Þjóðmál - 01.03.2009, Side 71
Þjóðmál VOR 2009 69
En 3 vikum síðar, 9 . janúar 2009, sagði
í fréttum ríkisútvarpsins: „Tryggvi Jónsson,
fyrrverandi aðstoðarforstjóri Baugs, hafði
afskipti af sölum á tveimur fyrirtækjum til
Baugsfyrirtækja á meðan hann starfaði í
Landsbankanum . . . Hann kom á fundum
milli manna, sá um að útvega gögn og
aðstoðaði við tilboðsgerðina .“
Þetta er sama minnisleysið og hrjáði
Tryggva Jónsson þegar yfirvöld vildu fá
vitneskju um eignarhald og starfsemi Litla
fasteignafélagsins, sem á fasteignir fyrir
hundruð milljóna króna .
Tryggvi man ekki aðkomu sína að stofnun
Litla fasteignafélagsins ehf .
Tryggvi Jónsson hélt því fram að eigandi
Litla fasteignafélagins, þar sem hann sjálfur
var formaður stjórnar, hefði verið Grétar
Haraldsson .
Grétar Haraldsson segir hinsvegar að Jón
Ásgeir og Tryggvi sjálfur hafi átt félagið .
Og stjórnarformaður Litla fasteigna
félagsins „man ekki“ hver bað hann um að
sinna því starfi .
Tryggvi Jónsson sá um að ráða fram
kvæmda stjóra Litla fasteignafélagsins ehf .
En hann „man ekki“ hver bað hann um það .
Tryggvi Jónsson réð endurskoðanda Litla
fasteignafélagsins . En hann „man ekki“ hver
bað hann um það .
Hver skyldi standa á bak við Litla
fasteignafélagið ehf .?
Smá vísbending:
Í lok árs 1999 sendi KPMG endur skoð
untilkynningu til hlutafélagaskrár um sam
runa Gaums ehf . og Litla fasteigna félags
ins .
Eigandi Gaums heitir Jón Ásgeir
Jóhannesson .
Varðandi hinn gríðarlega hagnað sem
Gaumur ehf ., einkahlutafélag Jóns Ásgeirs,
hafði af þessum viðskiptum með fasteignir
1011 kom eftirfarandi fram í yfirheyrslum
hjá lögreglu:
„Jón Ásgeir segir engan vafa leika á að
Gaumur ehf . hafi hagnast á þessum við
skiptum . . . Jón Ásgeir segir að alveg fráleitt
sé að halda því fram að eitthvað refsivert sé
við það .“
Íslenskir dómstólar voru sammála for
stjóra Baugs .
Þeir sáu ekkert athugavert við þessi við
skipti .
4 . hluti
Leynifélagið Gaumur Holding, Lux .
Þegar almenningshlutafélagið Baugur vildi kaupa 20% í Arcadiaverslunar
keðjunni þá var það svo stór fjárfesting að
kalla þurfti fleiri fjárfesta til . Um kaupin var
stofnað fé lagið Arcadia Holding
Baugsmenn gerðu samning við hluthafa
Arcadia Holding um að þeir gætu keypt
þá út seinna meir og greitt fyrir með
hlutabréfum í Baugi .
Árið 2001 samþykkti stjórn almenn
ings hlutafélagsins Baugs að veita forstjóra
félagsins, Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, heimild
til þess að kaupa hina hluthafana í Arcadia
Holding út með hlutabréfum í Baugi .
Um líkt leyti voru fleiri hundruð milljónir
króna í peningum teknar úr sjóðum al
menn ingshlutafélagsins Baugs og skráðar
í bókhald fyrirtækisins sem „ráðgjöf og
þókn anir til hluthafa Arcadia Holding“ .
Allir stjórnarmenn almenningshluta
félags ins Baugs sögðu hinsvegar í yfirheyrsl
um hjá lögreglu að þeir hefðu ekki heim
il að neinar greiðslur í reiðufé til hluthafa
Arcadia Holding .
Árni Oddur Þórðarson, einn hluthafa
Arcadia Holding, kannaðist ekki við neinar
greiðslur í peningum frá Baugi .
Bjarni Ármannsson, þáverandi forstjóri
Íslandsbanka, eins af hluthöfum Arcadia
Holding, kvaðst ekki finna nein gögn um