Þjóðmál - 01.03.2009, Side 79

Þjóðmál - 01.03.2009, Side 79
 Þjóðmál VOR 2009 77 Skyldum við gefast upp á lýðræðinu og fela öskurkórunum og grjótkösturunum völdin? Það virðist sama hvað gert er . Öllu er mótmælt með hávaða og ólátum . Jafnvel þó ríkisstjórnin sé fallin er haldið áfram . Gamlárskvöldsstemning ríkir á torgum hvert einasta kvöld . Ólæti ólátanna vegna . Virkisvetur . * Þá höfum við nýja ríkisstjórn . Til ham ­ingju með það . Í kvöld munu indíán­ arnir á Aust urvelli væntanlega stíga villtan dans við eld ana sína og sprengja púð ur kellingar . Hvað mun þessi nýja stjórn afreka? Hverjar verða fyrstu ráð­ stafanir nýrrar stjórnar? Ef hún þá þor ir nokkuð að gera annað en tala um þjóðar­ hag . Ég held hún athugi að stórhækka fjár­ magn s tekjuskatt, setja á hátekjuskatt, hækka stað greiðsluna, hækka öll gjöld og álögur til ríkisins, lækka vexti og verð­ trygg ingu svo að sparnaður leitar frá bönk­ un um . Hún mun velta fyrir sér að auka útgjöld til félags­ og heil brigðismála . Við það vex verðbólgan og gengið mun líklega falla þar til inn flutn ing ur stöðvast að mestu . Heimskreppan hefur áhrif á út­ flutninginn þannig að ekki blæs byrlega fyrir stjórninni . Hún mun sjálfsagt auka veiði heimildir og endurúthluta, sem núna munu helst hækka fjallið af óseldum afurðum . Hún mun líklega breyta einhliða AGS­ samn ingum með auknum ríkissjóðshalla með óþekktum afleiðingum sem hljóta að leiða til aukinna hafta á landinu . Verðbólgan og atvinnuleysið geta því auðveldlega farið í óþekktar hæðir fyrr en varir . Hugsanlega mun þessi nýja stjórn fyrirskipa launa­ og bótahækkanir yfir línuna . Þetta er jú ríkisstjórn Skallagríms og hins vinnandi fólks . Og svo auðvitað heilagrar Jóhönnu . Nema að stjórnin hafi vit á að gera helst ekkert eins og menn ásökuðu gömlu stjórnina um að gera . Nema auðvitað að reka Davíð úr Seðlabankanum . En geri hún eitthvað af ofansögðu þá hryn ur hún ofan í rústakjallarann í maí . Eftir kosn ing ar fer næsta stjórn eins, en þá hafa bylt ingar öflin og indíánarnir bæst í ráðherra hópinn . Loks þegar það er allt búið fara menn að skima eftir leifunum af gamla íhaldinu . Menn fara að rifja upp gömul orð Bjarna heitins Benediktssonar: Munið það piltar, að þótt við séum vondir, þá eru aðrir verri . Það munu menn um síðir sjá . 2011 eða fyrr verða því aftur kosningar og þá fyrst held ég að Sjálfstæðisflokkurinn komi aftur að stjórn landsins . Þangað til verður langur tími og miklir erfiðleikar . Erfitt verður að koma fram pólitískum málflutningi fyrir ofurveldi Baugsmiðl­ anna . Pólitísk umræða mun því stjórnast að miklu leyti af hags munum Baugs . Nema að Sjálfstæðisflokkur inn fari loks að huga að nútíma fjölmiðlun . 2015 hefur ástandið í USA hugsanlega lag ast eitthvað og heimurinn þá líka . En þá verður ESB­umræðan löngu fyrir bí á Íslandi og eng inn vill muna það sem hann segir núna .

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.