Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.08.2015, Side 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.08.2015, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.8. 2015 Jeremy Corbyn er sparsamur og hefur ávallt gætt þess að misnota ekki reglur um auka- greiðslur sem þingmenn geta krafist. Fyrir nokkrum árum kom í ljós að sumir misnot- uðu þessar reglur herfilega. Tugir nýrra þingmanna fengu í vikunni sæti í lávarða- deildinni, meðal þeirra voru bæði gamlir spunameistarar og þingmenn sem hafa brotið reglurnar. Einn, Douglas Hogg, varð að hætta í neðri deildinni 2010 þegar ljóst varð að hann hafði fengið endur- greidd út- gjöld við að hreinsa síkið við höllina sína. Er hann ferskur blær inn ístaðnað andrúmsloft breskaVerkamannaflokksins eða afturhvarf til löngu liðins tíma, of- stækismaður með mygluð viðhorf dauðra marxista? Allt bendir til þess að flokksmenn velji fyrri skýr- inguna og geri hinn 66 ára gamla Jeremy Corbyn að næsta leiðtoga flokksins. Rætt er um Corbyn-æði. Lundúnabúinn skeggjaði, sem ekki á bíl en hjólar, drekkur aldrei áfengi og hefur verið grænmetisæta frá því um tvítugt, er eftirlæti fjöl- miðla. Hann er sagður einlægur, gott dæmi um það sem kjósendur vilji: heiðarlegt fólk sem segi meiningu sína en láti ekki spunameistara semja allt fyrir sig, móta atkvæða- vænar skoðanir með tilliti til þess hvernig þær hljóma. Stjórnmálaskýrendur finna þó enga góða skýringu á því að heldur þurrlegur maður sem hefur verið á ysta vinstrijaðri flokksins í áratugi og setið á þingi í 32 ár skuli skyndi- lega ná þessum árangri. Eindreginn vinstrimaður, Ed Miliband, tapaði þingkosningunum í vor. Margir flokksmenn virðast nú líta á það sem rökrétt skref að kjósa yfirlýst- an Trotskíista sem dáir skrif Karls Marx en segist vera „lýðræðislegur sósíalisti“, mann sem vill þjóðnýta flest sem einkavætt hefur verið síð- ustu áratugina. Corbyn vill að Bretar leggi ein- hliða niður kjarnorkuvopnabúnað sinn og segi sig úr Atlantshafs- bandalaginu. Og hörð gagnrýni hans á Ísrael og Bandaríkin, að- dáun hans gegnum árin á Hamas- liðum og öðrum öfgafullum öflum er þekkt („Hamas hefur helgað sig friði og félagslegu réttlæti og pólit- ísku réttlæti,“ sagði hann eitt sinn). Hann er gamall andstæðingur Evrópusambandsins en vill ekkert fullyrða um það hvort hann muni greiða atkvæði með úrsögn þegar kosið verður, líklega 2017. Um inn- flytjendamál segir hann að Bretar eigi að taka við fleira fólki, það styrki efnahaginn. Það sem er mikilvægast er í huga margra er að hann er á móti aðhaldi. Hann vill vera vænn og rausnarlegur fyrir hönd skattgreið- enda, auka útgjöld til ríkisstofnana og velferðarmála, taka upp lág- markslaun og reyndar líka há- markslaun, hvernig sem það yrði útfært. Og hann vill leggja niður skólagjöld í háskólum. Ríkið hefur safnað auknum skuldum í tíð íhaldsmannsins Dav- ids Cameron, skuldabyrðin hefur frá 2008 aukist úr 37% af lands- framleiðslu í um 80%. En Corbyn segist hafa ráð: seðlabankinn láti, með peningaprentun, nýjan, opin- beran fjárfestingarbanka hafa hundruð milljarða punda sem verði notuð til að efla fjársvelta innviði landsins, spítala, skóla, samgöngur og ekki síst til að auka framleiðslu endurnýjanlegrar orku. Engin loðmulla Þessi ráð, segja andstæðingar hans hneykslaðir, hafa alltaf valdið verð- bólgu og vaxtahækkunum, þótt vextir séu núna afar lágir muni það á endanum breytast. Ráð Corbyns muni valda því að hundruð þúsunda Breta með húsnæðislán fari á hausinn vegna þyngri afborgana. Corbyn er ekki maður málamiðlana; þeir sem vilja ómeng- aða vinstristefnu fá óskir sínar upp- fylltar. En sumir liðsmenn skugga- ráðuneytisins hafa þegar sagt berum orðum að þeir muni ekki taka sæti í stjórn Corbyns. Hann sé algerlega óhæfur til að verða flokksleiðtogi, hvað þá forsætisráð- herra einhvern tíma í framtíðinni. Það sem þeim þykir líklega verst er að ef marka má kannanir mun flokkurinn gjalda slíkt afhroð í næstu kosningum undir forystu Corbyns að þeir missi flestir vinn- una. Engar líkur eru taldar á því að maður með jaðarstefnu Corbyns muni geta sótt inn á miðjuna og þannig þjarmað að Íhaldsflokknum í næstu kosningum. Sjálfur hefur Corbyn greitt at- kvæði oftar gegn línu flokksforyst- unnar á þingi en nokkur annar, um 500 sinnum, segja keppinautarnir. Því spyrja þeir og margir aðrir hvort hann muni beita flokksaga gegn þeim óþekku. Hvað gerist ef þeir eru oftast í meirihluta, segir hann þá af sér? Corbyn hefur vikið sér undan því að svara. Sumir spá eldi og brennisteini, flokkurinn muni einfaldlega klofna og deyja. En hvað segja þeir sem finnst Corbyn spennandi? Laurie Penny, ung kona sem skrifar í New States- man, finnst þróunin ótrúleg; í fyrsta sinn í mörg ár sé Verkamanna- flokkurinn spennandi, ómenguð vinstristefna í boði. Penny segir að stærsti sigur hægrimanna á níunda áratugnum hafi verið að þeim hafi tekist að neyða atvinnupólitíkusa á vinstrivæng til að „selja sál sína fyrir völdin“, hverfa frá vinstri- stefnunni til að ná meirihluta. „Stóri vandinn við Corbyn er að hann sýnir mjög vel hve innihalds- laust tal helstu ráðamanna í Verka- mannaflokknum er. Enginn af hin- um þrem frambjóðendunum boðar eina einustu eftirminnilega hug- mynd fyrir utan að þeir vilji leið- togaembættið,“ segir Penny. Loksins ómenguð vinstristefna FRAMBOÐ HARÐLÍNU-VINSTRIMANNSINS JEREMY COR- BYNS Í LEIÐTOGAKJÖRI BRESKA VERKAMANNAFLOKKSINS HEFUR HRIST UPP Í FLOKKNUM. ÁHRIFAMENN Í HONUM ÓTTAST KLOFNING OG SEGJA AÐ HANN GÆTI HRUNIÐ. Douglas Hogg ENGIN SPILLING Aðdáandi Jeremy Corbyns (í ljósri skyrtu) á fundi í vesturhluta London tekur sjálfu. Niðurstöður í leiðtogakjöri Verka- mannaflokksins verða kynntar 12. september, þegar hafa vel yfir 550 þúsund manns greitt löglegt atkvæði. AFP *Hægt er að tjá með þessari einu setningu allar kenn-ingar kommúnista: einkaeign verði afnumin.Karl Marx, höfundur Das Kapital, helsta rits marxismans. AlþjóðamálKRISTJÁN JÓNSSON kjon@mbl.is HEIMURINN NORÐUR-KÓR J tvö á spennu, en komið hikunni um að draga úr ra að undanförnu. Suður-opnaðra átaka milli þeir er þeir samþykktu aðKóreumenn slökuðu til arpað hafa yfir landamærinfjarlægja hátalara sem v mjórn kommúnistans Kim Joáróðri gegn einræðisst orður-Kóreu. Ki ástæðan sé að ríki hans ráðisegist hafa sigrað og yfir kjarnorkuvopnum. NUR-SÚDA óSameinu helstuðkárni á fimmtu autarSuður-Súdan, Salv rt verðiMachar. Í samning hlautgavið völdum inna oftveriððar ergangii íb ks. MENLO P sl. mánuda milljarðu jarðarbúi acF sama de Mark Z,ook uckerberg, í Menlo níu. Umlifor ra inn á miðilinn m ánuði. Zuckerberg s árið 2004 þegar rv d-háskóla m m fjölg AUSTURRÍKI VÍN Minnst 71 lík rla, kvennaka mtudag íog barna fannst á fim Austuyfirgefnum flutningabí umog er talið fullvíst að ræða flóttamenn frá S smyglað hafi verið ves Talið er að líkin hafi v nokkra dag kafnað. Bíll Ungverjala ýr hafa að un Balkanskag um að kom annarraV-E eru nú í ha grunaðir u

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.