Þjóðmál - 01.03.2009, Page 78
76 Þjóðmál VOR 2009
Það eru runnir upp tímar á Íslandi, sem mig hefði aldrei órað fyrir að koma
myndu hér á landi . Alþingi reynir að
halda fund í eldsbjarma frá Austurvelli og
taktfastur trumbu sláttur dansandi
mótmælendanna fyrir utan yfirgnæfir
ræðuhöldin innanstokks . Rúður brotna
og það er ráðist á lögregluna . Stærsti
stjórnarmeirihluti Alþingis gefst upp og
segir sig frá ógnvænlegum erfiðleikum sem
hrannast að þjóðinni .
Við tekur nú einhverskonar stjórnmála
barátta í skini eldanna frá samkomum
„mót mælenda“ . Ný og óþekkt öfl munu taka
við stjórn landsins . Ef því verður þá hægt að
stýra héðan af . Sumum finnst svigna feikn
stafir í framtíðarhorfum landsins . Verið getur
að þær verði lygilegri en nokkurn órar fyrir
á þessari stundu . Sjá menn fyrir sér að hér
gæti orðið hungursneyð á vori? Niðurbrot
laga og réttar? Skeggöld, skálmöld?
Hinn nýi stíll gerendastjórnmálanna
mun sjá til þess, að venjulegir stjórnmála
flokkar munu vart geta haldið fundi án þess
að óeirðir verði á fundarstað . Í skugga alls
þessa ætla menn á landsfundi, í prófkjör
og svo alþingiskosn ingar . Skyldu slíkir
atburðir fá að fara fram án bálkasta og
slagsmála? Verður engum hugsað til fyrri
hluta síðustu aldar í Þýzkalandi?
Napóleon mikli sá sig á sínum tíma til
neyddan að ríða inn í þinghúsið og reka
þing menn frönsku byltingarinnar út með
brugðnu sverði . Þeir höfðu þá prentað
peninga handa fólkinu til að gera það
ánægðara í eymdinni . Allt kom fyrir
ekki . Napóleon keisari setti alþýðuna í
einkennisbúninga og hóf tveggja áratuga
styrjaldir . Íslendingar eiga engan Nap
óleon, sem stillt getur til friðar ef fámennt
lögreglulið okkar verður undir í átökum .
Hvað ætli við gerum þá? Burstum rykið
af Gamla sáttmála, sem var víst aldrei sagt
upp? Biðjum um norsk langskip?
Halldór Jónsson
Virkisvetur
og ný ríkisstjórn
Vangaveltur undir lok janúarmánaðar 2009