Þjóðmál - 01.03.2009, Qupperneq 84
82 Þjóðmál VOR 2009
áhrif Evrópusambandsaðildar á efnahag
landsmanna .
Ég held að umræða um Evrópusambands
mál haldi áfram að vera óttalegur vaðall
meðan deilt er um hvort aðild töfri burt
hagstjórnarvanda . Það þarf að ræða önnur
rök með og á móti aðild heldur en þau
efnahagslegu og sú rökræða þarf að horfa til
miklu lengri tíma en líklegt er að núverandi
kreppa standi .
Einn mikilvægasti kosturinn við greina
safn Björns er einmitt að hann skoðar
málin í tals vert víðara samhengi en þeir
gera sem aðeins hugsa um núverandi stöðu
efnahagsmála . Skrif af þessu tagi eru að mínu
viti vel til þess fallin að koma umræðunni
upp úr hjólförum innihalds lausra slagorða
um lausn á efnahagsvanda . Hvað er Íslandi
fyrir bestu? er því þarft rit og tímabært .
Stigi Wittgensteins
Logi Gunnarsson: Stigi Wittgensteins, Elmar Geir
Unnsteinsson og Viðar Þorsteinsson þýddu,
Háskólaútgáfan, Reykjavík 2005, 112 bls .
Eftir Ásgeir Jóhannesson
Ekki er á allra vitorði að einn áhrifamesti hugsuður síðari tíma, austurríski
heim spekingurinn Ludwig Wittgenstein,
steig á land í Reykjavík árið 1912, þá 23
ára að aldri . Erindi hans var þó ekki að
kynna hugmyndir sínar fyrir afskekktri
þjóð, heldur að ferðast um landið og njóta
nátt úrunnar . Hann fór meðal annars í tíu
daga hestaferð um hálendið, sem hefur ef
til vill veitt honum innblástur . Alltént trúði
Wittgenstein því fljótlega upp úr þessu að
óbeisluð náttúran fóstraði best hugmynda
líf hans . Hann reisti sér því afskekktan kofa
á norð urslóðum, nánar tiltekið í Noregi .
Honum þótti sjóferðin til Íslands erfið, sem
skýrir kannski staðarvalið .
Tveimur árum eftir Íslandsferð Wittgen
steins urðu þáttaskil í lífi hans . Fyrri heims
styrjöldin braust út . Hann bauð sig fram
til þjónustu í austurríska hernum og vann
frækil eg afrek á vígvellinum . Hörmungar
stríðsins léku Wittgenstein hins vegar grátt
og skildu eftir varanleg ummerki í sálarlífi
hans . En mitt í blóðbaðinu páraði hann
stundum nokkrar línur í rissbók sem hann
hafði meðferðis og þegar hann var tekinn
til fanga gafst honum næði til að ljúka við
uppkast að sinni fyrstu bók . Hún kom
þó ekki út fyrr en rúmum þremur árum
eftir lok stríðsins, undir nafninu Tractatus
LogicoPhilosophicus.
Sennilega hafa fleiri bækur verið skrifaðar
um heimspeki Wittgensteins en nokkurs
annars 20 . aldar heimspekings og verk hans
hafa verið túlkuð á afar margvíslegan hátt .
Það er engu líkara en að hinir ólíkustu
menn sjái að einhverju leyti sjálfa sig í
hugmynd um hans . Í því ljósi má nefna að
Wittgenstein sjálfur skrifaði eitt sinn hjá
sér, að hann leitaðist við að gegna einungis
hlutverki spegils, það er að segja, að lesandi
verka hans sæi í þeim sína eigin afmynduðu
hugsun og gæti þannig komið skikki á
hana .
Á meðal athyglisverðra bóka um heim
speki Wittgensteins, sem komið hafa út á
undanförn um árum, er ein eftir íslenskan
höfund, bókin Stigi Wittgensteins eftir Loga
Gunnarsson . Hún kom upphaflega út á
þýsku um aldamótin undir nafninu Wittg
en steins Leiter: Betrachtungen zum Tractatus,
en var laglega þýdd á hið ástkæra yl hýra
af Elmari Geir Unnsteinssyni og Við ari
Þorsteinssyni, og gefin út af Heimspeki
stofnun og Háskólaútgáfunni um miðjan
þennan áratug .
Logi er fæddur árið 1963 í Reykjavík .
Hann lauk BA gráðu í heimspeki frá Há