Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.08.2015, Qupperneq 2
Í fókus
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.8. 2015
Veðrið í Færeyjum var ekki nógu gott, rigndi
aðeins of mikið. En veðrið á Ítalíu var fínt!
Sif Gunnarsdóttir
Bara ágætt, betra en tvö seinustu sumrin.
Ragnar Ágúst Róbertsson
Betra en seinasta sumar. Mér fannst það bara
ágætt, það komu nokkrir góðir dagar sem
voru til að létta lundina.
Heiður Ýr Guðjónsdóttir
Mér fannst það þokkalegt nema að það
var frekar kalt þangað til núna síðustu
daga. Ég er bara ánægður, alla vega miðað
við síðasta ár.
Hannes Haraldsson
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
SPURNING VIKUNNAR HVERNIG FANNST ÞÉR VEÐRIÐ Í SUMAR?
Jarðvísindastofnun Há-
skóla Íslands og Veður-
stofa Íslands standa um
þessar mundir í samein-
ingu að rannsóknum á
jarðskorpuhreyf-
ingum og er svæðið í
kringum Bárðarbungu í
sérstakri athugun vegna
síðustu umbrota. Við
heimsækjum staðinn. 44
Í BLAÐINU
Morgunblaðið/Árni Sæberg
RAGNAR NATHANAELSSON
SITUR FYRIR SVÖRUM
Horfði niður
á Fjallið
Hvert er markmiðið fyrir EM, hjá þér persónulega og
hjá íslenska landsliðinu?
„Persónulega markmiðið er að gera sitt besta og sýna sig á þessum
stærsta markaði í körfuboltanum. Ég hlakka líka til að sýna sjálfum
mér hvað ég get á móti þessum bestu körlum í álfunni, mjög fáir okk-
ar hafa spilað á móti svona góðum leikmönnum, NBA-hetjum og
fleirum. Það eru algjör forréttindi að vera í þessum hópi. Liðsmark-
miðið er að mæta í alla leiki til að vinna þá. Ef við mætum ekki brjál-
aðir af íslenskum hroka til leiks getum við alveg eins sleppt þessu.“
Hverjum hlakkarðu mest til að mæta?
„Það verður gríðarlega gaman að mæta Þjóðverjum og Dirk [No-
witzki] en einn af mínum uppáhaldsleikmönnum hefur lengi verið Spán-
verjinn Marc Gasol og ég ætla að mæta brjálaður á móti honum og láta
hann hafa það óþvegið. Og þá bræður báða.“
Allt að eitt þúsund Íslendingar fara utan til að styðja
ykkur. Hvaða máli skiptir það?
„Gríðarlega miklu máli. Ekki bara fyrir okkur í liðinu, heldur körfubolta-
hreyfinguna í heild. Þetta er í fyrsta skipti sem við tökum þátt í svona stóru
móti og að finna fyrir öllum þessum stuðningi er ómetanlegt.“
Hvað ertu hár nákvæmlega? Ertu jafnvel hávaxnasti
maður á Íslandi?
„Ég er skráður 2,18. Síðast þegar ég hitti Pétur Guðmundsson [fyrrverandi
landsliðsmann í körfubolta] var hann aðeins hærri en ég en vonandi er hann
byrjaður að skreppa saman. Við þurfum að fara að hittast aftur og mæla okkur.“
Hver er helsti kosturinn við hæðina?
„Að nota hana í körfuboltanum. Maður hefur ákveðið forskot þegar dregur
nær körfunni. Ég hafði lítinn áhuga á íþróttum sem strákur og var eiginlega
dreginn í körfubolta gegn mínum vilja. Menn sáu eitthvað í mér. Sem betur
fer gerðu þeir það, ég hef lært að elska þessa íþrótt.“
En helsti gallinn?
„Það var alltaf bölvað vesen að redda sér fötum en það gengur betur í dag.
Svo eru það blessaðir hurðakarmarnir, þeir hækka ekkert. Nú síðast komu
einhverjir listamenn fram með ljós sem eru lægri en tveir metrar, þannig að
maður er farinn að skalla þau líka. Í guðanna bænum, hækkið ljósin, áður en
glerbrotunum fer að rigna yfir mig!“
Þú ert væntanlega löngu orðinn vanur því að fólk horfi á
þig á götu vegna hæðarinnar?
„Já, það vandist fljótt og mér finnst sjálfsagt að leyfa fólki að taka myndir af
sér með mér. Hef bara gaman af því. Einu sinni hittum við Egill Jónsson
körfuboltamaður, sem er á hæð við mig, Hafþór Júlíus Björnsson í Kringl-
unni en hann er betur þekktur sem Fjallið. Hann var frekar lítill við hliðina
á okkur, við horfum niður á Fjallið. Sú mynd fór eins og eldur í sinu um net-
heima.“
Forsíðumyndina tók
Ingólfur Guð-
mundsson
Hlín Reykdal, sem rekur
samnefnt hönnunarhús, býr
á fallegri hæð í Vestur-
bænum í Reykjavík ásamt
eiginmanni sínum og dætr-
um þeirra tveim. Hlín
heillast af litum og einfald-
leika á heimilinu. Heimili
og hönnun 22.
Bækur Stiegs Larsson um þau Lisbeth Salander og
Mikael Blomkvist hafa selst í tugmilljónum eintaka.
Það þykja tíðindi að komin sé út ný bók í flokknum,
en umdeilt að hún er eftir annan mann. Bækur 50
Andrea Kolbeinsdóttir
kom önnur í mark í 10
kílómetra hlaupi í Reykja-
víkurmaraþoni og var fyrst
íslenskra kvenna í mark.
Hún er aðeins 16 ára upp-
rennandi hlaupastjarna
sem æfir hlaup fjórum
sinnum í viku og tennis
þrisvar í viku. Heilsa 16
Ragnar Ágúst Nathanaelsson er í íslenska landsliðshópnum sem tekur þátt í
Evrópumeistaramótinu í körfubolta sem hefst um næstu helgi. Riðill íslenska
liðsins verður leikinn í Berlín og er fyrsti leikurinn við gestgjafana.