Morgunblaðið - 08.08.2015, Qupperneq 52
LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 220. DAGUR ÁRSINS 2015
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 790 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Fann holu í lífeyrisréttindum
2. Fyrri breiðþotan af tveimur
3. Fálkaorða til sölu á nytjamarkaði
4. Sígaunakonungurinn dæmdur
Ólafur Arnalds samdi aðalþema-
stef stórmyndarinnar Fantastic Four
sem frumsýnd var í Bandaríkjunum í
gær og hérlendis sl. miðvikudag. Þar
með bætir listamaðurinn enn einni
rós í hnappagatið hjá sér.
Morgunblaðið/Kristinn
Ólafur samdi þema-
stef Fantastic Four
Augnabliss
nefnist sam-
starfsverkefni
Gunnars Gunn-
steinssonar tón-
skálds og Krist-
jáns Guðjóns-
sonar heim-
spekings sem
flutt verður í dag.
Um er að ræða eins dags innsetningu
á mörkum lista og heimspeki sem
fram fer í dag kl. 13-21 í tómu
verslunarrými í JL-húsinu þar sem
ráðgert er að reisa hótelið Oddsson.
Eins dags listagjörn-
ingur í JL-húsinu
Búðabandið spilar ástar- og partí-
lög á Kiki queer bar annað kvöld,
sunnudag, kl. 21.30. Tónleikarnir eru
hluti af dagskrá Hinsegin daga.
Bandið skipa söngkonan Bryndís Ás-
mundsdóttir, gítarleikarinn Franz
Gunnarsson og ásláttarleikarinn
Þórdís Claessen.
Tónleikarnir munu
hefjast á róman-
tískum nótum með
ástarlögum en
smám saman
taka partí-
lögin yfir.
Búðabandið leikur
ástar- og partílög
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Gengur í austan 5-10 kringum hádegi, en 10-15 syðst. Rigning með
köflum S- og síðar A-lands, en rofar til og hlýnar um landið N-vert. Hiti 10 til 17 stig.
Á sunnudag Norðan 5-10 m/s og súld eða rigning, en skýjað með köflum S-til á landinu.
Hiti 8 til 18 stig, hlýjast S-lands.
Á mánudag Hæg breytileg átt. Skýjað að mestu á landinu og skúrir á stöku stað. Heldur
kólnandi.
Fyrsta umferðin í ensku úrvalsdeild-
inni í knattspyrnu hefst í dag. Liðin
koma misvel undan vetri en þau hafa
þegar eytt yfir 500 milljónum punda í
leikmenn í sumar. Englandsmeistarar
Chelsea eru sigurstranglegastir en
lið Manchester City, Manchester
United og Arsenal mæta öll efld til
leiks. Aston Villa missti lykilmenn í
sumar og þykir ólíklegt til dáða. »2
Enska úrvalsdeildin
hefst á ný í dag
„100 metra baksundið mitt
um daginn heppnaðist
rosalega vel, það er að
segja undanrásirnar. Mér
gekk ekki jafn vel um
kvöldið vegna þess að ég
var allt of stressuð. En mér
finnst ég samt vera í mínu
besta formi núna,“ sagði
Eygló Ósk Gústafsdóttir
sem syndir í úrslitum í 200
metra baksundi á HM. »1́
Finnst hún vera í
sínu besta formi
Gary Martin segist ekki lengur vera
framherji númer eitt hjá KR, í samtali
við Morgunblaðið í dag, heldur segist
hann vera númer þrjú í goggunarröð-
inni. Martin og Jo-
nathan Glenn,
tveir marka-
hæstu leikmenn
Pepsi-deild-
arinnar í fyrra,
voru ekki
lykilmenn
hjá sínum
liðum í sum-
ar. »4
Gary Martin segist vera
þriðji í goggunarröðinni
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Fyrir tæplega 70 árum varð Albert
Guðmundsson fyrsti atvinnumaður
Íslendinga í knattspyrnu. Fyrir
skömmu skrifaði Albert Guðmunds-
son, barnabarnabarn hans, undir
samning til þriggja ára við hol-
lenska félagið PSV Eindhoven, en
foreldrar Alberts yngri og afi hans,
sonur Alberts eldri, gerðu garðinn
einnig frægan í fótboltanum.
Albert Guðmundsson er stórt
nafn í íslenskum íþróttaheimi. Hann
ruddi ekki aðeins brautina fyrir at-
vinnumennsku íslenskra leikmanna
heldur var hann einn fremsti knatt-
spyrnumaður landsins og vann að
framgangi knattspyrnunnar hér-
lendis, meðal annars sem formaður
Knattspyrnusambands Íslands.
Hann var fyrsti knattspyrnu-
maðurinn til þess að vera tekinn inn
í Heiðurshöll Íþrótta- og ólympíu-
sambands Íslands. „Þetta truflar
mig ekkert,“ segir Albert um fram-
göngu langafa síns, en Albert af-
hjúpaði styttu af langafa sínum fyrir
framan höfuðstöðvar KSÍ 2010.
Áhrif fjölskyldunnar
Þekkt er í atvinnulífinu að börn
feti í fótspor foreldra og jafnvel
einnig forfeðra. Mörg dæmi eru um
að börn afreksfólks í íþróttum feti
sömu braut, en sjaldgæfara er að af-
reksfólkið sé í þremur ættliðum og
hvað þá fjórum.
„Ég hef alla tíð verið með augun á
boltanum og alltaf vitað hvað ég
vildi gera,“ segir Albert og bætir við
að sennilega hafi fótboltasaga fjöl-
skyldunnar eitthvað með það að
gera. Hann segist snemma hafa
byrjað að fara með foreldrunum á
æfingar og boltinn þannig verið stór
hluti af uppeldinu. „Eftir að skóla
lauk á daginn fór ég beint í fótbolta,
hafði ekki tíma fyrir neitt annað.
Fór meira að segja stundum á
morgunæfingar fyrir skóla, þannig
að lífið hefur að mestu snúist um
fótbolta.“
Albert segist hafa lesið allt sem
hann hefur komist yfir um langafa
sinn og þekkja líka vel afrek afa
síns, en Ingi Björn Albertsson átti
lengi markametið í efstu deild á Ís-
landi, 126 mörk. „Ég veit alveg hvað
mamma, pabbi, afi og langafi hafa
afrekað á vellinum og ég hef lært
mikið af þeim,“ segir hann.
Kristbjörg Ingadóttir, móðir Al-
berts, lék m.a. með yngri lands-
liðum og Guðmundur Benediktsson,
faðir hans, var með bestu knatt-
spyrnumönnum landsins en varð að
hætta snemma vegna meiðsla. „Sem
betur fer er ég ekki með hnén
hans,“ segir Albert. „Mér er sagt að
ég sé líkur pabba í hreyfingum, létt-
leikandi eins og hann var, en ég er
ekki með sama markanef og afi,“
heldur hann áfram. „Ég fylgdist vel
með pabba æfa og spila þegar ég
var yngri og hef tileinkað mér
margt frá honum.“
Undanfarin tvö ár var Albert á
mála hjá hollenska liðinu Heeren-
veen og hann er því öllum hnútum
kunnugur í atvinnumennskunni, þó
að hann sé aðeins 18 ára. „Í raun
var miklu stærra skref að fara úr
KR í Heerenveen en þaðan í PSV,“
segir hann.
Gert er ráð fyrir að Albert æfi og
leiki með varaliðinu fyrsta árið.
„Markmiðið hjá mér er að vera bú-
inn að vinna mér sæti í aðalliðinu
eftir tvö ár,“ segir miðjumaðurinn
ungi.
Afreksfólk í fjórum ættliðum
Albert Guð-
mundsson í fótspor
foreldranna, afans
og langafans
Efni Albert Guðmundsson í búningi PSV Eindhoven.
Hann hefur búið í tvö ár í Hollandi og stefnir hátt.
Frumherji Albert Guðmundsson var fyrsti íslenski
atvinnumaðurinn í knattspyrnu og lét að sér kveða.
Albert Guðmundsson ólst upp
hjá Val og lék síðan með Glas-
gow Rangers, Arsenal, Nancy, AC
Milan, Racing Club og Nice, en
lauk ferlinum með ÍBH.
Ingi Björn Albertsson skoraði
126 mörk fyrir Val og FH í efstu
deild og lék einnig í Frakklandi.
Kristbjörg Ingadóttir lék með
Val og KR.
Guðmundur Benediktsson lék
með Þór, Val, belgísku liðunum
Geel og Ekeren og KR. Og svo er
það Albert Guðmundsson yngri.
Sóknargen
LANDSLIÐSFJÖLSKYLDA