Þjóðmál - 01.03.2009, Blaðsíða 48
46 Þjóðmál VOR 2009
Eins og jafnan voru
alhæfingar Þjóð vilj
ans hressilega á skjön
við veruleikann . Það
kom glöggt í ljós þegar
Varð berg efndi til síns
fyrsta fundar . Hann fór
fram á Selfossi í byrjun
nóvember 1961 . Þá
smöluðu kommúnistar
liði á fundinn til að
reyna að hleypa hon
um upp . Komu þeir í sérstakri rútu frá
Reykja vík með Ragnar Arnalds og Jónas
Árna son í broddi fylking ar . En heima
menn fjölmenntu á fundinn og reyndust
flestir mjög fylgjandi vestrænni varnar
samvinnu og voru kommúnistarnir ofurliði
bornir . Frummælendur á fundinum
voru Guðmundur H . Garðarsson, Pétur
Pétursson forstjóri og Tómas Árnason
lögfræðingur .
Já, þetta var eftirminnilegur fundur,“ segir Guðmundur . „Selfoss var þá enn
eins konar sveitaþorp . Við renndum
algerlega blint í sjóinn hver fundarsóknin
yrði . Við smöluðum ekki á fundinn og
vissum ekki á hverju við mættum eiga
von . Kannski tækist kommúnistunum frá
Reykjavík að eyði leggja þetta frumkvæði
okkar? En ekk ert var að óttast . Fólkið
bókstaflega streymdi á fundinn úr
sveitunum í kringum Selfoss . Og þar voru
fylgismenn vestrænnar samvinnu í miklum
meirihluta . Hið sama gerðist í Hafnarfirði .
Þannig að kommarnir gáfust fljótt upp á
því að reyna að yfirgnæfa okkur á okkar
eigin fundum . Þeir reyndust auk þess
ekki burðugir í kappræðum um þessi mál
þegar til kastanna kom . Þeir áttu erfitt
með að svara röksemdum okkar . Þeir voru
vanir því í gegnum Þjóðviljann og bleiku
greinarnar í Tímanum að fá frítt spil við
að úthúða Atlantshafsbandalaginu og gera
allt sem því viðkom tortryggilegt .
En Varðberg var ekki hugsað sem fjölda
hreyfing heldur einungis sem kjarni 30–40
ungra manna í lýðræðisflokkunum sem væri
til staðar þegar á þyrfti að halda . Þá vildum
við stuðla að því að fylgismenn vestrænnar
samvinnu væru ekki alltaf í vörn, þ .e . sífellt
að svara árásum andstæðinganna, heldur
tækju frumkvæðið og kynntu starfsemi
Atlantshafsbandalagsins með jákvæðum
hætti . Starfsemin fólst í kynningarfundum
en fyrst og fremst með því að stappa stálinu
í meðlimi félagsins sem allir voru þátttak
end ur í stjórnmálastarfi lýðræðisflokkanna .
Þetta var sérstaklega mikilvægt í tilfelli
framsóknarmanna . Þeir Varðbergsmenn
sem voru í Framsóknarflokknum áttu
stund um erfitt uppdráttar í flokki sínum
þar sem forysta flokksins var blendin í af
Fyrsta stjórn Varðbergs, 1961–1962 .
Frá vinstri: Jón R . Guðmundsson,
GuðmundurH . Garðarsson formaður,
Gunnar G . Schram, Bjarni Beinteinsson,
Stefnir Helgason, Einar Birnir, Björn Jóhannsson,
Heimir Hannesson, Þór Whitehead,
Jóhannes Sölvason, Birgir Ísleifur
Gunnarsson og Jón Arnþórsson .
Eftirfarandi stjórnarmenn voru fjar ver andi:
Björgvin Vilmundarson, Hrafnkell Ásgeirsson
og Sigurður Guðmundsson .