Tölvumál


Tölvumál - 01.11.2005, Blaðsíða 6

Tölvumál - 01.11.2005, Blaðsíða 6
Faghópur UT-kvenna Faghópur UT-kvenna stofnaður Ásrún Matthíasdóttir 6 Tölvumál Árið 2000 voru konur 31% af nem- endum í tölvunarfræði í Háskólanum í Reykjavík (HR) en 2003 var hlutfallið komið niður í 12%. Áhugi kvenna á tölvunarfræði ogöðrum greinum upplýsingatæknihefur sveiflast til og frá undan- farna áratugi. Árið 2000 voru konur 31% af nemendum í tölvunarfræði í Háskólan- um í Reykjavík (HR) en 2003 var hlutfall- ið komið niður í 12%. Þetta vakti áhyggjur meðal kennara og stjórnenda skólans og var ákveðið að grípa til aðgerða. Sumarið 2003 var gerð rannsókn við skólann með styrk frá Nýsköpunarsjóði námsmanna þar sem leitast var eftir að greina ástæður fyrir því að konur leituðu síður í tölvunarfræði. Niðurstöðurnar rannsóknarinnar „gefa til kynna kynjamun í aðgangi og tölvunotkun áður en nemendur hefja nám og einnig í áhugasviðum þeirra. Um helmingur kvenna í náminu völdu það til að prófa eitthvað nýtt en karlar völdu fagið frekar af áhuga á tölvum... Viðhorf til námsins eru ólík hjá kynjunum þar sem konum lík- ar betur við hönnun útlits og þarfagrein- ingu en körlum líkar betur við forritun.“ (Kolbrún Fanngeirsdóttir, 2003, bls. 4). Í kjölfarið var m.a. aukið framboð á nám- skeiðum sem talin voru höfða frekar til kvenna í deildinni. Faghópur verður til Umræðan hélt áfram og vorið 2005 tók hópur sig saman og undirbjó stofnun fé- lags kvenna í upplýsingatækni. Upphaf- lega var hugmyndin að vera með óform- legt félag kvenna innan HR en metnaður þeirra sem tóku þátt í undirbúningum kall- aði á formlegt félag. Eftir að hafa skoðað ýmsa möguleika var ákveðið að stofna fagfélag undir Skýrslutæknifélagi Íslands (Ský). Þetta fyrirkomuleg hefur marga kosti, t.d. aðgengi að skrifstofu og allri þjónustu Ský við daglegan rekstur félags- ins sem auðveldar stjórn félagsins að ein- beita sér að öðrum verkefnum, s.s. fræðslu og kynningafundum. Stofnfundur félags- ins UT-konur var síðan haldinn í Háskól- anum í Reykjavík miðvikudaginn 25. maí 2005. Var fundurinn vel sóttur og mættu 65 konur, sem flestar gerðust stofnfélagar. Faghópur UT-kvenna er hýstur af Ský en mun starfa að mestu sjálfstætt með eigin samþykktir og stjórn. Um markmið fag- hópsins og fyrstu stjórn má lesa á www.sky.is Mikilvægt að virkja félaga til starfa Stjórnin hefur síðan í vor fundað reglulega og velt fyrir sér hvernig best sé að vinna að markmiðum félagsins og eru ýmsar hugmyndir á lofti. Mikilvægt er að virkja félaga í UT-konur og mynda vinnuhópa, t.d. skemmtihóp, fræðsluhóp, hvatninga- hóp, tölfræðihóp og rithóp. Hver hópur tæki að sér ákveðið hlutverk og sæi um verkefni í samvinnu við stjórnina. Vonast er til að hægt verði að virkja félaga til starfa og fá fram hugmyndir um störf fag- hópsins og hvað eigi að leggja áherslu á fyrsta starfsárið. Stefnt er að því að halda bæði fræðslufundi og skemmtifundi en fyrsti félagsfundurinn var haldinn 15. september sl. Hægt er að gerast félagi í UT-konum eða í Ský og UT-konum með því að senda tölvupóst á netfangið utkonur@sky.is eða sky@sky.is. Heimild: Kolbrún Fanngeirsdóttir (2003). Konur og tölvunarfræði. Skýrsla á netinu http://www.ru.is/asrun/Efni/Skyr- slakonur.pdf Ásrún Matthíasdóttir er lektor og verkefnastjóri fjarnáms Tölvunarfræðideildar Háskólans í Reykjavík

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.