngri þá var alltaf passað upp á að það væru ný Andrésblöð heima hjá henni þegar við komum í heim- sókn. Það var mjög vel séð hjá litlum drengjum. Allt fram á síð- asta dag, þá var hún alltaf frá- bær gestgjafi, að bjóða okkur glas af kóki. Kristján Leifsson. Sigríður Oddsdóttir ✝ Eggert Ólafs-son í Bakka fæddist á Siglufirði 16. október 1942. Hann lést á heil- brigðisstofnun Fjallabyggðar, Siglufirði 24. júlí 2015. Foreldrar hans voru Ólafur Sigur- björnsson, f. 1923 d. 2008, og Jóna Friðriksdóttir, f. 1922, d. 1999. Eggert ólst upp á Siglufirði hjá afa sínum, Friðriki Ingvari Stefánssyni, f. 1897, d. 1976, og konu hans, Margréti Marsibil Eggertsdóttur, f. 1903, d. 1985. Eggert leit á þau sem sína for- eldra. Uppeldissystur hans eru Guðný Ósk, f. 1932, og Guð- Friðrik, f. 22. 7 1975, sambýlis- kona Ásthildur Sóllilja Haralds- dóttir, börn hans eru Kristinn Dagur og Svala Dís. Sambýlis- kona Eggerts var Þuríður Alma Karlsdóttir, þau slitu samvistum, þau eignuðust einn son. 3. Ingimar, f. 27. 2. 1984. Þann 17. júlí 1992 giftist Egg- ert Sólrúnu Valsdóttur, f. 21.1. 1944 Sólrún á þrjú börn, 1. Val- dís, 2. Ólafur og 3. Auður, Ingi- marsbörn. Sólrún á sjö barna- börn. Eggert var lengst af sjómað- ur og vann hann þar ýmis störf en lengst af var hann kokkur. Seinustu árin, eða frá því hann flutti aftur til Siglufjarðar og þar til hann lét af störfum sök- um aldurs, vann hann hjá Siglufjarðarbæ. Útför Eggerts verður gerð frá Siglufjarðarkirkju í dag, 8. ágúst 2015, og hefst athöfnin kl. 14. björg Oddný, f. 1936, Friðriks- dætur. Systkini sammæðra Óli Þór, f. 1944, Jóhanna, f. 1945, Guðný, f. 1948, Alfreð Hjört- ur, f. 1952, d. 1975, Friðrik Ingvar, f. 1954, Bernódus, f. 1957, og Katrín Frigg, f. 1962, Al- freðsbörn. Systkini samfeðra Sigurbjörn, f. 1948, og Gerður, f. 1951 Ólafsbörn. Eggert giftist Stefaníu Guð- mundsdóttur, þau skildu. Þau eignuðust tvö börn: 1. Árný Sigurlaug, f. 16.12. 1971, maki Birgir Þórisson, börn þeirra eru Daníel Ágúst, Stefanía Lilja og Berglind Rós. 2. Guðmundur Okkar elskulegi mágur og svili, Eggert Ólafsson, kvaddi þennan heim 24. júlí eftir lang- varandi veikindi. Kynni okkar Eggerts hófust þegar systir mín Sólrún (Gógó) og Eggert giftu sig. Þau áttu strax svo fallegt og ástríkt samband og sameiginleg áhugamál. Það að ferðast bæði innlands og til sólarlanda. Þau voru í húsbílafélaginu Flakkar- anum og fóru með víða um land. Eggert starfaði frá unga aldri við sjómennsku, þar til hann veiktist. Þau fluttu úr fallega húsinu sínu í Fossvogi til Siglu- fjarðar, keyptu þar hús í mið- bænum, notuðu það fyrst sem sumarhús en síðan til búsetu. Eggert hóf fljótlega störf hjá Siglufjarðarbæ. Hann var alltaf fús að taka að sér viðbótar- störf, keyra skólabörnin, hjálpa til á skíðasvæðinu á veturna og útihátíðirnar á sumrin. Okkur hjónum fannst hann oft á tíðum ofgera sér. Það var mjög gam- an þegar þau komu suður til okkar á húsbílnum sínum og höfðum við margar skemmti- legar stundir í Traðarlandinu. Eggert var alltaf svo hress og kátur þrátt fyrir að hann væri orðinn fárveikur. Þegar við töl- uðum við hann var alltaf sama svarið að hann hefði það svo gott. Við Þórir munum sakna hans og biðjum Guð að blessa minn- ingu hans. Okkar innilegustu samúðarkveðjur til Sólrúnar og fjölskyldu hans. Helga og Þórir. Eggert Ólafsson HJARTAVERND Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 ÞAR SEM FAGMENNSKAN RÆÐUR Blómaverkstæði Binna | Skólavörðustíg 12 | Sími: 5613030 Davíð útfararstjóri 551 3485 - www.udo.is Óli Pétur útfararstjóri ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Auðbrekku 1, Kópavogi Útfararþjónusta síðan 1996 Vaktsímar: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is • Allan sólarhringinn ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 Kristín Ingólfsdóttir Hilmar Erlendsson Sverrir Einarsson Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, VICTOR JACOBSEN leigubifreiðarstjóri, varð bráðkvaddur hinn 26. júlí. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 10. ágúst kl. 15. . Aðalheiður Jacobsen, Sigurður Örn Sigurðsson, Jón Kr. Jacobsen, Katrín Ingvadóttir, barnabörn og barnabarnabarn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ELLIÐI MAGNÚSSON pípulagningamaður, Árskógum 8, áður Engjabæ við Holtaveg, lést á gjörgæsludeild LSH Fossvogi 31. júlí. Útförin fer fram frá Áskirkju föstudaginn 14. ágúst kl. 11. . Guðlaug Eygló Elliðadóttir, Ari Reynir Halldórsson, Júlíus Elliðason, Ása Ásgrímsdóttir, Þröstur Elliðason, Ásthildur Sumarliðadóttir, Magnús Davíð Elliðason, Guðrún Hrefna Elliðadóttir, Svavar Valur Svavarsson, börn og barnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐBJÖRG ELÍN ÞÓRARINSDÓTTIR, áður Drápuhlíð 30, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni fimmtudaginn 6. ágúst. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 19. ágúst klukkan 13. . Pjetur Stefánsson, María Árnadóttir, Dóra Thorsteinsson, Geir Thorsteinsson, Halldóra Æsa Aradóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN JÓNAS BÁRÐARSON húsa- og húsgagnasmiður, áður til heimilis að Lindargötu 66, lést á hjúkrunarheimili Hrafnistu í Reykjavík þann 3. ágúst. Útförin fer fram frá Laugarneskirkju miðvikudaginn 12. ágúst kl. 15. . Guðlaug Erna Jónsdóttir, Guðmundur L. Hafsteinsson, Birna Jónsdóttir, Guðmundur Ingi Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR HREFNA MAGNÚSDÓTTIR, Lundi 3, Kópavogi, lést á Landspítalanum miðvikudaginn 5. ágúst. Jarðarförin fer fram frá Neskirkju fimmtudaginn 13. ágúst kl. 15. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Barnaspítala Hringsins. . Ásta Pétursdóttir, Júlíus Bjarnason, Erla Pétursdóttir, Ísleifur Leifsson, Guðrún Sylvía Pétursdóttir, ömmubörn og langömmubörn. Elskulegur faðir minn, SKARPHÉÐINN SKARPHÉÐINSSON, Háagerði 23, Reykjavík, er látinn. Hann verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 11. ágúst kl. 11. Fyrir hönd aðstandenda, . Stefán Páll Skarphéðinsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.